<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, janúar 03, 2005

Gleðilegt ár vanillublönduðu kanelsnúðarnir mínir og takk fyrir allt gamalt og gott! Það hefur ríkt mikil hamingja mín megin um hátíðirnar og raunar svo mikil að ég hef varla sést á internetinu og ekki búinn að skrifa svo mikið sem einn staf á síðu allra landsmanna. Annars held ég að ég fari bráðum að hætta þessu. Það er ekkert gaman að skrifa á meðan ég er svona langt frá dansgólfinu á Ásvöllum og engin þörf á því að ég láti gamminn geysa um einhverja útlendinga alveg endalaust.

Já kæru rjómalöguðu sveppasósudroparnir mínir, DT er fjarri góðu gamni þarna í Frakklandinu og veit ekkert hvað hann á að skrifa í þau fáu skipti sem hann tekur netið í þjónustu sína. Á ég kannski að byrja að skrifa eitthvað í líkingu við þetta:
Góðan daginn pungarnir mínir, í dag vaknaði ég snemma og fór í skólann, fór svo og keypti inn, skellti mér svo þvottahúsið og þvoði heilar tvær vélar í léttu glensi áður en ég henti mér inn í herbergi og slátraði einni rauðvínsflösku með nokkrum Spánverjum...nýtti svo helgina í að skokka í góðan klukkutíma og bæta í sixpakkið....

Er von nema maður spyrji sig gott fólk? Ekkert babylotion í þessu, ekkert cocoa-nut butter frá Suave, ekkert hipshake, enginn sláttuvéladans og ekki einn einasta pjakkur. Mesta furða að ég hafi hent inn nokkrum línum þrátt fyrir allt.

Annars segi ég nú bara allt gott, skemmti mér konunglega í nýársdagsteitinu í piparsveinasvítunni hans Dr. Ottó, einnig þekktum sem Dr. Fly as a black man dressed in white, og vil þakka honum kærlega fyrir gott boð. Gamlárskvöld var ekki eins og best verður á kosið en átti þó sínar góðu hliðar. Tíminn hefur liðið ótrúlega hratt og í fyrramálið flýg ég aftur út til Toulouse og á áreiðanlega eftir að vera orðinn vel rænulaus af einhverju rauðvíni um miðnæturbil. Læt kannski heyra í mér af og til og segi sögur úr þvottahúsinu....sé fólk annars bara í sumar....kiss kiss

This page is powered by Blogger. Isn't yours?