mánudagur, ágúst 08, 2005
Þá er Serbinn fljúgandi Kuki big dick kominn til landsins til að þjálfa okkur Haukaskaufa. Strákurinn atarna er hressari en hóra á hálendinu (má kannski ekki segja svona?) og með fullt af æfingum í farteskinu sem hann hefur grafið upp úr einhverju serbnesku fangelsi. Veit ekki hvernig ég lét hafa mig út í þetta aftur. Ætlaði bara að vera fullur í allan vetur og byrja kannski að reykja en nú sé ég fram á að vera með glansandi sixpakk allaveganna fram í mars. Þetta er nú ljóta ástandið en ekkert við þessu að gera annað en að gera þetta bara almennilega og fá blóðbragð í munninn eftir hverja einustu æfingu. Mín speki er allaveganna sú að fyrst maður er að standa í þessu á annað borð er eins gott að leggja sig allan fram.
Hvað um það, svo er spænska senjoritan mín að koma í heimsókn á morgun. Hún á að vera í þrjár vikur en ég er hræddur um að ef veðrið helst svona leiðinlegt fari hún heim með fyrstu vél og hætti með doddanum sínum. Held reyndar að það sé spáð 15 stiga hita og sól á morgun og hinn þannig að það ætti að sleppa.
Svo langaði mig að tala aðeins um Dr. Ottó vin minn. Við Ottó höfum æft saman körfubolta í mörg ár og mér hefur alltaf líkað afskaplega vel við þennan föngulega pilt.
Einu sinni var Ottó pokastrákur í Fjarðarkaupum og hjólaði í vinnuna en nú er hann tannlæknir og á nýjan Bensjeppa. Ottó var líka einu sinni í sambúð en nú er hann jafn einhleypur og tíkall. Ottó kann að dansa, drekkur whisky með klaka og reykir vindla, spilar golf og fer í veiði en síðast en ekki síst á Ottó Armani jakkaföt úr Sævari Karli og skó í stíl. Ottó er semsagt hinn fullkomni maður og þar að auki einhleypur. Er vel ættaður og kann að hegða sér á mannamótum auk þess að kunna bókina Súpersex spjaldanna á milli. Þegar allt ofangreint er tekið með í reikninginn ætti hverjum manni að vera ljóst að Ottó verður að taka þátt í Bacchelor Íslands. Hann hefur allt til að bera og væri það glæpur fyrir allar stelpurnar sem taka þátt ef Ottó verður ekki verðlaunin.
Þá hef ég komið því á framfæri og vona nú bara að Ottó taki þátt fyrir doddann sinn og geri alla Haukaskaufana stolta.

mánudagur, ágúst 01, 2005
Jæja, verslunarmannahelgin búin. Fór í gær til Kidda dubz í afmælisgrill. Hann var myndarlegur kallinn, búinn að láta konuna sína grilla lamb og kjúlla og bauð heim í gleði. Það var ljómandi skemmtilegt, svokölluð eðalstemmning sveif yfir vötnum og þakka ég Kiddanum og Thelmu kærustunni hans innilega fyrir gott boð. Tók svo rölt í bænum með Villa kút í góða veðrinu og fórum við beint í röðina á Oliver til að vera spottaðir af fólkinu sem keyrði niður Laugarveginn. Þegar x margir bílar voru búnir að taka eftir þessum tveimur myndarlegu mönnum létum við gott heita og skonsuðum okkur úr röðinni. Maður lætur nú ekkert sjá sig þarna inni þó maður láti fólk halda að maður sé hnakki. Hvað um það. Var svo kominn í háttinn um þrjú leytið.
Þessa dagana sit ég svo sveittur yfir B.A. verkefninu mínu í frönskunni enda ætla ég að útskrifast um jólin áður en ég legg S-Evrópu undir mig...og svo heiminn. Ég hef verið lúsiðinn við þetta og ætla að halda áfram eins og hestur í ágúst. Hættur í vinnunni til að gera þetta og allt. Svo fæ ég gest frá útlöndum eftir 8 daga og hlakka mikið til.
Jæja gúmmígottin mín, best að ég helli mér í frönskuþýðingarnar. Je vous aime tous et je vous souhaite beaucoup de bonheur!