föstudagur, júní 10, 2005
Kæru vinir og vandamenn, nú er að verða kominn heil vika síðan ég kom heim á ný og ekki vanþörf á að gefa fulla skýrslu um það sem á daga mína hefur drifið. Ég hef orðið þess láns aðnjótandi að hitta marga góða félaga og vini. Eru flestir alveg eins og þegar ég sá þá síðast fyrir um tæpu ári en sumir eru búnir að taka róttækum breytingum. Einn er farinn að líta út eins og 50cent og búinn að safna í svo magnaðar axlir að DT er á báðum áttum um hvar hálsinn er, einn er orðinn feitur og annar orðinn algjör spaði. Svo er einn sem er fluttur út á land og enn annar sem er orðinn velstæður atvinnurekandi.
Sjálfur er ég í nokkuð óbreyttri mynd fyrir utan að kílóin hafa hrunið af mér og full ástæða til að ég verði duglegur að vinna í bibbanum og tribbanum ef ég ætla að láta taka mig alvarlega í sumar. Annars er ég bara alveg eins, fátækari að vísu en fer ennþá flestra minna ferða á mínu svo mjög svo ágæta reiðhjóli. Kannski ekkert kúl að krúsa um á hjólinu sínu þegar maður er orðinn 23 ára en eitt er víst, botninn á dodda litla verður bara stinnari og stinnari og enginn furða að það sé horft á rassinn á manni þegar maður spókar sig í Kringlunni...
Jæja, held að ég sé að mestu kominn inn í rútínuna, byrjaði að vinna á þriðjudaginn og búinn að mæta í Hressarann á hverjum degi síðan ég kom heim. Home sweet home.....vil svo bara biðja þá vini mína sem halda að ég hafi áhuga á að tala við þá, að skrá mig inn á msnið hjá sér, það er svo langt síðan að ég notaði mitt að allir eru dottnir út. Meira vesenið......
thordurgunn@hotmail.com

sunnudagur, júní 05, 2005
Góðir Íslendingar,
það er með mikilli gleði og ánægju sem ég tilkynni ykkur, háæruverðugu samlandar, að DT er snúinn úr pólitískri útlegð frá úlöndum.
Virðingarfyllst, Þórður Þ. Gunnþórsson
Það er aldeilis, þá er ég bara kominn aftur heim og líst bara vel á það. Þá geta Haukar kannski eitthvað á körfuboltavellinum á næsta ári og ekki vanþörf á. Ösköp eðlilegt svosem að litlu hanakambarnir hafi ekki verið ad standa fyrir sínu þegar sálina vantaði í liðið. Ég í samráði við DT, vil nefnilega meina að það sé enginn annar en ég sem sé sálin í liðinu og vil ég bara nota tækifærið og biðja liðsmenn afsökunar að hafa horfið svona skyndilega af landi brott án þess að kenna neinum hvernig á að hrista mjaðmirnar á vellinum.
Jæja, höfum ekki áhyggjur af því lengur og látum liðið vera liðið eins og maðurinn sagði. Framtíðin er björt og DT er ekki í skapi fyrir neina vitleysu. Reyndar er maður orðinn svo grannur að það er ekkert víst að rassinn á manni hreyfist eitthvað lengur þegar hann er hristur en enginn ástæða til að vera eitthvað að hafa áhyggjur af því, hnébeygjan verður fjót að bjarga málunum og appelsínuhúðin á doddanum verður farinn að dingla fyrr en varir.
Svo vil ég bara ítreka við fólk að vera duglegt að setja á sig rubberböndin, þau eru án nokkurra tvímæla það allra heitasta þetta sumarid og ekki nokkur sála sem hefur efni á að setja þau ekki upp.
Kossar og knús á alla vanilluíspinnana mína þarna úti! Jibbí!