<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, mars 30, 2004

Kæru vinir, þá erum við bara komin langt inn í vikuna og ég er ekki enn búinn að sjá ykkur fyrir eðalskemmtiefni eins og DT er einum lagið. Það eru auðvitað ýmsar ástæður fyrir því en eins og venjulega sér doddi JT ekki nokkurn einasta tilgang í því að ræða meira um það. Maður er occupied gaur og hefur nóg á sinni könnu og fólk verður bara að taka því eins og hverju öðru hundsbiti. Svo eru allir löngu hættir að kommenta hjá DT sínum og er það vel til þess fallið að fá mig til að bresta í grát, enda sér fólk mig ekki öðruvísi þessa dagana en háskælandi í rauðu hvítu og bláu skónum mínum. Svona er víst bara lífið krakkar mínir, um leið og maður er dottinn af stjörnuhimninum með skelli (Haukar-Njarðvík, 82 stig í mínus, Þórður Gunnþórsson 6 af 17 í skotum innan teigs) hverfur þetta lið sem DT taldi til vina sinna eins og dögg fyrir sólu. Já kæru vinir, þetta er harður heimur og ef manni mistekst að sjá fyrir sér og sínum er skammur vegur í algjöra glötun....

Annarz hefur doddi JT ekki látið sjá sig á körfuboltavellinum í að verða þrjár vikur og skyldi engan undra. Það er ekkert grín að jafna sig eftir tímabil þar sem meðal annars er troðið yfir mann af leikmanni sem kenndur er við brauð, maður þarf að horfa upp á kanann sinn blokkaðan af minnsta manninum í hinu liðinu og til að toppa þetta allt er maður svívirtur á eigin heimavelli með 44 stigum á meðan vinir manns hlæja sig máttlausa upp í pöllum með mynd af DT klæddum í Njarðvíkurbúning. Það verður nú bara að teljast afrek ef ég mæti einhvern tímann aftur á parketið...

...en já, ég finn hvernig bitri maðurinn er að koma upp í mér enn eina ferðina og ég var víst búinn að lofa að jarða hann þannig að það er best að mar snúi sér að einhverju öðru...partýið hans Trevors vinar míns hérna á föstudaginn var ekki alveg að standast væntingar, kallinn hafði greinilega steingleymt að bjóða fólki því það mætti eiginlega enginn. Datt reyndar í hug að fólk væri ekki alveg tilbúið í hipshake á föstudagskvöldi enda eru laugardagarnir alltaf bestir í það. Ég mætti þarna með Bergz litla bróður, Villalicious og Kidda bling bling og er óhætt að segja að við höfum verið flottustu gangstagaurarnir á svæðinu. Það var algjör synd hvað það voru fáir því fólkið sem mætti hélt ekki vatni yfir okkur þegar við byrjuðum á dansgólfinu...en það er nú ekkert nýtt...svo henti DT sér ásamt fríðu föruneyti í bæinn á laugardaginn og skemmti sér konunglega.

Munið svo bara eftir milkshakinu...ég heyrði það alltof sjaldan á dansgólfinu um helgina og bið ég fólk bara um að hafa dem basics á hreinu ef það vill að DT skemmti sér vel...

föstudagur, mars 26, 2004

Nóg komið af þessu bulli pjakkar, mar er ekki búinn skrifa orð af viti inn á þessa síðu síðan á laugardaginn og er það auðvitað regin hneyksli. DT hefur sér þó það til málsbóta að litli kúturinn ykkar er búinn að vera æfa ný dansspor til að nota á gólfinu á Broadway 2nite y´all í teitinu hans Trevors vinar míns. Fyrir þá sem eru kjánar og vita ekki hver Trevor vinur minn er hef ég nákvæmlega ekkert að segja, nema kannski þetta: æææ...já börnin mín, mar mætir ekkert á dansgólfið án þess að vera með ný múv í gangi og ætla ég ekkert að klikka á því frekar en fyrri daginn. Svo var Jónsi, fyrirmynd mín í lífinu og sannur vinur í blíðu og stríðu, að koma með nýtt lag um daginn...hið stórkostlega Heaven. DT er alveg viss um að ef Jónsi heldur áfram að vinna í bibbanum og tribbanum eins og honum er einum lagið er ekkert sem getur stöðvað hann í Eurovision og er ég hæstánægður með strákinn. Smá skilaboð til þín kútur: Muna bara að klikka ekki á hvíta hlýrabolnum og slaka aðeins á æðinni í hálsinum...allavega, veit að litli hunangshúðaði súkkulaðikoddinn hans dodda síns á eftir að standa sig eins og hetja...
Hvað um það, pjakkarnir eru vanir að standa sig vel hvar sem þeir eru og félagi Jónsi er þar engin undantekning.

Í morgun vaknaði ég svo hress og kátur, henti mér frammúr, tók mínar 1000 armbeygjur og 5000 magaæfingar og skellti mér svo í að lesa Mbl....og hvað haldiði að ég hafi séð??? jú, að Njarðvík tapaði á móti Snæfelli eftir að hafa mest verið 26 stigum yfir og eru dottnir úr úrslitakeppninni 3-0! Fyrir þá sem ekki muna, menn eins og sjálfan mig til dæmis, unnu Njarðvík Hauka með samtals 82 stigum í tveimur leikjum...82 stigum lömbin mín!!! Maður hefði nú kannski haldið að þá myndu þeir ekkert tapa 3-0 í næstu umferð. Njarðvíkingarnir hafa greinilega bara ekki nennt lengra í keppninni, mesta áskorunin var klárlega að vinna okkur og fyrst það tókst hjá þeim voru þeir bara sáttir...sniðugir strákarnir...þetta kom mér nú samt á óvart þó ég hafi haldið með Snæfelli. Lýður Haukamaður tryggir þeim án nokkurs vafa minn stuðning enda er drengurinn sá hreint ágætur á dansgólfinu. En kidz, hafið það bara sem best þangað til næst og sýnið hvað í ykkur býr on da floor, ef þið vitið hvað ég meina...


fimmtudagur, mars 25, 2004

Heyriði mig krakkar mínir, ég hef verið að velta fyrir mér ákveðnum hlutum svona undanfarið. Ekkert merkilegum hlutum reyndar en samt...hvar er Sódóma????

mánudagur, mars 22, 2004

Þessi líka fallegi dagur krakkar mínir! Sól og heiðskýr himinn, ef ég væri ekki svona mikill nagli myndi ég sko fella nokkur gleðitár!

laugardagur, mars 20, 2004

Sælir rjómakoddarnir mínir! Þá er kominn laugardagur enn eina ferðina og allir í rífandi stemmningu í góða veðrinu. DT er allur að koma til eftir leikina þarna á móti ég man ekki hverjum, þarna ég man ekki hvenær og horfir björtum augum til framtíðar. Enda er ekki annað hægt, það styttist óðum í sumarið og er það auðvita algjör snilld. Í sumar ætlar DT nefnilega að svívirða lóðin svo rækilega að þau eiga eftir að spænast upp eitt af öðru og ætlar doddinn að éta upp í það minnsta 5 bekkpressustangir úr stáli og svona 15-30 handlóð. Minna má það ekki vera og er ég alveg viss um að þetta verður djöfulz stemmning og ekkert annað...
Svo eru menn alveg hættir að kommenta hjá kútnum sínum og er það vitaskuld til háborinnar skammar og óvirðing af verstu sort. Sem betur fer er maður vanur svona disrespecti því það er einmitt verið að dissa doddann feitast þessa dagana og lætur maður því ekkert koma sér úr jafnvægi. Þið vitið nú áreiðanlega ekkert um hvað ég er að tala frekar en venjulega og nenni ég ekkert að vera útskýra það frekar...þó maður sé kjáni er maður ekkert fífl og lætur ekki allt uppi við pjakkana sína. En jæja gott fólk, það er þá ekki fleira í dag. Reimið bara á ykkur dansskóna og representið á dansgólfinu eða eins og vinur minn Hr. Barnapervert Michael Jackson sagði einu sinni:
Ah, on the floor and dance
Ah, on the floor and dance
So get on the floor
And dance with me
I love the way you shake your thing...hefði ekki getað orðað þetta betur sjálfur!...

miðvikudagur, mars 17, 2004

Yo yo yo kidz...gamall vinur minn úr ghettóinu var að skrifa í gestabókina...u gotta check it!

þriðjudagur, mars 16, 2004

Jæja, súkkulaðihjúpuðu kanilsnúðarnir mínir...ég er ekki ennþá búinn að fara í skólann í Njarðvíkurpeysunni enda er litli stubbur hann JP ekkert kominn með hana handa mér ennþá. Annarz er maður ennþá að sleikja sárin eftir þessa leiki um helgina og þakka ég eiginlega bara fyrir að búa í handboltabæ því nógu slæmt er það samt að hlusta á þessar fáu hræður sem fylgjast með körfunni hrauna yfir DT útaf þessu....já fólk er alltaf til í að hrauna ærlega yfir DT og pjakkana hans þegar þeim gengur eitthvað illa á dansgólfinu og lætur sér tækifæri eins og þetta ekki úr greipum ganga...ekki að við eigum þetta ekki skilið, við vorum ömurlegir og vitum það best sjálfir. Fyndið samt hvað sumt fólk getur misst sig útaf svona úrslitum...kidz, þetta er bara leikur hehe...nei, ég segi þetta nú bara af því ég var að skoða Njarðvíkurspjallið áðan og þar eru menn ýmist að drulla yfir Kidda bling bling eða Dóra Njarðvíking...sé enga ástæðu til að drulla yfir hvorugan leikmanninn, Dórinn var góður á móti okkur og spilaði eins og hann gerir alltaf, með hjartanu....Kiddi gerði það líka og eini munurinn var að annað hjartað er yngra og reynsluminna en hitt og þess vegna var da blingmaster fljótari að safna sér í 5 villur. Ég segi nú bara eins og vinur minn hann Mike Pregame shitmaster Manciel, sem hélt nú af landi brott án þess að kveðja doddann sinn: What happenz on da court, stayz on da court, aight u white punkz???...reyndar var Kiddi kominn útaf með 5 villur þegar hann og Dóri fóru að battla þannig að tæknilega séð var hann ekkert á vellinum en u know....mergurinn málsins er sá að við erum dottnir úr keppni og það á móti betra liði...svekkjandi staðreynd, en ekkert við þessu að gera annað en henda sér í ræktina og svívirða lóðin svo maður eigi eitthvað í þessa kalla á næsta seasoni, ekki satt pjakkar?

Að sjálfsögðu hefur DT alltaf rétt fyrir sér og lætur engan komast upp með að halda öðru fram. Doddinn er ótæmandi viskubrunnur sem þreytist aldrei á því að vökva uppþornaðar andlegar auðnir samferðamanna sinna með tærum sannleika úr svalandi fróðleikslindum....

sunnudagur, mars 14, 2004

Góða kvöldið kæru vinir mínir...jæja, þá er maður búinn að þrífa á sér rassgatið eftir að hafa verið tekinn svona líka rosalega í það áðan...veit eiginlega ekki hvað skal segja, kannski að ég hafi klúðrað þessu með að gefa strategíuna okkar upp fyrir leikinn en allaveganna voru Njarðvíkingarnir miklu betri en við frá fyrstu mínútu. Þeir eiginlega stálu planinu okkar...gerðu allt sem við ætluðum að gera...spila góða vörn og klára sóknirnar hinum megin. En svona er þetta bara lömbin mín, maður verður greinilega ekkert betri í körfubolta við að vera í sokkum sem ná upp að hnjám og nú verð ég víst að mæta í Njarðvíkurpeysu í skólann á morgun...þið hélduð kannski að ég ætlaði ekki að gera það en ég er maður orða minna og geri það sem ég segist ætla að gera...svo voru JP & co svona líka ótrúlega sniðug að mæta með fullsize mynd af DT sem þau voru búin að klæða í Njarðvíkurtreyju og ef ég væri ekki svona vel upp alinn myndi ég sko láta fjúka nokkur fúkyrði núna um þetta uppátæki hjá þeim...hvar er respectið fyrir vini ykkar??? Er von að maður spyrji, ég er ekki annað en gæðin og ljúfmennskan við þetta lið all day long og svo mætir það bara með kallinn uppáklæddan í Njarðvíkurtreyju á mínum eigin heimavelli....þetta er ljótt mál og er ég viss um að það er svona sem fólk kemur sér til helvítis...

...nenni ekki að tala meira um það, fólk verður bara að fá að ráða hvernig það kýs að koma fram við doddann sinn og ætla ég ekkert að vera að skipta mér af því...en svo ég snúi mér aftur að leiknum þá voru kisurnar í Njarðvík bara mjög góðar, jörðuðu okkur gjörsamlega og áttum við aldrei séns...það þýðir víst að ég hafði rangt fyrir mér og JP rétt...Njarðvík eru betri en Haukar....erfitt að þræta fyrir það...tóku okkur með 39 stigum á heimavelli og 44 á útivelli. Held að ég væri hálfviti ef ég segði að við værum betri en lið sem svívirðir okkur tvisvar í röð þannig að ég ætla ekkert að halda því fram. Það verður samt að segjast eins og er að við vorum mikið lélegri í þessum leikjum en öllum öðrum leikjum sem ég hef tekið þátt í á tímabilinu og hljótum bara að hafa verið að spila undir getu...ég trúi hreinlega ekki öðru því annars áttum við ekkert heima í þessari úrslitakeppni til að byrja með. Anywayz kidz, ég óska Njarðvík til hamingju með að hafa myrt okkur í þessum leikjum og vera komnir áfram og ef Snæfell skítur á sig væri nú bara best að Njarðvík tæki þetta...þá töpuðum við allavega á móti Íslandsmeisturunum en ekki einhverjum kjánum...

ATH. ATH. ATH!!!!!
HAUKAR-NJARÐVÍK Á ÁSVÖLLUM Í KVÖLD KL. 19.15...ERU PJAKKARNIR NÓGU SEXY TIL AÐ SVÍVIRÐA GRÆNA GARÐÁLFINN? ERU DT OG FÉLAGAR NÓGU MOTHER FUCKIN´ KÖTTAÐIR (bein tilvitnun) TIL AÐ RUGLA Í CROWDINU? ERT ÞÚ HIP OG KÚL MEÐ BABYLOTIONIÐ Á HREINU? VEIST ÞÚ HVERNIG ÞÚ ÁTT AÐ HAGA ÞÉR Á DANSGÓLFINU?
EF ÞÚ MÆTIR EKKI VEISTU EKKI NEITT OG ERT ÁN VAFA AÐ SKÍTA Á ÞIG!

laugardagur, mars 13, 2004

Blessaðir pjakkar! Shiiiiiiiiiiiiiit hvað við vorum nettir í gær mar....héldu að allir að við myndum mæta í Njarðvíkina og whoop assa græna garðálfinn....hahahahaha við erum svo nettir mar....héldu allir að við myndum vinna en nei kidz, við erum með strategíu í gangi...bíðiði bara....þeir halda að við séum einhverjir aumingjar núna og svo koma litlu kjánarnir í Hafnarfjörðinn, two-twenty, alveg hey Haukar, hvað er það?....svo verða þeir rassskelltir hahahaha....

fimmtudagur, mars 11, 2004

Góða kvöldið gott fólk....það virðist allt að verða vitlaust af því að Haukar ætla að kaffæra Njarðvík á morgun og á sunnudaginn og menn eru gjörsamlega að trompast útaf þessu. Það er hið besta mál enda væri ekkert gaman að vinna UMFN nema af því að þeir verða svo sárir kallarnir. Ég er reyndar alveg með það á hreinu og það verður kastað á mig eggjum í Kettlingagryfjunni á morgun og hlakka ég mikið til...ég ætla bara rétt að vona að við mætum tilbúnir til leiks og klárum þetta verkefni svo ég þurfi ekki að mæta í Njarðvíkurpeysu í skólann á mánudaginn. Fyrr vildi ég nú ganga um nakinn í Kringlunni og eða bara detta niður dauður...allaveganna þá lofa ég snilldarleikjum og hvet fólk eindregið til að mæta.
Það eru sumir þarna úti sem hafa ekkert verið að votta mér neitt of mikla væntumþykju í vetur og ekki mætt á leiki og hef ég stundum verið alveg miður mín. Nú er alveg tilvalið að kíkja á okkur því við höfum sjaldan litið betur út og erum búnir að æfa fullt af nýjum sporum til að nota á parketinu, ég er búinn að kaupa mér þessa líka stórfínu sokka sem ná upp að hnjám og kynþokkinn drýpur af mér eins og af öllum öðrum í liðinu....það ættu allir að vera farnir að ná þessu núna og þess vegna yrði það mér algjörlega óskiljanlegt ef fólk myndi ekki mæta að horfa á alla þessa fegurð sem saman er komin í einu liði.

Svo veit ég að litla greyið hann JP iðar í skinninu eftir að fá svar við þessari afsökun fyrir grein sem hann skrifaði á síðuna sína en mér bara dettur ekki í hug að svara henni enda hef ég ýmislegt annað að gera en leiðrétta einhverja kjána útí bæ....whoop ass nr. 4 félagi!


miðvikudagur, mars 10, 2004

Sælir pjakkar....ég hitti hann Jón Pál vin minn á msn hérna áðan og átti við hann áhugaverðar samræður...svo kíkir mar bara á bloggið hjá stráknum og haldið þið bara ekki að Njarðvíkurfan nr. 1 hann JP hafi sett allt saman á netið...en ég lét hann líka heyra það þannig að það er bara gott mál. Kíkið endilega á þetta...

þriðjudagur, mars 09, 2004

Jæja mínir kæru vinir...nú er sko aldeilis tími til að svara fyrir sig! My X friend hann Hr. Jón Páll sykurpúði, handhafi titilsins Hr. Politica og einn sexiest man alive, er að svívirða Haukapjakkana á síðunni sinni eins og hann hafi aldrei gert annað um daganna. Málið er bara að strákurinn hefur ekki hugmynd um hvað hann er að tala og er svo mikið í ruglinu að það hálfa væri nóg. JP er eitthvað að tala um að það megi ekki gagnrýna Njarðvík fyrir að hafa fengið sér kana fyrir rimmuna á móti okkur af því að Haukar hafi verið að fá sér nýjan kana um daginn....Nonni minn, ég hef nú bara eitt að segja við því: Kaninn í Haukum, kani Nr. 2...Kaninn í Njarðvík, kani Nr. 3. Reyndu svo ekki að segja mér að Brenton da bold head wonder Birmingham sé einhver Íslendingur því hann er nákvæmlega jafn íslenskur og Halim Al!!!

Njarðvíkingarnir eru klárlega skíthræddir við Haukana enda hafa þeir enga ástæðu til annars....við unnum þá í hvert einasta skipti í fyrra...í fyrra en ekki á seint á síðustu öld, þannig að það þýðir ekkert að vera að bera þetta saman við Liverpool V.Æ.N.I! Þó bölvaðir ræflarnir hafi slefast til að vinna okkur tvisvar í vetur geturu sko verið viss um að þeir eiga ekki eftir að vinna okkur tvisvar í viðbót enda veit hver heilvita maður að Haukar gætu ekki tapað fjórum sinnum fyrir Njarðvík á sama tímabilinu þó þeir væru með 20 kana...það er einfaldlega gegn öllum náttúrulögmálum og finnst mér í raun óskiljanlegt að jafn vel gefinn einstaklingur og þú skulir halda öðru fram!

Og í sambandi við kynþokkann í Njarðvík þá er hann í algjöru lágmarki þrátt fyrir að þín gullfallega ektafrú bjargi vissulega því sem bjargað verður. Þetta er bara staðreynd sem þýðir ekkert að þræta fyrir, liðið þarna innfrá myndi ekki þekkja muninn á hipshaki og shouldershaki þó það ætti að drepa það og ekki minnist ég þess nokkru sinni að hafa séð Njarðvíking sem vissi hvernig hann ætti að haga sér á dansgólfinu ( nema kannski hana Önnu þína, sem á nú nokkur múv á gólfinu, og Sigga dunked over en það var ekki fyrr en eftir að hann var kominn í Hauka).

Þú hlýtur bara að sjá hvað þú ert innilega að misskilja lífið þegar þú heldur því fram að Njarðvík vinni sigur á Haukum....og það meira að segja auðveldan sigur...eru menn haldnir sjálfeyðingarhvöt eða hvað??? Hélstu bara að ég myndi taka þessum svívirðingum þegjandi og hljóðalaust??? Nei lagsmaður, þar skjátlaðist þér sko hrapalega og þú getur verið viss um að þú færð að kenna á reiði Haukapjakkanna Ég myndi nú bara reyna að njóta síðustu daganna minna á lífi ef ég væri þú, því dagar þínir verða senn taldir....whoop ass!!!

Sælt veri fólkið, mig langar endilega að benda fólki á að heimsækja síðuna hans JP vinar míns og hrauna yfir það sem hann skrifaði um leikina sem eru framundan við Njarðvík. Þó litli kjáninn eigi einhverja kærustu úr þessum mesta útnára Íslandssögunnar þýðir ekkert fyrir bölvaðan kjaftinn á honum að spá öðru liði en Haukum sigri! JP i´m out 2 get u!!!

sunnudagur, mars 07, 2004

Þá er bara enn ein helgin að renna sitt skeið án þess að maður fái rönd við reist. Þetta var nú alveg prýðileg helgi sem byrjaði með löðrandi kynþokka þegar við unnum Keflavík á fimmtudaginn og endaði í gríðarstemmningu í versluninni Útilíf þar sem DT lék við hvern sinn fingur og seldi skó sem óður væri. Svo var árshátíð hjá frönskunni á föstudaginn og er fátt um hana að segja, maturinn var ekkert sérstakur og ballið var leiðinlegt. Já mínir kæru félagar, stundum er ekki nóg að litli kútur nr. 1, Hr. Doddified mæti á svæðið til að stemmningin rjúki upp úr öllu valdi og þá er ekkert annað að gera en að láta sig hverfa. Enda gerði ég það og sé ekkert eftir því. Vona að allir hafi samt skemmt sér vel...
Svo á laugardagskvöldið kíkti í ég ásamt crewinu mínu í downtown Reykjavík og ruglaði í blökkumönnum eins og ég hefði aldrei gert annað um ævina. Fórum saman DT, Villi P.I.M.P, Kiddi bling bling og frú, Whitney a.k.a. co-fourthquarter man, Mike Fart Manciel og hans significant other, Miss Jenny.
Eins og við var að búast áttum við dansgólfið hvert sem við fórum og dilluðum mjöðmunum eins og við hefðum ekki gert annað síðan við vorum að safna kúk í bleyju back in the dayz...gott kvöld sem endaði vel...
svo eru bara fínir hlutir framundan, tveir sigurleikir á móti Njarðvík í úrslitakeppninni og kannski að annar verði rúst meira að segja. Á eftir að spyrja Sæsa hvort hann nenni að salla 30 stigum í útileiknum, fer dáldið eftir því...svo ætlum við bara að halda okkar striki, svívirða á vellinum og passa að láta ekki troða yfir okkur. Svo vil ég bara enn og aftur benda fólki á Milkshakið. Það er eitthvað sem hefur aldrei brugðist doddanum á ögurstundu og hlusta ég alltaf á það þegar ég get...

föstudagur, mars 05, 2004

Sjiiiiiiiit hvað Haukapjakkarnir eru sexy, þetta hlýtur bara að vera bannað!

fimmtudagur, mars 04, 2004

HAUKAR-KEFLAVÍK Í KVÖLD KL. 19.15...þú mætir eða ég myrði þig...skilið?

mánudagur, mars 01, 2004

OK þeir unnu og við töpuðum, nenni ekki að eyða fleiri orðum í það...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?