<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, nóvember 25, 2005

Já við töpuðum enn einum leiknum og að þessu sinni á móti Þór. En gott fólk, var mig að dreyma að ég hafi hitt úr öllum 4 vítaskotunum mínum í leiknum? Á KKÍ tölfræðinni stendur að ég hafi verið með 3 ofan í af 4. Gerði einhver mistök á ritaraborðinu og kannski í sjálfri leikskýrslunni? Það er mjög alvarlegt ef svo er enda hefði það breytt úrslitum leiksins enda hefðum við þá verið 2 stigum yfir í stöðunni 73-72 en ekki einu....

Ég er kannski asni en mér finnst gjörsamlega fáránlegt að fólk geti ekki tekið eftir því hvort vítaskot fer ofan í eða ekki. Ég veit að það er í mikilli tísku hjá tölfræðingum að skrá ekki stigin sem ég skora en hvað í fjandanum er málið Þetta er til á myndbandi þannig ef að einhver velkist í vafa um þetta þá getur sá hinn sami skoðað það.

Ef þetta stig hefur ekki verið skráð í skýrsluna er um alvarleg mistök að ræða sem gætu hafa kostað okkur sigurinn. Annars hefði eitt stig ekki átt að skipta neinu máli því við áttum að gera út um leikinn í fyrri hálfleik.

Jæja, ég er farinn til útlanda og bið eðaleintökin mín afsökunar á því að geta ekki tekið þátt í næsta leik. Mér finnst það mjög leiðinlegt í ljósi úrslitanna í gær. Gerið þið það að vinna næsta leik. Við verðum!

fimmtudagur, nóvember 24, 2005

Kæru vinir. Mikilvægur leikur mun fram fara á Ásvöllum kl. 19. 15 í kvöld. Við ætlum að vinna.

þriðjudagur, nóvember 22, 2005

Jæja, ætla byrja á því að þakka Rana fyrir vísuna og biðja blessaðan garminn afsökunar á að hafa haft hann fyrir rangri sök. Hélt nefnilega að hann hefði potað í augað á mér á æfingu í gær en svo kom í ljós að Captain Sævar var sekur um það en ekki Raninn. Var svo sem hægt að vita það fyrirfram....

Ég hef annars staðið í ströngu undanfarið við að svara símtölum erlendra fréttamiðla varðandi brotthvarf Vilhjálms Skúla Steinarssonar úr liðinu. Hef svarað samviskulega og búið að vitna í mig á hinum og þessum tungumálum, til dæmis á arabísku þar sem mátti lesa þetta: "kam´raka al jazzer mohimmid" og "shukran m´assalama hembd´allah".
Svo er ég að hugsa um að fara af stað með smá seríu á síðunni minni þar sem ég fjalla um eðaleintökin mín úr Haukaliðinu og jafnvel að hugsa um að byrja á að tala um Lúlla e.þ.s. það þarf meira en brotna tönn til að stoppa mig e.þ.s. 1988 mínus 1980 eru átta ár, má það þó maður sé fullur? e.þ.s. Hr. Hér og Nú e.þ.s. Naglinn.

Lúlli er maður sem hefur battlað á götunni frá blautu barnsbeini og með ótrúlegri þrautsegju náð að koma sér úr the projects eins og svarti maðurinn myndi orða það. Hann er nú ungur maður á uppleið og vinnur í KB banka þar sem hann ku standa sig með prýði. Lúlli er þekktur fyrir hógværð og er ekkert að láta fólk finna fyrir því þó það komist ekki með tærnar þar sem hann hefur skuggann sinn hvað varðar fimar hreyfingar á körfuboltavellinum. Lúlli er samt ekkert lamb að leika sér við og hefur margoft legið við að hann sæti inni fyrir ýmis brot á hegningarlögum. Hann var einu sinni næstum því sekur um kynferðisbrot en fyrir einhverja ótrúlega heppni bjargaðist hann frá því. Svo var hann búinn að vera svo leiðinlegur við Óskar youngster e.þ.s. streetfighter e.þ.s. ef þú ert með kjaft hringi ég í Villa Leví, í allan vetur að Óskar réðst á hann í miðri æfingu í fyrradag og braut í honum tönn. Lúlli sýndi þá að hann er nagli og gerði bara það sem hann lærði í fangelsinu; spýtti blóði og hélt áfram. Veit reyndar að Lúllinn er ánægður með þessa brotnu tönn því nú getur hann fengið sér gulltönn eins og LJ og verið old school og flottur. Lúlli lítur líka nákvæmlega eins út og erkitýpan af bandarískum hermanni og varð meira að segja fyrir aðkasti í Belgrade þegar hann setti upp Pilote-gleraugun af þeim sökum. Verður gaman að sjá kappann með gulltönn....

Jæja, gott fólk. Það verður víst engin vísa kveðin hjá mér í dag enda erfitt að toppa vísuna hans Rana en speki dagsins er eftirfarandi: "Ef þú kannt góða vísu, ertu ekki í krísu"

miðvikudagur, nóvember 16, 2005

Jæja, gott fólk. Nú er það aldeilis svart. Skonsugleypirinn og eðalkúturinn Villi Naut hefur lagt skóna á hilluna vegna þrálátra meiðsla í hné. Allaveganna í bili. Hann hringdi í mig með grátstafinn í kverkunum í gær og greindi mér frá þessum tíðindum.

Áfall fyrir íþróttina!...Stjarna hrapar!...Grátleg endalok!...Ég sem var byrjaður að banka á dyrnar hjá Detroit!....svona hljómuðu fáeinar af þeim fjölmörgu fyrirsögnum sem prýddu dagblöð í dag og er ljóst að hinn íslenski íþróttaheimur er í sárum. Villi greindi frá því í viðtölum sem birtust í morgun að ákvörðunin um að leggja skóna á hilluna hafi verið ein sú erfiðasta á ævinni. Sagði hann til dæmis orðrétt í Ísland í bítið: "Þetta er auðvitað alveg hrikalegt, maður er búinn að vera japla stera af og til í tvö ár til að láta helvítis kanana í deildinni finna fyrir því og svo gerist þetta. Mér hefur aldrei liðið svona illa og þetta minnir mig bara á það þegar ég þurfti að velja á milli þess að fara í NBA draftið eða í Stjörnuna." Þegar Villi var spurður hvað nú tæki við vildi hann ekki ræða það mikið en hafði þó þetta að segja við aðdáendur sína víðsvegar um jarðarkringluna: "Bíðið þið bara. Menn eins og Vin Diesel, Benni Tarfur, Van Damme og Scwartzenegger eru bara kettlingar. Ég hef ýmislegt á prjónunum og bið fólk bara að bíða rólegt. Þið eigið eftir að vita hvað ég meina þegar þið sjáið mig eftir 2-3 mánuði." Þegar Villi var spurðu hvort þetta tengdist nýrri vinnu hans sem íþróttaráðgjafi í líkamsræktarstöðinni Hreyfingu neitaði hann að svara og bað fólk um að virða einkalíf sitt. Villi var að lokum spurður hvort hann héldi að hann ætti afturkvæmt á körfuboltavöllinn í nánustu framtíð og hvort hann gæti hugsað sér að snúa sér að þjálfun ef ferillinn væri sannarlega á enda. "Ég hef alltaf sett mér það markmið að ganga sáttur frá borði í hvaða leik sem er og ég er ekki sáttur að þurfa núna að setja spilin í stokkinn og sitja hjá. Ég lifi fyrir einn dag í einu og þakka Guði fyrir að eiga góða fjölskyldu og vini sem styðja mig á þessum erfiðu tímum. Hvað spurninguna um þjálfunina varðar þá vil ég ekki svara henni að svo stöddu, það er ýmislegt í farvatninu en ég get ekkert sagt á þessu stigi málsins."

Margir virtustu fjölmiðlar heims hafa gert tíðindunum skil í blöðum og ljósvakamiðlum. Þannig skýrði vefútgáfa Times Magazine frá ákvörðun Villa snemma í morgun undir fyrirsögninni "Great man, bad knee; young icelandic prospect quits the game he loves" og í síðdegisútgáfu The Herald Tribune prýddi mynd af Villa baksíðuna undir fyrirsögninni "No more jumping for Mr. Jumpstep". Þar mátti meðal annars lesa þetta "The icelandic top division player and international star, Vilhjalmur Stenr Vihjlmsson, announced late last night that his career had reached an end due to serious knee injuries. He commented that this was a diffucult decision to make and that he hoped to do well on other battlefields than the basketballcourt" Evrópskir fjölmiðlar létu heldur ekki sitt eftir liggja og í aukablaði Le Monde var lítil grein á forsíðu um ákvörðun Villa. Belgíska blaðið Le petit feuillton sem kemur út í frönskumælandi hluta Belgíu birti langa grein um Villa undir fyrirsögninni "Joueur islandais met fin à sa carrière" þar sem meðal annars kom fram að Villi væri alinn upp í litlum bæ á Íslandi og hefði öðlast frægð fyrir þykkt hár og óútreiknanlegt fas. Bandaríski spjallþáttasjórnandinn Jay Leno gerði sér sérstaka ferð til Íslands í dag og tók viðtal við Villa sem mun birtast í kvöldþætti hans annað kvöld. Við komuna til Íslands tjáði Jay Leno fréttamönnum RUV að hann væri ennþá að jafna sig á fréttunum og ætti í rauninni ekki til orð "Ég er mjög hissa, eiginlega í sjokki" sagði hann áður en hann settist í glæsibiðreið frá Nordica Hótel sem hafði verið send eftir honum. Fréttir bárust svo af því seint í kvöld að þjóðarleiðtogar heimsins hefðu hver á eftir öðrum sent Villa skeyti og herma óstaðfestar fregnir að Angela Merkel, hafi sent Villa sérstaklega hjartnæma kveðju þar sem fram hafi komið að hún óskaði Villa alls hins besta og vonaðist til að fá tækifæri til að hitta hann undir kertaljósi og rómantískri tónlist sem allra fyrst.

Það er því ljóst að þessi ákvörðun Villa hefur farið sem eldur í sinu um heiminn og vonandi að Villi hlusti á þá fjölmörgu aðdáendur sem eiga sér þá einu ósk að hann snúi aftur á körfuboltavöllinn þegar hann hefur náð sér af meiðslunum.

mánudagur, nóvember 14, 2005

Jæja gott fólk, ég var eitthvað bitur í morgun þegar ég skoðaði tölfræðina úr leiknum í gær. Þar hafði slæðst inn villa sem tekur ekki að tala um. Iss, hvað er ein þriggja stiga karfa á milli vina? Svo vil ég biðja tölfræðinganna á leikjum afsökunar á þessu bræðiskasti, þið eruð prýðiseinstaklingar og þó þið séuð oft ekkert að fylgjast með leiknum og í góðu stuði að segja sögur frá helginni eruð þið vænstu skinn. Það gerist samt ekkert á hverjum degi að ég skori þriggja stiga körfu í andlitið á Magga Gunn og er það eina ástæðan fyrir þessari hégómagirnd minni. Höfum samt ekki fleiri orð um það.

Framundan eru langar og strangar æfingar í að skerpa sigurviljann því hann er það eina sem okkur vantar. Við erum allir góðir í körfubolta og ættum með réttu að vera búnir að vinna að minnsta kosti þrjá leiki af þessum sex sem við höfum tapað. Einhver óheillakráka að hanga yfir okkur. Í gær vorum við betra liðið á löngum köflum og hefðum með smá heppni náð að teygja okkur í sigurinn. Dee André aka PIMP stóð sig mjög vel og var okkar besti maður. Klikkaði Kiddi var líka góður og Villi aka búinn á æfingu og farinn eftir 5minútur leysti Sævar vel af hólmi þegar sá síðarnefndi fór útaf með fimm villur. Menn segja að ég hafi líka verið að vinna fyrir kaupinu mínu og var ég ánægður með það. Ég er að vinna í NBA bodyinu eins og góðvinur minn Mike pregame download Manciel orðaði það, og þess skamms að bíða að ég pósti menn upp með upphandleggnum. Þangað til læt mér nægja að pósta með pallinum en bíðið þið bara.

Orð dagsins til þín eru: "Ef þú ert að vinna, skaltu ekki láta af því linna"

Skilaboð til ykkar sem taka tölfræði á körfuboltaleikjum: Étið skít heimsku drullur!

laugardagur, nóvember 12, 2005

Það er einkennilegt hvað gengur illa hjá okkur í körfuknattleiksliði meistaraflokks Hauka. Enn höfum við ekki unnið leik á Íslandsmótinu og sitjum sem fastast á botni deildarinnar. Ég held að ástæðan sé sú að við sýnum andstæðingum okkar of mikla ástúð því við þekkjum á eigin skinni hvernig er að tapa og óskum þess ekki nokkrum manni. Þetta sannkristna viðhorf er auðvitað gott og blessað en sannleikurinn er sá að mótlæti er öllum hollt og engum einum ætlað að bera þjáningar heimsins eða taka að sér að lúta í gras í kappleikjum. Því segi ég; leyfum öðrum að njóta þeirrar sáru reynslu að tapa. Verum ekki svo eigingjarnir að leyfa engu liði nema okkar eigin að öðlast þann andlega þroska sem fæst við reynsluna sáru og erfiða tíma. Sækjum til sigurs og látum gott af okkur leiða. Kæru félagar, næsti leikur er á móti Keflavík. Við höfum þar verk að vinna. Andleg fátækt og eyðimörk uppþornaðra hugsjóna ráða þar ríkjum og hjartahlýjum ljúft og skylt að gera bragarbót á.

Speki dagsins er eftirfarandi: "Með stilltum huga, mun ekkert þig buga"

miðvikudagur, nóvember 09, 2005

Það var gaman að sjá hversu líflegar umræður sköpuðust á síðunni eftir síðustu færslu og sérstaklega ánægjulegt að sumir tóku sig til og skoruðu á mig í kveðskap. Ég lét samt ekki glepja mig út í neina vitleysu og leyfði áskorandanum að njóta sín. Svo virðist líka sem að Ottó hafi tekið mig í sátt eftir að ég gleymdi honum um stundarsakir enda sagði ég honum að hann skipaði svo stóran sess í hjarta mínu að ég bæri hann með sér hvert sem ég fer. Ottó bráðnaði náttúrúlega algjörlega við þessi orð mín og sefur sennilega með mynd af mér upp á vegg þessa dagana og kyssir hana fyrir svefninn. Ég er ánægður með doktorinn og finnst raunar að fleiri leikmenn liðsins ættu að taka þetta upp eftir honum. En yfir í annað.

Sá fáheyrði atburður átti sér stað um daginn að ég var rekinn af æfingu. Hafði ekki staðið mig sem skildi og var sendur í sturtu. Var raunar ekki sá eini því við vorum allir reknir heim. Veit samt ekki hvort ég má vera að tala um þetta svona opinberlega því síðast þegar ég lét eitthvað svona útúr mér á síðunni var ég kallaður á teppið hjá þjálfaranum og látinn svara fyrir syndir mínar. Ég vil þess vegna taka það fram að þessí tíðindi gætu verið uppspuni frá rótum og hreinræktaður hugarburður. Þeim sem vilja freista þess að fá fréttirnar staðfestar er bent á að hringja í Kuki og kanna málið, sjálfur mun ég ekkert gefa uppi.

Svo er víst leikur á morgun og takmarkið að senda KR ingana heim í fýlu. Við höfum farið heim með skeifu á andlitinu síðan tímabilið byrjaði og sumir farnir að bera þess merki. Mér sýnist til dæmis neðri vörin á Kidda farin að sveigjast óeðlilega mikið niður á við og Kuki hefur ekki stokkið bros síðan við komum heim frá Serbíu. Það er því tími til að einhverjir aðrir en við fari heim í fýlu og sofi illa á nóttunni því ég held að við séum allir komnir með nóg af því.

Nóg um það gott fólk, ljóð dagsins er ekki af verra taginu:

Sigur skal sóttur
sól sem skín
segðu sanna sögu
Þverrandi þróttur
þjóðin þín
þýðlyndi þinnar þvögu

Má vera að sumir eigi erfitt með að átta sig á inntaki þessa ljóðs enda er það háfleygt og ekki á allra færi að ráða í það. Það fjallar um liðna tíma og spinnur þræði fortíðar í vefnað nútímans. Lifið heil.

sunnudagur, nóvember 06, 2005

Í gær var þessi líka fína gleði heima hjá Don Kidda og voru allir sem vettlingi geta valdið innan liðsins mættir, nema auðvitað Marel því hann er eins og fólk veit fyrirmyndarfaðir og eiginmaður og lætur ekkert glepja sig út á laugardagskvöldum að ástæðulausu og Ottó. Menn voru flottir í tauinu og sjálfur var ég útúrpimpaður í hvíta feik Dolce Gabbana jakkanum mínum og húfu í stíl. Crazy K ætlaði reyndar að mæta í hvítu líka en brást mér á ögurstundu. Náði samt að bjarga andlitinu með að bretta kragann upp á jakkanum sínum. Ég brást svo Villanum á ögurstundu, hafði lofað kappanum að hrynja í það með honum en týndi drykkjustemmningunni einhversstaðar á milli Ruby Thuesday og Hafnarfjarðar en liðið fór allt þangað að borða í boði Gunna Haukz aka ég elska Haukapjakkana mína þó þeir geti ekki neitt, og svo beint í partý til Don K. Vil ég bara hér með biðja Villa naut innilega afsökunar á þessari ósvífni.

En þó ég hafi ekki verið blindfullur og flottur var kvöldið í gær samt algjör snilld enda lítið hægt annað en að skemmta sér konunglega með mönnum eins og Lúlla curlychest, Gunna fyrirmyndarökumanni og öllum hinum sleikjóunum úr liðinu. Ég komst reyndar í hann krappan á Opus við mikla kátínu viðstaddra og var enginn ánægðari með það en sjálfur Kjarrinn. Getur verið að nú muni sumir lesendur ekkert vita hvað doddinn er að bulla en verður bara að hafa það enda síðan mín einn einkadjókur frá upphafi til enda. Eftir að hafa komist við illan leik útaf Opus og skilið Villann og Kiddann eftir penslandi á dansgólfinu með konunum sínum, var haldið á Prikið þar sem fólk leit mig hornauga fyrir að vera aðeins of pimpaður á því með burberry´s bindi úr rúmfatalagernum. Ég staldraði ekki lengi við þar enda hef ég aldrei verið þekktur fyrir annað en að svara illu augnaráði með öðru en hnefunum. Lenti líka í góðu rioti og ef ekki hefði verið fyrir Emilinn hefði ég áreiðanlega verið aðalnúmerið í dánar-og jarðarfarartilkynningunum á RÚV í morgun. Okkur Emil varð nefnilega á að rekast í einhverja stelpu sem var með fleiri göt í andlitinu á sér heldur en götin í hausnum á Richard Jeter og fór beint að klaga í einhvern rum. Félaginn varð alveg vitlaus en Millinn kveikti bara á sjarmanum og bjargaði okkur úr klandri. Hvíslaði eitthvað í eyrað á honum og bjargaði málunum.

Eftir ógöngurnar á Prikinu fórum við og ræstum liðið útaf Sólon enda enginn með réttu ráði sem lætur bjóða sér að hanga þar inni lengur en góðu hófi gegnir. Fórum því næst á Hverfisbarinn þar sem Kjarrinn fór á kostum í að reyna að húkka doddanum sínum saman við einhverja vinkonu sína en hafði ekki erindi sem erfiði. Ég er enda fyrir löngu off da market og þó ég sé myndarlegur og fullt af syfilis á eftir mér verður maður bara að halda haus í að vera fyrirmyndareintak af fullkomnum manni. Kjarri fær samt stig fyrir góða viðleitni.

Jæja gott fólk, ljóð dagsins er svona:

Ef í bæinn er haldið og dansgólfin á
mun ekkert reynast þér betur
en að hrista á þér rassinn og fara á stjá
og vera heitur sem ofn um vetur.

fimmtudagur, nóvember 03, 2005

Það er einhver prótínskortur að hrjá okkur Haukagangztera þessa dagana. Þessi prótínskortur lýsir sér í því að bibbinn er að minnka hjá flestum í liðinu og andstæðingar okkar ná að líta betur út en við í upphitun. Hérna áður fyrr stoppuðum við bara á miðjunni í miðjum upphitunarsniðskotunum og tókum eina eða tvær pósur til að skjóta andstæðingum okkar skelk í bringu en nú á dögum er bara hlegið að okkur ef einhver hnyklar á miðlínunni. Ég held að þetta sé rótin að erfiðleikum okkar í deildinni það sem af er og svo að ekki fari illa mæli ég með að við Haukagangzterar fjárfestum í einhverri prótínblöndu hlaðinni glútamíni og anabólískum E.F.K.E. (eins fljótt og kostur er...ekkert ASAP crap hjá dodda kallinum enda er maður hreintungusinni).
Ef allir væru mother fucking köttaðir svo ég vitni í eina vinkonu mína úr Hressaranum, með brjóstkassann út í loftið værum við án vafa efstir í deildinni og farnir að prýða einhverjar forsíður. En nei, það er prótínskortur að hrjá okkur og ekkert við því að gera annað en skella nálinni á sprautuna og byrja að dæla....

Ekki svo að skilja að það vanti eitthvað uppá kynþokkann í liðinu því menn eru svoleiðis löðrandi úr kynþokka að annað eins hefur ekki sést síðan George Michael var í Wham og ég var feitur. Kuki hefur enda lagt sitt af mörkum til að búa til kúlurassa á hvern einasta mann í liðinu og er nú svo farið að sumir þora ekki í sturtu eftir æfingar af ótta við að missa sig í samanburðinum.

Það getur enginn sagt annað en við Haukaganzterar séum kynþokkafullir og olíubornir og ekkert sem okkur vantar nema nokkrar reps í ræktinni og prótínsjeik. Ég er ekki í nokkrum vafa um að ef hver einasti leikmaður í liðinu myndi gera 100 fleiri magaæfingar á dag myndi árangurinn ekki láta á sér standa og fólk myndi flykkjast á völlinn til að sjá okkur bera að ofan að hnykla í upphituninni.

Speki dagsins: "Ef þú ert með vöðva hver á þig að stöðva?"

This page is powered by Blogger. Isn't yours?