<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, maí 31, 2004

Var gærkvöldið furðulegt, furðulegt eða var það kannski bara furðulegt....ég bara veit það ekki svei mér þá. Ég segi ekki annað en að ég fór inn á strippstað og komst í kynni við heimsfræga persónu, ja eða öllu heldur þrjár heimsfrægar persónur.

Sko þannig var að í gær var planið að kíkja aðeins í bæinn og tékka á stemmningunni, svona eins og venjulega bara. Nema hvað að í þetta skiptið naut ég þess heiðurs að fá að sitja í bílnum hans Viktors Dubz ásamt Villanum og Kidda bling bling. Fyrir þá sem ekki vita er kerran hans Hr. Dubz prýdd spinning dubz, svona felgum sem snúast þegar bíllinn er stopp. Þetta er eitthvað sem svarti maðurinn fann upp og er alveg geggjað á rúntinum. Jæja...eftir að hafa farið upp á verkstæði hjá Kiddanum og horft á Viktor á hlýrabolnum sínum að bóna bílinn sinn í svona hálftíma, kíktum við á rúntinn....ég get nú ekki sagt að ég hafi skemmt mér neitt rosalega vel svona framan af kvöldi, það er ekkert sérstaklega hip og kúl að sitja í einhverju aftursæti niður laugarveginn meðan Viktorinn gerir ekki annað en að hanga á bremsunni til að láta felgurnar sínar snúast. Anywayz, ætla ekki að gera lítið úr þeirri ánægju sem felst í því að sjá bílinn sinn á spinning dubz...

Ok, allavega bærinn var ekki með hressasta móti þetta kvöldið og enginn nema ég nennti að kíkja inn á einhverja staði, þar sem ég var í minnihluta hélt ég bara kjafti og lét mig hafa það að sitja sem fastast í bílnum Laugarveg eftir Laugarveg. Svo var eins og Viktorinn væri bara sjálfur orðinn leiður á þessu og fékk þá stórgóðu hugmynd að taka okkur alla með sér á Goldfinger í Kópavogi. Gaurinn í dyrunum þar heldur víst að Viktor sé í Rottweilerhundunum og hleypir honum alltaf frítt inn...jæja, var nú ekkert að fíla þetta, hafði einu sinni áður komið inn á svona stað. Þá var ég 18 ára á körfuboltadjammi og man að á ákveðnum tíma um kvöldið var ég einn inn í herbergi með nakinn strippara fyrir framan mig...well, það er önnur saga og ég segi hana kannski seinna...allavega, þá var ég ekkert að fíla að fara inn á Goldfingerinn enda er ég á móti svona stöðum og ætla ekkert að gera frekar grein fyrir því...

Svo brunuðum við í Kópavoginn og þegar við komum þangað hverja haldið þið að við hittum á Goldfinger??? Jú, gott fólk, við hittum KoRn hljómsveitina eins og hún leggur sig og vorum bara á fínu tjatti við þá félagana. Byrjaði nú allt á því að Kiddi sér Fieldy, bassaleikarann þeirra, tölta á salernið og kallar á eftir kallinum: Hey Fieldy, u wanna check out my ride? Massíf lína sem enginn annar en Kiddi Bling Bling hefði getað komið með. Félagi Fieldy var ekki alveg að treysta sér út með okkur fjórum enda erum við allir hátt í tvo metra meðan hann er algjör stubbur og sagði: Listen guys, u r not gonna jump me or anything...? Sem þýðir á íslensku: Hey hávöxnu sterku gaurar, ætlið þið nokkuð að keyra mig upp í Öskjuhlíð, berja mig í klessu og keyra yfir mig?
Við sögðum náttla bara Hell no og Fieldy sá hvað við erum með góðleg augu og kom út með okkur að kíkja á bílinn hans Viktors. Svo stóðum við þarna úti fjórir með bassaleikaranum í einni frægustu rokkhljómsveit heims og vorum á feitu tjilli. Viktor og Kiddi voru að sjálfsögðu klæddir eins og þeir væru í crewinu hans 50cent og Villinn var með bling í eyranu þannig að kallinn hélt bara að við værum að representa einhverja klíku úr Breiðholtinu. Hefur áreiðanlega bara ekkert vitað að Hafnarfjörður er ghettóið og er ég ekkert að erfa það við hann...

Jæja, eftir smá spjall horfir Fieldy rannsakandi augum á okkur fjóra félagana og segir svo mjög casual: Listen guys, u ain´t got no weed now do u?
Ég lét þetta tækifæri sko ekki úr hendi sleppa, ég hef beðið eftir svona mómenti like all my life og ætlaði ekki að klúðra þessu. Hef nebbla lengi verið að bíða eftir að geta tekið pabbann á einhverja fræga rokkstjörnu sem er á fullu í einhverju rugli...u know kristilegt uppeldi og allt það. Ég var þess vegna ekki lengi að svara kallinum og sagði með allrosalegum ghettóhreim: No, we don´t smoke dat weed dawg. Fieldy hélt greinilega að ég væri hálfviti og horfði á mig nákvæmlega þannig...

....ég segi nú bara hver er hálfvitinn, ekki eins og ég eyði mínum kvöldum high as hell á einhverjum strippstað...

Viktori leið samt eitthvað illa með að eiga ekki smá gras handa félaganum og lofaði að reyna að redda honum einhverju góðu að reykja. Já maður átti nú ekki annað eftir en að vera að díla stjörnunum smá vímu. Viktor er samt greinilega ekki nógu vel plöggaður í undirheimunum því hann gat ekki reddað neinu handa Fieldy. Kannski bara eins gott því mar nennir ekkert að vera díla dóp í frístundum...

Næsta sem við vitum er svo að þeir félagar Monkey og Head úr KoRn kíkja út á okkur og byrja bara að spjalla. Þetta var ekkert smá skrýtið, við eitthvað á spjallinu við KoRn....þetta var algjörlega svona Oh my God aðstaða að vera í og ég er mest hissa á að það hafi ekki liðið yfir einhvern. Samt ekki mig því ég hef aldrei fílað þessa hljómsveit...anywayz, þetta voru fínir gaurar og kvöddu okkur með virktum áður en þeir hoppuðu upp í sendiferðabílinn sem var að rúnta með þá og héldu sína leið. Við kíktum bara aftur í bílinn hans Viktors og vorum meira en lítið kátir með að það væru til myndavélasímar svo einhver myndi trúa okkur...

Eftir Goldfingerinn, kíktum við aftur einn Laugarveg (að sjálfsögðu) og trítluðum svo heim á leið...meira en lítið skrýtið kvöld sem ég held að verði ekki toppað í bráð...

DT over and out....

laugardagur, maí 29, 2004

Represizzle two twizzle félagar...svo er það nýjasta að ég er skotinn í Ragnheiði Gröndal, menn halda kannski að ég sé einhver aumingi núna en mér er bara alveg sama. Raggan er hörkusöngkona og þegar stelpan tekur gamla uppáhaldslagið mitt, Vísur Vatnsenda-Rósu, þá stelur hún hjarta mínu! No doubt...

ps. ef það setur einhver vírus á síðuna mína bara af því að ég fíla Ragnheiði Gröndal þá kem ég og breyti honum í ellismell með einu handtaki!

fimmtudagur, maí 27, 2004

It´s all down 4yall...var að horfa á Malibu´s most wanted og shiiizzzzle my nizzzle hvað hún var fyndin. Annars er ég bara búinn að vera laid back í dag eftir að hafa farið í heimsókn til tannsa í morgun og látið kallinn rífa úr mér endajaxlana...

Helst að frétta að ég dreif mig á Pixies tónleikana í gær og verð að segja að þeir voru bara nokkuð góðir, Frank Black gaurinn lítur samt út eins og Dr. Gunni og er ekkert að skammast sín fyrir tútturnar á sér en hvað um það, þetta voru skotheldir tónleikar og allir skemmtu sér vel. Framundan eru tónleikar með Han Solo þann 3. júní á Gauknum og svo audda Metallica 4.júli. Vænlega (í staðinn fyrir klárlega) snilld. Ég er samt í smá vandræðum þessa dagana, 50 cent félagi minn er að koma til landsins og það er allt útlit fyrir að ég komist ekki. Bölvað kvikindið ætlar að halda tónleikana sína 11. ágúst og ég kem heim frá Bene þann 12. Smá skilaboð til þín fifty: DT´z gonna puff yo ass up if yall don´t bring yo shizzle down da twelth, aight yall...

Þannig að bara eins gott fyrir kallinn að fresta tónleikunum um einn dag því annars tek ég bara upp eldhússaxið og tek félagann í gegn. Hann kemur kannski úr einhverju rough hverfi en það á ekkert í Ghettocity 220...

mánudagur, maí 24, 2004

Sælt veri fólkið, nú er helgin aldeilis á enda runnin og ekkert framundan annað en vinnan hjá sumum og sólarstrandir hjá öðrum. Hvernig var svo helgin? Jú gott fólk, hún var bara alveg skítbærileg og lítið út á hana að setja. Það var shockwawe á laugardaginn en það fyrirbæri stóð ekki alveg undir væntingum. Lumidee vinkona stóð sig samt mjög vel og var fanta flott á sviðinu. Það voru bara frekar fáir og enginn að representa 220. Bærinn var hinsvegar í góðu stuði, fullt af skemmtilegu fólki og fullt af dóti sem maður gæti sagt ykkur frá sem gerðist og fullt af dóti sem gerðist ekki...meira um það í æviminningum mínum sem munu koma út þann 7.apríl 2071...

Þakkir fá Gígjan fyrir að vera alltaf sæt á djamminu, Villinn fyrir að fara vel með stúdentshúfuna mína, Thelman fyrir að vera sæt og bjóða mér í útskriftarveisluna sína, Ellinn fyrir að mæta í Útilífið (þó hann hafi ekkert nennt að spjalla) og hin stórkostlega Han Salo fyrir að halda tónleika fyrir okkur félagana á föstudaginn þó við höfum verið þeir einu sem mættu.

Þeir sem fengu ekki þakkir núna stóðu sig samt mjög vel um helgina og fá kannski þakkir síðar....

föstudagur, maí 21, 2004

Gleðilega helgi kútarnir mínir nær og fjær. Helgin verður vænlega rosaleg og það verður hroða stemmning alveg fram á sunnudag (ég er ennþá að reyna að starta trendum í hinu íslenska máli...vænlega fyrir klárlega og hroða fyrir massa...bara svo fólk sé með þetta á hreinu). Fyrir það fyrsta eru nokkrir góðkunningjar mínir að útskrifast um helgina og vitaskuld ætla ég að fagna því eins og vera ber. Ég ætla samt ekki að drekka enda er ég hættur þeim óskunda fyrir löngu og byrja ekkert aftur fyrr en ég verð eins vaxinn og Hulk. Ég er í missjoni og læt bakkus ekki stöðva mig. Praise the lord halleluja!

Ég verð nú samt víst að vinnna í Útilífinu alla helgina. Þar verð ég kurteisin uppmáluð og þjónustulundin holdi klædd, þegar kvölda tekur breytist ég hinsvegar í partýljón og spæni upp dansgólf borgarinnar í einhverju góðu outfitti. Það er nebbla shockwawe á Broadway á morgun og þar er aðalmálið að vera rétt græjaður. Síðast var ég með camoflage yankees húfu eins og 50cent vinur minn, og var mesti gangzterinn around...

Annars má ég ekkert vera að þessu lengur, ég er upptekinn við að gera ekki neitt þessa dagana og má ekki eyða tímanum í vitleysu. DT fremstur fyrir bragðið...


mánudagur, maí 17, 2004

Sólin bara lætur ekkert sjá sig og maður sér bara fram á það að eiga eftir að hanga í hressaranum og vinna í tribbanum from 9 to 5 það sem eftir lifir vikunnar, well....

Svo er annað sem mig langar að tala um, það finnnst öllum sem hef talað við að Jónsi vinur minn hafi staðið sig frábærlega í Eurovision. Ég verð bara að segja að ég er ekkert sammála því þó ég hafi kannski kinkað kolli og sagt: "já, já, hann var rosa fínn" þegar fólk spurði mig álits. Jónsinn stóð sig bara ekkert sérstaklega, hann var hálf falskur þegar hann byrjaði og svo var hans víðfræga sviðsframkoma ekki svipur hjá sjón. Ég man nú þegar við félagarnir tókum lagið á árshátíð Flensborgar hérna fyrir einhverjum árum og Jónsinn var í hlýrabol sem hann reif síðan utan af sér. Það er alvöru! Þetta er líka hans thing, að vera í hlýrabol og fara svo úr honum. Gaurinn er með myndarlegan sixpakk og á að sjálfsögðu ekki að fela hann fyrir Evrópu.

Nei, ég er sko ekki sammála þeim sem fannst Jónsinn standa sig "rosalega vel", þið hefðuð bara átt að sjá mig í sófanum þar sem ég sat milli móður minnar og föður og sökk æ lengra ofan í sætið mitt eftir því sem hálsæðin á Jónsa varð stærri. Ég var bara nákvæmlega ekkert stoltur af Jónsanum...nada!

Jónsinn er nú samt ágætlega þéttur lítill kútur; hann drekkur ekki, er duglegur í ræktinni og hann býr í district 22O, also known as Hafnarfjörður Ghetto. Málið er bara það að hann stóð sig ekkert vel og það var ekki bara laginu að kenna að hann fékk svona fá stig, þetta var fínasta lag og hefði alveg getað náð lengra. Félaginn var bara ekki í stuði og eins og ég hef alltaf sagt þá var hann alltof mikið klæddur á sviðinu. Tökum bara Ruslönu vinkonu mína sem dæmi, hún sýndi á sér magann og þennan massífa líkama sem hún er búin að vera búa til í ræktinni back in Ukraine. Og hvernig gekk henni??? Jú gott fólk, hún snýtti sér svo rækilega í þessa keppni að annað eins hefur ekki sést síðan Óli grís var að rúlla upp forsetakosningunum hérna um árið.

Það er bara þannig að því færri fötum sem maður er í, því meiri möguleika á maður á að gera góða hluti í lífinu. Þetta á við gjörsamlega allt sem er í gangi þarna úti og fólk ætti fyrir löngu að vera búið að átta sig á þessu.

Nóg um það, við lærum bara af mistökunum og á næsta ári sendum við einhverja bombu í bikiníi og hún á no doubt eftir að rúlla upp þessari keppni...

sunnudagur, maí 16, 2004

Var gaman í bænum í gær?...já!
Það var sko snilld í bænum í gær, kvöldið byrjaði nú bara rólega í góðri Eurovisionstemmningu með mum&dad því enginn bauð mér í Eurovisionteiti...svo reyndar bjargaði Vífill eðalchocko, því fyrir mig og ég kíkti til hans í smá gleðskap. Svo var litli bróðir minn hann Bergur að sötra bjór í einhverju boði út í bæ og hringdi í Þórðinn sinn blindfullur og heimtaði að ég skutlaði honum í bæinn. Af því að ég er svo fallega innrættur gat ég ekki neitað og henti strákpjakknum í bæinn...en það sem hann var leiðinlegur gott fólk! Smá skilaboð til þín litli kútur: Ekki drekka! ;)

Svo var maður bara í bænum það sem eftir lifði kvölds, byrjaði á Sólon þar sem voru samankomnar allar stelpurnar í Ungfrú Ísland þetta árið og ekki dónalegur félagsskapur það skal ég segja ykkur! Svo hringdi hún Miss T í mig og var svo indæl að bjóða mér með sér í þetta líka fína teiti hjá systur sinni sem talar alltaf við mig á frönsku þegar hún hittir mig (hvað er málið með það?), og af því að mér finnst Thelman að sjálfsögðu sætari en þessar Ungfrú Ísland stelpur kíkti ég í örskamma stund með henni en lét mig svo hverfa og hitti hana bara ekkert aftur. Thelma mín, við neglum bara á dansgólfið við fyrsta tækifæri!

Eftir að maður fór útaf Sólon var samt ekki séns að komast inn aftur því það var svo margt fólk í bænum. Ég var þess vegna bara á röltinu með Villanum og Bjarkanum það sem eftir lifði nætur og skemmti mér svona líka konunglega. En ég er líka þreyttur eftir allt þetta rölt og er held ég ætli bara að henda mér í bælið svo ég verði ekki eins og tuska í allan dag. Keep dem dubz spinnin´!

Nýjustu fréttir: Ég er að fara á Metallica tónleikana..sjibbí!

laugardagur, maí 15, 2004

Var ég ekki búinn að segja Jónsa að slaka á æðinni í hálsinum!? Hlustaði hann á mig???...ég held bara ekki!

föstudagur, maí 14, 2004

Að sjálfsögðu ætti ég að vera læra undir próf akkúrat núna en af því að ég er svo góður í að finna mér eitthvað annað að gera en að læra þá sit ég ekki yfir bókunum núna...þetta er eiginlega farið að valda mér smá áhyggjum, prófið eftir svona 20 tíma og ég veit ekki neitt. Koma tímar, koma ráð og ég ætla ekkert að hugsa meira um þetta próf í bili. Svo var verið að bjóða mér í afmæli í kvöld sem er ekki gott, því þá sleppi ég kannski að læra til að fara. Talandi um kæruleysi...

Svo er í gangi konunglegt brúðkaup í sjónvarpinu og þar er sko ekki verið að spara blingið á fólki. Held þetta lið sé allt með einhverjar milljónir dinglandi í eyrunum á sér. Mér finnst það bara gott mál og fólk á endilega að nota milljónirnar sínar í eitthvað snjallt eins og að kaupa sér bling í eyrun.

Allavega, Eurovision er á morgun eins og allir vita en málið er bara það að enn sem komið er hefur enginn boðið mér í Eurovisionpartý. Ég veit ekki alveg hvers vegna, kannski er ég bara svona leiðinlegur en mig grunar samt að það sé af því að ég sé of líkur Jónsa og fólk sé hrætt um að ég rífi mig úr bolnum til að hylla hetjuna mína. Hver sem ástæðan er þá er ég ekki alveg nógu ánægður með þetta en ég er svo easy going gaur að ég ætla ekki að vera með neitt vesen...helv. djöf. fífl að bjóða mér ekki!!! ehhhemmm...eða já....ha?

fimmtudagur, maí 13, 2004

Vá krakkar!!! Ég er orðlaus....erum við að tala um djammsíðu eða djammsíðu??? Hann Bjarki vinur minn, sem ég varð einu sinni brjálaður útí þegar við vorum 7 ára því hann sagði að ég væri bara næstbesti vinur sinn, er kominn með rosalega síðu! Bjarkinn er snillingur og passið ykkur stelpur því hann er á lausu, það þýðir samt ekkert annað en að vera dropdead georgeous því bjarkinn lætur ekkert bjóða sér hvað sem er! Þetta er fullorðins!

miðvikudagur, maí 12, 2004

Húrra fyrir Eurovision! Þessi keppni er auðvitað ekkert nema snilld og þó lagið okkar í ár sé ekkert sérstakt er enginn ástæða til annars en að fylgjast vel með. Í þessum skrifuðum orðum er einhver massa gella frá Monaco að syngja framlag sinnar þjóðar í forkeppninni. Það er nefnilega komið nýtt kerfi á Eurovison þannig að í staðinn fyrir eina stóra keppni eru tveir keppnir í beinni útsendingu. Forkeppni fyrir lélegu þjóðirnar (að sjálfsögðu ekki Ísland) og svo lokakeppni fyrir þá sem geta eitthvað. Ég verð nú samt að segja að ég er nokkuð áhyggjufullur fyrir okkar hönd, Jónsi félagi minn er að vísu kominn með hrikalegan bicep og er flottur ber að ofan, en lagið sem hann syngur er bara ekkert sérstakt. Held ég hafi heyrt það svona 5 sinnum í útvarpinu og aldrei nennt að hlusta á það allt.

Spurning um að Jónsinn hendi sér bara úr bolnum og reyni að fiska atkvæði út á bicepinn, ekki það vitlausasta sem honum gæti dottið í hug...

Það er annars helst að frétta að mér tókst að læra í dag fyrir prófið mitt á laugardaginn og er nú viss um að ég á vænlega eftir að massa það. (ég er sko að reyna finna nýtt orð í staðinn fyrir klárlega, það er að verða pinku gamalt og tími á eitthvað nýtt trend...vænlega er samt ekki alveg málið).

Svo verður allt vitlaust á laugardaginn þegar aðal Eurovisionkeppnin verður haldin, þá verð ég einmitt búinn í prófunum mínum eins og allir aðrir á Íslandi og er stefnan auðsjáanlega sett á downtown one o one að dusta rykið af öxlunum á sér...nú fattar enginn nema Villi, Kiddi og Steini hvað ég er að tala um enda eru þeir thugz og vita alltaf hvað ég er að meina.

Jæja gott fólk, ég er farinn að horfa á Eurovison og nú er bara að krossa fingurna og vona að Jónsi mæti í hlýrabol á laugardaginn...

þriðjudagur, maí 11, 2004

Það er fyndið hvað maður nennir alltaf að gera allt annað en að læra þegar maður verður að vera duglegur. Ég vaknaði til dæmis eiturhress í morgun og ætlaði að tækla bækurnar en datt þá allt í einu í hug að það væri sniðugt að skella sér í sund og synda eins og einn kílómetra eða svo. Mig langar að vekja athygli fólks á því að það er ekki einu sinni gott veður úti. Svo endaði auðvitað með að ég fór ekkert í sund og lærði ekki neitt heldur. Núna er klukkan hálf eitt, ég búinn að vera vakandi síðan klukkan 10 og það eina sem ég er búinn að gera er að borða cheeriosið mitt og kíkja á íþróttirnar í mbl....ef þetta er ekki að lifa lífinu þá veit ég ekki hvað!

Ég er eiginlega bara hættur við að læra í dag, prófið mitt er hvort eð er ekkert fyrr en á laugardaginn og ég er ekki einu sinni viss um hvað á að læra fyrir það. Þessi áfangi er sko kenndur af kennara sem heitir Gérard Lemarquis og er franskur. Gaurinn er mesti snillingur sem ég hef á ævinni kynnst og þegar hann tók upp á því að syngja ljóð eftir Jaques Prévert fyrir framan fullan bekk af fólki hérna í vetur, tryggði kallinn sér algjörlega sæti í hall of fame hjá mér. Þessir tímar hjá manninum eru náttla snilld, maður mætir og tyllir sér og hlustar á félagann segja einhverjar sögur í fyrri tímanum from back in the dayz þegar Rómverjar réðu lögum og lofum og allir töluðu latínu (áfanginn heitir sko Frönsk málsaga)svo í seinni tímanum er kallinn annaðhvort að lesa upp leikrit með þvílíkum tilþrifum eða spila fyrir okkur einhverja geisladiska.

Það er ekki hægt að segja annað en maðurinn sé fagmaður en það eina slæma við þetta er að nú veit ég ekkert hvað ég á að læra fyrir prófið. Gérardinn fer nú varla að biðja mann um að standa upp á borði og þylja upp einhver frönsk ljóð og ekki ætla ég heldur að mæta með headphones og tjilla með Edith Piaf í eyrunum. Ætli það endi bara ekki með að ég hringi í einhverja skvísu úr bekknum mínum og fái hana til að redda mér. Ekki í fyrsta skiptið sem það myndi gerast. Ég er eiginlega eini strákurinn á öðru árinu, eða allavega sá eini sem er í fullu námi, og stelpurnar sem eru að læra þetta með mér eru alltaf að bjarga mér með eitthvað. Enda geri ég ekki annað en að knúsa þær fyrir að vera svona góðar við mig.

En anywayz, ég er farinn að gera eitthvað tilgangslaust og leiðinlegt svo ég þurfi ekki að byrja læra...;)

mánudagur, maí 10, 2004

Já góðan daginn....hann Elli félagi minn sem veit nú venjulega sínu viti, kom með ansi góða ábendingu hérna áðan. Það er náttla alveg rétt hjá honum að ég hef verið ansi ósáttur á þessari síðu undanfarið og neikvæðnin hefur kannski verið full áberandi. Auðvitað gengur það ekkert, það er komið sumar og að sjálfsögðu ætti að vera komið sumar í hjarta dodda timberlake líka. Ég er þess vegna hættur við að verða heimsfrægur bloggari og held ég bloggi ekkert aftur á ensku. Fólkið sem kom á síðuna mína frá útlöndum var líka bara að koma af því ég tók upp á því snjallræði að heimsækja síður hér og þar um heiminn og kommenta hjá blessuðu liðinu. Venjulega eitthvað svona: Hi, this is a great blog, i mean really great blog, i love it! You are very welcome to visit my site too, doddi timberlake. Svo náttla mætti bara liðið og þakkaði fyrir sig. Það sér hver heilvita maður að þetta er svindl og nú er ég semsagt hættur því.

Svo er reyndar langt síðan maður hefur verið duglegur á dansgólfinu og kannski ég hætti bara að skrifa um það líka. Fólkið sem ég dillaði mér mest með hérna í gamla daga er líka farið að snúa sér að öðrum hlutum og hefur enga þörf lengur fyrir leiðsögn on da floor , eins og ég átti nú til að segja þegar DT var upp á sitt besta.

Já, ég er orðinn svo aldraður að ég ætti eiginlega frekar að vera skrifa um nýjustu hræringarnar á fjármálamarkaðnum eða fjölmiðlafrumvarpið. Gera eins og Jón Páll vinur minn sem er sannfærður um að hann sé færasti pistlahöfundur landsins og tjáir sig um allt sem gerist í þjóðfélaginu...hummmm...já ég held ég verði akkúrat þannig gaur...svona gaur sem hefur skoðun á öllu en veit ekki neitt.

Nei grín JP...þú kemur oft með fína punkta.

Svo styttist óðum í að ég verði í rólegheitunum á Benidorm að sólbrenna allhrikalega. Held það séu akkúrat 80 dagar þangað til við förum saman nokkrir félagarnir til að bera bodylotion á hvorn annan. It´s gonna be great! Svo kem ég heim í eina og hálfa viku og held svo beint til France til að dvelja þar í heilt ár. Ég er nú ekki að fara af því mér finnist fólkið svo leiðinlegt hérna á Íslandi, það er sko fullt af fólki hérna sem ég á eftir að sakna mikið. Það bara þýðir ekkert að hanga alltaf í því sama og alveg nauðsynlegt að breyta til. Ég bíð reyndar bara spenntur að sjá hverjir koma að heimsækja mig sem eru búnir að segjast ætla að gera það...hef samt mikla trú á öllum :)

Ég er allavega steinhættur að vera fúll út í fólkið sem kommentar ekki hjá mér enda var það nú alltaf meira í gríni en alvöru, kannski bara eins og allt annað sem ég hef hent inn á þessa síðu. Að sjálfsögðu myndi það nú gleðja mitt litla hjarta ef einhver myndi nenna að kommenta svona once in a while því annars er hætta á að bitri maðurinn komi aftur upp í mér og það er lítið fútt í því. Well, ég er farinn að gæða mér á dýrindis kvöldmat sem minn elskulegi faðir var að útbúa handa mér...ekki halda samt að pabbi sé einhver voða duglegur kokkur, held hann eldi svona fjórum sinnum á ári. Er eiginlega stórviðburður í hvert skipti....

sunnudagur, maí 09, 2004

Salut à tous mes admirateurs dans le monde entier! Mes admirateurs se précipent des quatre coins du monde pour venir
m'admirer en ce moment. Étonnant? Pas du tout! Mon blog est si bien fait qu´on ne peut que venir me rendre visite de temps en temps. Il s´agit de DT a.k.a. le mec fou du terrain de dance!!!

Jæja ekki meira um það.....DT er aftur búinn að skipta um útlit á síðunni sinni, eða allavega það fer að detta inn á allra næstu mínútum, vegna þess að núverandi útlitið er dáldið overdoing it.

And to my english speaking fans all around the globe I just wanna say: don´t forget the milkshake and be sure 2 be well lubricated in floading babylotion from johnson&johnsons!

Annars er nú ekki eins og fólk sé duglegt að skoða síðuna mína, ég var að fá mér svona teljara um daginn og það er rétt að maður slefar yfir 30 heimsóknir á dag! Það er náttla bara rugl af því ég hef verið að lesa sum bloggin þarna úti og þau eru til skammar...eða svona því sem næst. En hvað um það, fólk kann ekki gott að meta fyrr en það er búið að missa það...u know, enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur and all dat crab og er doddinn ykkar bara að hugsa um að hætta þessu í bili. DT has left the building...

föstudagur, maí 07, 2004

Well, welcome 2 da DT spot....now for the first time DT writes his blog in english....of course I´m only doing this for my foreign fans all around the world who have, up till now, been experiencing some problems in understanding what I´m saying on my site...but u don´t have 2 worry about dat anymore my honeyblended sucarpuffins because the dancer of all dancers and the man who always knows what ´s considered to be hip and cool by dem youngsterz, Mr. Doddi Timberlake a.k.a. doddinn, has decided to go public!!!
You guys don´t have 2 worry about how 2 act on the dancefloor anymore because doddinn is gonna tell you all about it....just lay back and let DT enlight you about the hipshake, the assshake and last but not least, the very trendy shouldershake.

Now, when entered on a dancefloor the most important thing is to play it cool....wearing a white sweatband on the right lower arm and old school sneakers would be a good start. Then when the music starts it´s very important to begin by dusting your shoulders, that way you show everybody on the floor that you are both hip and cool, with all the trends just lining up waiting to be displayed. Remember, you may not been seen dancing to just any music. That can affect your whole assshake performance and wreck your night out in town. Always make sure you´re dancing 2 the newest beats from the hottest artists....kelis´s milkshake never goes out of style and for u beginners out there, it´s a nice tune to start with...

Now, not everybody is destined 2 look good on the dancefloor so if people around you are giving you a strange look or even laughing at you, well then you are probably not one of those persons and should consider to continue to spend your saturday nights in the bowling alley...
The dancefloor is a holy place and you don´t wanna disrespect it by making it look bad with you on it. When DT was growing up in da hood of Tjarnarbraut 3, in the district 220 people didn´t live long if they didn´t know dem basics on da floor if yall know what i mean....like my homies used to say: if u ain´t fly on da floor, u ain´t never gonna score...So in order 2 be as fly as MJ´s moonwalk from back in the dayz, u guys just all gotta let doddinn tell u what to do and then do your best. It´s a jungle out there and DT only wants the best for his chocholate sweatened honeydips all around the world....

Well my little sucarcubes, I´m not gonna make it any longer...just remember 2 apply some babylotion from Johsons&Johnson before you head 4 da dancefloor....it makes you smell like a spring flower and keep beautiful people around you all night long....

fimmtudagur, maí 06, 2004

Gott kvöld litlu dúllurassgötin mín, það er gjörsamlega allt að verða vitlaust hjá DT um þessar mundir og skyldi engan undra. Pjakkur allra landsmanna Mr. Doddified hefur verið að standa í illdeilum við unga stúlku sem hann þekkir og hún er búin að gera honum lífið leitt svo um munar. Við erum að tala um símtöl um miðjar nætur, hatemail á internetinu og allan pakkann. Hef hana meira að segja grunaða um að hafa hringt í aldraðan föður minn og andað í símann en anywayz, nú erum við semsagt búin að sættast og ég hef ákveðið að biðjast hér með afsökunar á að hafa ráðist svo gróflega á sjálfsmynd þessarar ungu konu í blóma lífsins. Vitaskuld er hér um að ræða hana Thelmu vinkonu mína sem er aldrei neitt annað en yndislegheitin uppmáluð og á ekkert skilið að fá svona meðferð...

...já, hún miss T er sannarlega fyrirmynd flestra kvenna sem draga andann á þessari jörð enda ber hún af í þokka og fögrum limaburði. Á dansgólfinu hreyfir hún sig með fimi kattarins og hreysti fjallaljónsins, hún ilmar einnig ávallt óaðfinnanlega og setur trendin í skótískunni. Þegar ungir sveinar hugsa um Thelmuna er eru áhrifin lík og að liggja á framandi sólarströnd og sötra ískaldan ávaxtakokteil, sæluhrollur fer um líkamann og maður verður allur mikið hressari. Þegar Thelman heiðrar einhvern með nærveru sinni, hagar viðkomandi sér líkt og að hann hafi unnið í happadrætti. Menn hoppa um af kæti og kunna sér engin læti. Svo er Thelman vaxin eins og grísk gyðja og er líkamsbygging hennar oft notuð sem viðmið við hinn fullkomna kvenlíkama. Vinir DT í ghettóinu eru líka allir sammála um að miss T sé fine as hell og engin big boody type....Að ég hafi svo mikið sem leyft mér að gera að því skóna að Thelman væri nokkrum grömmum yfir gelluþyngd, er auðvitað rakið hneyksli og hef ég ekki skammast mín jafn mikið fyrir nokkurn hlut á ævinni.

Það er í rauninni ekki hægt að segja annað en góða hluti um þessa elsku enda er hún með sixpakk sem jafnast á við það besta sem gerist og fullkomnar neglur.

DT vonar bara að Thelman taki þessa afsökunarbeiðni gilda og lofar að hætta að leggja hana í einelti...

miðvikudagur, maí 05, 2004

Góðan daginn, DT er mikið að hugsa þessa dagana og ekki um svo ómerkilega hluti skal ég segja ykkur. Það er samt alveg ótrúlegt hvað ég nenni að skrifa inn á þetta drasl því gáfnafar mitt og menningarstig er þvílíkt að ég ætti raunar að vera að eyða orkunni í eitthvað gagnlegra en að sjá einhverjum pjökkum úti í bæ fyrir skemmtiefni. Munið bara að DT er að gera þetta fyrir aðdáendur sína víðsvegar um heiminn og væri löngu hættur þessu ef fólk væri ekki að alltaf að væla í honum um að skrifa eitthvað sniðugt.

Aha....allavega þá hefur DT verið í djúpum hugleiðingum undanfarið og mikið velt fyrir sér who 2 trust and who 2 bust ef þið vitið hvað ég er að fara...sá grunur hefur nefnilega verið að læðast að mér síðustu misseri að fólk sé bara að hanga með doddanum af því hann er svo vel plöggaður í öllu því heitasta hjá unga fólkinu (babylotioni frá J&J, hip-,ass- og shouldershaki og löðrandi barnaolíu svo fátt eitt sé nefnt). Nú er nefnilega vinur DT til margra ára og fyrirmynd á dansgólfinu, Hr. Barnapervert Michael Jacksson eða MJay eins og ég kalla hann stundum, í þeim ljótu málum að eiga enga alvöru vini og hafa bara fólk í kringum sig sem er á eftir peningunum hans. Þetta er ekki ólík staða og DT er í um þessar mundir, nema auðvitað að doddinn er staurblankur og fólk er bara á eftir öllum nýju danssporunum sem kallinn er að provida, og fékk þetta mig til að staldra aðeins við í amstri hvunndagsins og velta fyrir mér hinu raunverulega gildi sannra vina. Vina sem kalla mann ekki harðfisk og vina sem væna mann ekki um steranotkun, já vina sem verða ekki alveg vitlausir þegar maður bendir þeim kurteisislega á að ekki sé ráðlegt að fá sér meira majones á subwayinn sinn og vina sem taka því vel þegar maður segir að þeir minni sig mest á lítinn grís...

Lífið er ekkert auðvelt börnin mín og ef ekki á illa að fara er ykkur ráðlegast að sýna DT tilheyrilega virðingu því annarz kemur hann bara og breytir litlum grísum víðsvegar um district 220 Hafnarfjörður í svínasnitzel!!!

Ehemmm...maður ætlaði nú ekkert að missa sig í einhverjum biturleika hérna en málið er bara það að ef maður er ekki ready with the gun þá verður maður að vera ready 2 run eins var stundum sagt í ghettóinu hérna back in the dayz. Hafið þetta bara í huga litlu kútar og ef þið ætlið að taka eitthvað Mjay stunt á doddann þá er mér að mæta!

sunnudagur, maí 02, 2004

Góðan daginn litlu hjartaknúsararnir hans dodda síns. Nú er helgin bara liðin og það án þess að maður hafi gert mikið af viti. DT lét reyndar taka sig helvíti hart í óæðri endann 1. maí þegar maður var bara kallaður í Útilífið að vinna á einhverjum lúsar helgarvinnulaunum og engum hátíðartaxta....það mætti bara halda að DT væri whitetrash af verstu sort og kannski bara algjör kjáni líka miðað við hvernir er komið fram við hann á stundum, svei mér þá litlu kútar! Annars var þetta bara rólegheitahelgi hjá uppáhaldsbloggaranum ykkar sem er nú alveg hættur að nenna að standa í þessu, ég meina þegar ég byrjaði á þessu var ég viss um að by now yrði ég orðinn frægasti netskrifari landsins og cashið farið að streyma inn en því er nú öðru nær gott fólk. Þetta lið sem er að skoða síðuna mína kommentar ekki einu sinni á snilldina sem ég læt út úr mér og er ekkert að spara óvirðinguna við doddann sem grætur sig í svefn á hverju kvöldi og vaknar með ekkasogum sem lagast ekki fyrr en eftir 2 diska af Cheeriosi og prótínsjeik.

En verum ekki að eyða fleiri orðum í það, DT er vanmetinn listamaður og þó kagglinn eigi flottustu síðuna í bransanum eftir að Bergurinn tók sig til og mixaði hana lítillega, þá virðist fólkið þarna úti ekkert vera að átta sig og lætur bara eins og doddinn sé ekki til.

En svo er það nýjasta að Thelma vinkona mín er eitthvað ósátt við DT þessa dagana því hann var að lýsa yfir áhyggjum sínum á að hún kæmist ekki í bikiniíð sitt á Costa del Sol í útskriftarferðinni sinni því hún væri orðinn svo "stór"... Að sjálfsögðu meinti ég það ekkert þannig og þó ég kalli hana stundum litla grísinn hans dodda síns þá er ég ekkert að gefa í skyn að hún sé orðin feit. Thelma mín, þú ert alveg flott eins og þú ert og þarft ekkert að breyta þér þó þú þurfir kannski að kaupa þér ný föt svo þú passir í þau hehe ;)

Nú verður greyið litla áreiðanlega alveg vitlaust út í doddann sinn en ég er nú ekkert hræddur við thelmuna enda er ég mikið sterkari en hún og lem hana bara í nautahakk ef hún er með eitthvað múður....

Góðir Íslendingar, áður en ég starta fleiri riotum á netinu ætla ég bara að segja þetta gott en bið fólk bara um að slaka ekki á í magaæfingunum if u know what i mean....hehe




This page is powered by Blogger. Isn't yours?