fimmtudagur, nóvember 25, 2004
Hjartanlega blessaðir og sælir vanilludroparnir mínir. Ég sá mig knúinn til að skrifa aðeins á síðuna mína til að miðla nýjustu fréttum um líf mitt til dyggra lesenda. Það sem er helst í fréttum er að á morgun er ég að fara til Barcelona! Þangað hef ég aldrei komið á minni viðburðaríku ævi og löngu tími til kominn að ég drífi mig.
Í Barcelona er víst prýðisveður og verður eflaust mikið stuð og stemmning. Förum 4 saman, 2 strákar og 2 stelpur, og erum við búin að leigja íbúð í miðbæ Barcelona. Ekkert nema skemmtilegt það og er ég alveg viss um að þetta verður sóðaleg helgi eins og vera ber.
Svo kem ég heim til Islands 21. december og ætla ég að biðja fólk um að vera búið að skipuleggja eitthvað happening þegar doddinn lætur sjá sig. Þá á ég við eitthvað í líkingu við móttökuathöfn í Keflavík og kvöldverð í Perlunni. Minna má það ekki vera og verð ég illa svikinn ef af þessu verður ekki.
Jæja gott fólk, ég ætlaði bara að reyna að spæla ykkur af því að ég er að fara til Barcelona. Hafið það bara gott þangað til næst og verið dugleg að æfa salsann.

laugardagur, nóvember 20, 2004
Góðan daginn hjartagullin mín! Ég hef ekki verið duglegur að skrifa á bloggid mitt undanfarið en það er bara af því að ég hef ekki komist á netið í nokkrar vikur. Er búinn að finna þetta líka fína internet kaffi þannig að hver veit nema ég fari að skrifa aðeins oftar núna.
Stemmningin hefur verið alveg ljómandi undanfarid og bara búið að vera mjög gaman. Ég vil samt þakka sérstaklega þeim vinum mínum sem hafa séð sér það fært að hringja í félagann til útlanda. My man Villi er kominn í Hall of fame hvað það varðar og ætla ég að leigja með honum herbergi á Sólvangi þegar við verðum gamlir, hendi bara kellingunni út eða jarða hana og flyt inn með Villanum. Svo er Ari vinur minn búinn að hringja af og til, Dr. Ottó hringdi nú líka í mig um daginn og áttum við gott og innihaldsríkt samtal. Ottó er guðvelkomið, ef hann vill, að flytja inn með mér og Villa þegar hann verður gamall....eða öllu heldur eldri því Ottóinn er nú ekkert unglamb ;)
Svo sendi Thelman mér nú bréf um daginn og hún má líka kíkja á Sólvanginn með okkur félögunum þegar hana langar. JP má nú eiga það að hann sendir mér email af og til en þar sem ég er aldrei á netinu heldur greyið áreiðanlega að ég sé að gefa feitan skít í hann, nei alls ekki gott fólk, ég elska ykkur öll jafn mikið og hugsa til ykkar á hverjum degi. Líka um þig JP, sérstaklega áður en ég fer að sofa muhahaha!
Bergur bróðir er ekki að standa sig í Danmörkunni og hefur aldrei hringt í mig þó ég hafi hringt allavega tvisvar í hann....svei! ;)
Jæja, annars vona ég bara að allir hafi það gott, ég sendi lots of love á Haukapjakkana mína og vona að þeir standi sig í góðum salsa takti á parketinu.....
Svo ef einhvern langar að hringja í mig þá er síminn minn: 0033 (0) 665462479