<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur, júlí 31, 2005

Verslunarmannahelgin er gengin í garð og gott betur. Ég er nú bara í bænum þetta árið enda er ég enginn útihátíðamaður. Fór reyndar einu sinni til Eyja og var það mjög gaman þó ég hafi sjaldan á ævinni verið eins ölvaður (kannski að þess vegna hafi verið svona gaman??). Svo fór ég til Spánar í fyrra og eyddi helginni í trylltum dansi með völdum vinum á sóðabörum Benidorm. Það var frekar gaman líka. Í ár sýndi ég hinsvegar ekki á mér neitt fararsnið og sé ekkert eftir því. Helgin hefur verið með miklum ágætum og enn er nóg eftir. Fór á föstudaginn í algjört eðalteiti hjá Thelmu vinkonu minni þar sem fólk dansaði eins og það ætti lífið að leysa og skemmti mér konunglega. Var reyndar í svo þröngum buxum að ég átti erfitt með að hreyfa mig eðlilega en hvað gerir maður ekki til að fólk geti betur séð á manni rassinn? Maður spyr sig....allaveganna takk fyrir teitið Thelma!

Í gærkvöldi átti ég engan miða á Innipúkann og dvaldi því heima og horfði á eðalmyndina "Midt om natten" með Kim Larsen í aðalhlutverki. Það þótti mér súrt í broti enda þekktur fyrir allt annað en að sitja með hendur í skauti á laugardögum. Helgin hefur samt ekkert runnið sitt skeið á enda og í kvöld eru góðar líkur fyrir að ég verði spottaður í níþröngum gallabuxum dansandi upp á borði einhversstaðar í bænum...

sunnudagur, júlí 10, 2005

Gleðilegan dag gott fólk, smá þurrð á skrifum hjá manni um þessar mundir. Veit ekki alveg hvað veldur, kannski að líf DT sé að breytast í hversdagsgráma og daglegt líf? Það væri þó aldrei...
Mætti samt vel blingaður í bæinn í gær með nýju hvítu derhúfuna mína með zirkon í báðum eyrum. Óhætt að segja að ég hafi vakið lukku, sérstaklega þegar ég var manaður í að dansa sláttuvéladansinn við einhverjar rúmenskar syfilismellur á Trefilsbarnum. Það var frekar fyndið, er smá svekktur að sérlegur myndatökumaður minn hafi verið búinn með batteríið í græjunni sinni og misst af þessum viðburði. Geymi þetta samt í minningunni að eilífu.

Svo er bærinn óðum að missa sjarmann, sumt fólk virðist ekki skilja að blingið er langt frá því að detta úr tísku og forðast að láta sjá sig í skæru litunum. Getur verið að ég hafi ekki verið nógu sýnilegur á dansgólfunum í vetur og fólk hafi fundið sér aðra fyrirmynd? Eða er ég óðum að missa það? Var ég kannski aldrei jafn heitur pinni og ég hélt? Ekki gott að segja, allaveganna er unga fólkið alveg að gleyma sér í mittisleddurunum með stroffi og sylgjubeltum og eyrnalokkarnir og phat farm skórnir víðsfjarri. Hvað veldur?
Rétt er að DT lagði hálfpartinn upp laupana meðan holdgervingur hans skellti sér til Frakklands, og getur verið að fjölmargir fylgismenn hans hafi einfaldlega framið lífsstíls sjálfsmorð og hætt að mæta í ræktina og safna í sixpakk og farið að mæta á Ellefuna og Kaffibarinn. Einnig er það mögulegt að upp sé að rísa hreyfing fólks sem er óheppið í framan og tekur prjónapeysur framyfir silikon, til mótvægis við þá fegurð manna sem best nýtur sín þegar diskóljósin enduvarpa henni í björtum bjarma eyrnablingsins. Ef svo er þykir mér það afar leitt enda vandfundið það andlit sem ekki fegrast og lifnar við í glitrandi dýrð skartgripanna....

DT veit ekki alveg hvað er hægt að gera í þessu en vonar að sem flestir verði grunnhyggnir og kúl að nýju....

Ást og friður

föstudagur, júlí 01, 2005

Sæl verið þið elsku súkkulaðidropaflóðin mín! Doddinn hefur aldeilis vanrækt aðdáendur sína síðan hann kom heim og ekki látið svo lítið að skrifa hughreystandi orð fyrir allar þessar andlega fátæku sálir sem hann þekkir. Er ekki nema von að þjóðin öll bryðji geðdeyfðarlyf eins og hunangshúðaðan kandís og þambi brennivín eins og það væri að sötra svala.

Er ekkert nema brýn nauðsyn til að ég geri bragarbót á þessu og fylli sálartetrin þarna úti af gleði og hamingju....

Svo mæli ég með að fólk skrái sig í Alnæmissamtökin....ég gerði það í dag og finnst að fólk ætti að gera slíkt hið sama...kostar ekki nema 2200 á ári og er tvímælalaust gott fyrir sálina. HIV er helvítis djöfull og alls ekkert kúl að láta hann vaða of mikið uppi.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?