<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, júlí 28, 2004

Jæja, eplalöguðu appelsínueftirréttirnir mínir, nú eru rétt rúmir 12 klst. í að Doddi Timberlake skelli sér til Benedorm með félögunum og geri allt vitlaust á ströndinni. Uss suss suss  hvað það verður gaman! Engin Sólon fílingur á Spáni skal ég segja ykkur....

Doddi Timberlake er farinn í sólina á Spáni og kemur sætur og sumarlegur til baka, ég er nú hræddur um það!

Á DT eftir að detta í það? Endar hann með eina breska og eina sænska upp á hótelherbergi? Verður honum hent í jailið fyrir óspektir á almannafæri eða verður DT kannski bara étinn af hákarli? Allt þetta og meira til í næstu færslu..........en núna er ég out living la vida loca og má ekkert vera að þessu rugli...

Annars er allt gott að frétta and I love u all.......

þriðjudagur, júlí 20, 2004

Komiði sælar demantsblönduðu ferskvatnsperlurnar mínar. Eins og ég hef margoft nefnt á þessari síðu allra landsmanna er oft erfitt að vera doddi timberlake. Ég er ekki frá því að eftir að frægðin fór að gera vart við sig og myndir af DT fóru að prýða strætóskýli og auglýsingaskilti hér og þar um bæi og borg, hafi lífið aldrei verið jafn erfitt. Maður er hundeltur af brjáluðum aðdáendum like twenty-for seven og getur hvergi um frjálst höfuð strokið. Þetta er eiginlega að verða óþolandi, DT var til að mynda á góðu rölti í Kringlunni með crewinu sínu um daginn og var bara áreittur af æstum aðdáendum. Mér var bara farið að líða eins og Nylon.
 
Svo er eitt sem ég er alveg miður mín yfir, eiginlega er ég alveg í rusli og veit ekki alveg hvað ég get gert til að bæta stöðuna. Þannig er að persónulegur vinur minn, 50 cent er að koma til landsins og það er ekki sála að fara kíkja á kappann. Það finnst mér vera hneyksli og er ég alveg viss um að ástæðan er bara sú að Fifty vinur minn er svartur, jafnvel svartari en DT þó ég fullyrði alls ekkert um það, og er hér á ferðinni hrein kynþáttamismunin. Ég meina Pixies með fituhlunkinn Frank Black fylltu Kaplakrika tvisvar, KoRn fyllti Höllina tvisvar og nú stefnir allt í að mín fyrrverandi, hún Pink, geri nákvæmlega það sama. Og hvað á þetta lið sameiginlegt? Jú, gullhúðuðu sykursmákökurnar mínar, þau eru öll jafn hvít og vanilluís og fara létt með að traðka á svarta manninum þegar hann reynir að gera góða hluti í þessum harða heimi.
 
Hvað á greyið hann Fifty að halda, haugur af hljómsveitum búinn að koma og gera allt vitlaust á Íslandi í sumar og kallinn eitthvað hey frábært, rúlla mér upp einni jónu og skelli mér til Íslands en svo er fólk bara með stæla og nennir ekki að kíkja á strákinn. Ég á ekki til orð, alls konar skítablesar eins og gamlingjarnir í Deep Purple og kántríkóngurinn Kris Kristofferson eru bara einhverjar hetjur þegar þeir koma og fylla höllina líkt og þeir væru Benny Hinn og allir Íslendingar í Krossinum...
 
Hvers konar óvirðing er þetta eiginlega? Á grey maðurinn bara að koma til Íslands og spila fyrir tómu húsi? Er nema von að maður spyrji, hér er að koma alveg úrvals thug sem hefur skellt þeim fleiri en einni og lætur sér fátt fyrir brjósti brenna og svo ætlar enginn að mæta. DT er ekki skemmt...


sunnudagur, júlí 11, 2004

Komiði sælir hjartalöguðu kalkbættu trópííspinnarnir mínir, það er nú aldeilis langt síðan ég hef glatt lítil hjörtu með nokkrum vel völdum orðum á heitustu netsíðu landsmanna og væn ástæða til að gera á því bragarbót. Það hefur nú ýmislegt á daga mína drifið síðan ég heiðraði netheiminn síðast með nærveru minni. Engin ástæða svo sem til að eyða fleiri orðum í það, þó ég sé stjarna á ég jafn mikinn rétt á einkalífi og hver annar almennur borgari og er mér ekkert um einhverja forvitni. Það er auðvitað gjörsamlega óþolandi að vakna upp við myndavélaflass á hverjum morgni og tölta svo í cheeriosið á meðan maður les einhverja upplogna frétt um sjálfan sig og Beyoncé í Fólkinu...

...svona sem tilraun til að kveða niður allar kjaftasögurnar sem ganga þessa dagana um mína persónu hef ég því ákveðið að gefa út eftirfarandi yfirlýsinu:

Gott fólk, í framhaldi af atburðum síðustu daga og fjölmiðlaumfjöllunar þeirrar sem fram hefur farið sér Doddi Timberlake sér ekki annað fært en að svara ásökunum þeim sem fram hafa komið í ljósvaka-og prentmiðlum undanfarin misseri í hans garð. Doddi Timberlake neitar því staðfastlega að eiga von á barni með bandarísku country stjörnunni Dolly Parton. Samband hefur ekki verið þeirra á milli í þó nokkurn tíma og allt tal um annað fellur um sjálft sig. DT neitar að auki að hafa átt í tilfinningaþrungnu sambandi við hina þeldökku Beyoncé Knowles og þvertekur fyrir að hafa dvalið á sveitasetri hennar í Suður-Wales undarfarnar vikur. DT var staddur í Wales í tengslum við kynningu á nýútkominni ævisögu sinni "Líf mitt í skugga Justin" og tengdist það téðri Beyoncé ekki á nokkurn hátt. Að auki sér Doddinn ástæðu til að mótmæla harðlega þeim aðdróttunum sem hafa verið gerðar í hans garð í tengslum við meint samband hans við fyrrum einræðisherra Íraks. DT viðurkennir að hafa dvalið sem gestur Saddam Hussein í 10 daga sumarið 2002 í einni af höllum hans í Bagdad en neitar öllum ásökunum um að reka hryðjuverkabúðir í nágrenni Hvaleyrarvatns. DT kom fram í einkasamkvæmi sem Hr. Hussein hélt og töluðust þeir stuttlega við. Engin stjórnmál voru rætt þeirra á milli. Doddinn telur allt slíkt tal ábyrgðarlaust gagnvart þeim fjölmörgu sem bera traust til hans sem opinberrar persónu og hugleiðir að leita réttar síns í samráði við lögfræðinga sína.
Að lokum vill Doddi Timberlake einnig leiðrétta þann leiða misskilning að hann hafi verið ástæðan fyrir sambandsslitum Justin og Britney, DT viðurkennir að hafa refsað Britney rækilega en var það gert með fullu samþykki Justin og gerðist það töluvert áður en samband B&J fór út um þúfur.
Virðingarfyllst, Doddi Timberlake


Jæja vinir, þá hafið þið það og vonar maður bara að fólk fari aðeins að gæta sín þegar það slúðrar um doddann sinn því helmingurinn af því er bara bull og hitt er vitleysa. Peace out niggaz...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?