laugardagur, október 29, 2005
Það var lítil frægðarför sem við fórum til Njarðvíkur á fimmtudaginn. Öttum þar kappi við jakkafataklædda Njarðvíkinga og lutum í gras, eða öllu heldur parket. Þetta var annars hörkuspennandi leikur, við vorum betri mest allan leikinn en glutruðum sigrinum niður í lokin. Afar svekkjandi. Ég vil taka þetta tap á mig og bið pjakkana bara afsökunar hér með. Ég klikkaði nefnilega úr öllum skotunum mínum nema einu og ef ég hefði sett 3 í viðbót þá hefðum við unnið leikinn. Því miður fann ég ekki fjölina mína í þessum leik frekar en í öllum hinum og því fór sem fór, náði reyndar takmarkinu mínu og lét Egil seven footer ekki blokka mig en náði ekki alveg að setja hárið bakvið eyrun, gefum þessu 1 mánuð í viðbót. Helvítis Sigginn var maður leiksins okkar megin ásamt Dee André en flestir aðrir voru í einhverjum penslarahugleiðingum (er farinn að pensla alltof mikið og held ég hætti bráðum að nota þetta orð, en svona for the old times þá sleppur þetta núna....). Penslari kvöldsins var samt sá sem átti að taka niður tölfræðina úr leiknum því hann vissi ekkert hvað var að gerast og skráði bara þriðju hverja stoðsendingu og áttunda hvert frákast. Jæja, kannski að hann hafi verið með parkinson í augnlokunum og blikkað svo mikið að hann missti af leiknum? Hver veit...
Bestir í upphitun voru Lúlli og Ottó en Ottó tróð næstum því og Lúlli tók vindmillulayup. Þegar Lúlli tók sniðskotið sitt fór kliður um húsið og mátti sjá ungar meyjar falla í yfirlið. Lúlli er enda myndarlegur maður og gefur af sér góðan þokka á velli. Vonandi bara að hann verði með kynþokkann á fullu eins og vonandi við allir í leiknum á móti Skallagrími annað kvöld. Annars er hætt við að illa fari og gef ég ekki í að sjá Kuki ef við töpum þessum leik. Þori eiginlega ekki að hugsa um það og mælist bara til þess að við verðum allir með egóið í efsta og vinnum. Og hana nú...

fimmtudagur, október 27, 2005
Fyrir hönd DT Group vil ég gefa út eftirfarandi yfirlýsingu:
DT Group barst á sjöunda tímanum í gærkvöldi tilboð um samstarf. Forstjóri fyrirtækisins ásamt starfsliði er þessa stundina að fara yfir tilboðið og er svars að vænta á næstu dögum. DT Group biður fjölmiðla að fara ekki offari vegna málsins og vonast til að verða ekki fórnarlamb sögusagna sem gætu skaðað ímynd fyrirtækisins. Aukinheldur vill DT Group staðfastlega neita öllum fréttum um meint tengls sín við smásölukeðjuna Debenhams og áréttar að starfsfólk fyrirtækisins klæðist aðeins merkjavöru.
Virðingarfyllst, Dee Andre Hulett forstjóri markaðssviðs.

mánudagur, október 24, 2005
Ég held að ég sé kona. Fékk þessa tilfinningu fyrst yfir mig þegar ég fékk tár í augun meðan ég horfði á Dancer in the Dark í fyrra. Varð svo ekki um sel í gær þegar ég táraðist af gleði yfir að sjá hvað Morten stóð sig vel í leiknum á móti Grindavík. Big Mo, sem einnig gengur undir nafninu Pálínurefsarinn, var frábær og sýndi sínum gömlu félögum að þeir hefðu betur reynt að halda í hann. Kiddi og Sævar voru líka öflugir og hef ég fátt séð eins flott og þegar Kiddi tróð boltanum viðstöðulaust með hægri hendi eftir frákast, nema ef vera skyldi troðsluna hans Mortens tveimur mínútum síðar. Því miður töpuðum við samt þó sjarminn hafi klárlega verið okkar megin. Sjálfur vermdi ég bekkinn í 34 mínútur og gerði lítið af viti þessar 6 mínútur sem ég var inná. Það gerir ekkert til enda er mitt hlutverk í liðinu að líta vel út og vera kúl.
Næsta verkefni er að fara til Njarðvíkur á fimmtudaginn og er markmið mitt fyrir þann leik að vera með hárið bakvið eyru og láta Egil seven footer ekki blokka mig.
Ætli ég fari aftur að gráta í Njarðvík. Er nokkuð svo slæmt að vera kona?

sunnudagur, október 23, 2005
LEIKUR Í KVÖLD. LEIKUR Í KVÖLD. KAFFI OG KÖKUR SELDAR Í HLÉI. LÉTTSVEIT SUÐURNESJA LEIKUR FYRIR DANSI.
KVENFÉLAG GRINDAVÍKUR.
KVENFÉLAG GRINDAVÍKUR.
miðvikudagur, október 19, 2005
Jæja kæru vinir, þá er ég nýkominn í hús eftir leikinn á móti Grindavík. Og hvað haldiði? Jú rétt til getið, við penslararnir í Haukum létum Grindvíkingana pensla okkur allan leikinn og vorum með bullandi fullnægingarstunur allan tímann. Unnum enda leikinn með 12 stigum, vel penslaðir og fínir. Skemmtilegt orð penslari og skemmtileg þolmynd að vera penslaður. Gaman að þessu.
Allaveganna þá unnum við rétt í þessu sigur á geysisterku liði Grindavíkur. Siggi aka djöfull fór ég á kostum í fokking leiknum stóð sig eins og hetja. Ég hef bara ekki séð annað eins frá manninum síðan við vorum í yngri flokkunum og hann spilaði með Njarðvík. Strákskrattinn setti 27 stig og stal 7 boltum. Hef grun um að einhver hafi haldið áfram að skella á hann málningu (pensla) þegar hann kom heim if u know what i mean og á hann það alveg skilið...
Sævar aka kapteinn aka ég fíla OC aka ég elska konuna mína meira en félagana var heldur ekkert slor og skoraði 21 stig auk þess að gefa 11 stoðsendingar. Gaf samt enga stoðsendingu á mig enda skoraði ég enga körfu, en það er annað mál. Kaninn Dee Andre aka ég hélt framhjá konunni minni eftir 12 klukkutíma á Íslandi and i´m proud aka helvítis kjamminn stóð sig einnig vel og skoraði 27 stig eins og Sigginn. Kiddi yfirpenslari og sá sem er oftast penslaður í liðinu miðað við hvað hann er alltaf kátur þegar hann kemur á æfingar, var traustur. Skoraði 11 stig og tók nokkur góð fráköst. Dr. Ottó, einnig þekktur sem Dr. Manic, einnig þekktur sem Dr. ég pensla þig ekki nema ég sé giftur þér var langmyndarlegastur á vellinum eins og venjulega og voru Grindvíkingarnir oft í stökustu vandræðum með að einbeita sér að leiknum á meðan Ottó var inná. Hvað um það. Við vorum allir kynþokkafullir og flottir og engin furða að Kuki kallaði ekki nokkurn mann þroskaheftann, tja nema mig náttla enda var ég alveg týndur í upphafi leiks og fannst ekkert fyrr en leikurinn var flautaður af. Well....
Já gott fólk, Kjarri aka CENSORED aka CENSORED aka CENSORED var búinn að búa til stjörnu úr mér og ég naut þess í botn að vera "besti" íslenski leikmaðurinn í liðinu í tvo heila daga. Var farinn að sjá fyrir mér sæti í landsliðinu og baráttu undir körfunni við Yao Ming og hvaðeina. Eftir þennan leik held ég að það sé samt úr sögunni í bili. Strangt til tekið lagði ég nefnilega nákvæmlega ekkert til leiksins. Nei kæru vinir, ég er ekkert að grínast með þetta. Ég gerði ekkert í leiknum, spilaði reyndar bara rúmar 6 mínútur en það kemur út á eitt. Ég var með 0 í öllum tölfræðiliðinum nema einum og það var bara af því ég fékk eina villu. 0 stig, 0 fráköst, 0 stoðsendingar o.s.frv. Svei mér þá. Þetta hefur ekki komið fyrir mig síðan ég var 9 ára og feitur....
Svona er þetta gott fóllk. Stjarna í dag, gleymdur á morgun. Held reyndar að Kjarrinn þurfi að standa sig betur ef hann ætlar að búa til almennilega stjörnu úr mér. Þyrfti jafnvel að hleypa mér upp á svið með sér þegar hann spilar á Airwaves á morgun. Kjarri, er einhver möguleiki???
Ég er nefnilega ekkert vanur þessu stjörnu "hlutverki" og held að undirmeðvitundin hafi verið að reyna að losa sig við það. Væri ekki svo vitlaust að reyna gera mig að rappstjörnu enda held ég að ég sé töluvert of kynþokkafullur fyrir körfuna. Hvað segir almannarómur?

mánudagur, október 17, 2005
Ég þarf aldeilis að pensla marga núna. Það kom fullt af fólki á völlinn og þakka ég öllum sem mættu alveg kærlega fyrir komuna. Verst að við töpuðum leiknum og því hafa flestir farið svekktir heim. Var annars alveg prýðilegur leikur af okkar hálfu. Við börðumst vel en vorum óheppnir á mikilvægu tímabili í leiknum og það varð til þess að við töpuðum. Kuki gat lítið sagt eftir leik enda gerðum við það sem fyrir okkur var lagt en uppskárum ekki eins og við sáðum. Kaninn okkar var sterkur þó hann hafi hitt illa, og verður áreiðanlega einn af sterkari könunum í deildinni eftir nokkra leiki. Við Íslendingarnir stóðum okkur flestir vel og verðum að halda því áfram.
Varð svo vel svekktur í morgun þegar ég kíkti í Moggann. Þar var bara fjallað um 3 af 6 leikjum gærkvöldsins og ekki minnst einu orði á hina. Þetta er auðvitað hneyksli hjá Morgunblaðinu. Úrvalsdeildin er nýhafin og í rauninni óskiljanlegt að ritstjórn íþróttadeildar kjósi að sýna íslenskum körfuknattleik þá lítilsvirðingu að fjalla bara um suma leiki heillrar umferðar í efstu deild. Við Haukamenn sátum á hakanum en það gerðu líka ÍR-ingar, Snæfellingar, Hamarsmenn og nýliðar Hattar. Er ég sérstaklega svekktur fyrir hönd Hattar enda eru þeir nýliðar í deildinni og fyrsta liðið frá Austfjörðum til að spila í úrvalsdeildinni. Kemur Morgunblaðið kannski ekki út fyrir Austan og því réttlætanlegt að fjalla ekki um liðin þaðan? Maður spyr sig.
Morgunblaðið hefur að undanförnu átt undir högg að sækja í mínum huga og helst íþróttadeildin sem hefur haldið mér ánægðum. Metnaðurinn þar virðist samt greinilega fara minnkandi og því alveg óvíst hvort ég hvetji fjölskyldumeðlimi áfram til áskriftar.
Áfram Haukar

sunnudagur, október 16, 2005
LEIKUR í KVÖLD KL. 19.15.
EF ÞÚ MÆTIR SKAL ÉG SOFA HJÁ ÞÉR EFTIR AÐ ÉG VERÐ BÚINN AÐ PENSLA ÞIG. ÉG ENDURTEK, EF ÞÚ MÆTIR SKAL ÉG SOFA HJÁ ÞÉR EFTIR AÐ ÉG VERÐ BÚINN AÐ PENSLA ÞIG.....ef þú kallar áfram Haukar skal ég flengja þig líka....

fimmtudagur, október 13, 2005
Þá er fyrsta leik tímabilsins lokið. Við pjakkarnir spiluðum á móti Grindavík og er skemmst frá því að segja að við töpuðum með 30 stigum. Það kom mér verulega á óvart hvað við vorum lélegir enda höfum við æft vel og verið samviskusamir. Greinilegt að við verðum að bíta í skjaldarendur ef við ætlum ekki að láta taka okkur í endaþarminn tvisvar í viku í allan vetur. Leikurinn byrjaði reyndar ágætlega, Kiddi setti 12 stig í röð og sóknin virtist vera vel smurð. Vörnin var samt eins og gatasigti og í hvert skipti sem Kiddi skoraði settu Grindvíkingarnir körfu hinum megin. Svo ákvað Kiddi að nóg væri komið í stigaskoruninni og lét reyna á það hvort einhver annar í liðinu nennti líka að skora. Þá kom bara í ljós að það var enginn til í það og fyrr en varði voru penslararnir í hinu liðinu komnir tuttugu stigum yfir og við farnir að glenna í sundur á okkur lappirnar.
Kuki var náttúrúlega alveg snarvitlaus á bekknum eins og við mátti búast, kallaði okkur þroskahefta hálfvita og allt þetta venjulega. Við eigum það nú alveg til að hlusta á kallinn og bæta ráð okkar en að þessu sinni fórum við bara aftur inn á völlinn og tókum til við að láta sprengja í rassinn á okkur.
Já vinir mínir, fer maður ekki bara að hætta þessu núna? Síðast þegar ég spilaði með Haukum í úrvalsdeildinni töpuðum við tvisvar í röð með 40 stigum og í kvöld töpuðum við með 30. Ég er með 120 stig í mínus úr þessum þremur leikjum. Mig langar ekki einu sinni að tala um fyrsta úrvalsdeildarleikinn minn því þá töpuðu Haukar með 45 stigum og þó ég hafi bara verið 16 og bara spilað 3 mínútur fannst mér það samt full stórt tap.
Ég er bara greinilega lúser. Á líka vinkonu sem segir það við mig í hvert einasta skipti sem hún hittir mig og er ég alveg farinn að trúa henni núna. Sé mest eftir því að hafa farið að æfa körfu á sínum tíma. Hefði ég til dæmis farið í 800 metra hlaup væri ég sennilega nýkominn af æfingu með Wilson Kipketer og væri að drífa mig heim að fægja Olympíugullið mitt. Sé það bara núna að ég er B manneskja. B manneskjur má þekkja af því að þær eiga ekki bíl og engan pening og eiga bara silfur í verðlaunagripasafninu sínu. Þær ferðast um á hjóli, eiga ekki Ipod og þekkja engan af Köllunum.is. B manneskjur eru líka oft í tungumálanámi eða hugvísindum og verða því alltaf fátækar. Þær drekka í hófi og stunda líkamsrækt en fara ekki í ljós, tapa alltaf í singstar og kunna ekki textann við neitt lag í útvarpinu. Hin dæmigerða B manneskja kláraði heldur ekki stúdentinn frá MR, Versló eða FG og fór hvorki á Franz Ferdinant né Alice Cooper. Hún á heima hjá mömmu sinni og pabba og þarf að fá lánaðan bílinn ef hún ætlar út um helgar.
Já gott fólk, mér sýnist að ég sé hin dæmigerða B manneskja og engin leið að neita því neitt lengur. Ég er lúser og ef þú ætlar þér stóra hluti í lífinu væri þér hollast að forðast mig eins og heitan eldinn. B manneskjuveiran er bráðsmitandi og ef þú færð hana er engrar undankomu auðið.

þriðjudagur, október 11, 2005
Nú eru bara tveir dagar í fyrsta leik tímabilsins. Ég er að verða vel spenntur. Eins gott að ég og verði búinn að pumpa bibbann upp og taka nokkrar magaæfingar fyrir leik því annars er hætt við að illa fari. Held að þetta verði skemmtilegt tímabil, liðið ungt og fín stemmning í hópnum. Hvet bara alla sem ég þekki til að koma á völlinn af og til í vetur. Það er alltaf gaman að horfa á 4 Íslendinga og einn Kana etja kappi við fjóra aðra Íslendinga og einn Kana inni á vellinum. Við erum líka með myndarlegasta liðið og ætti engum að leiðast að horfa á okkur hlaupa um í stuttbuxum og hlýrabolum blink blink ;).....
Við eigum Grindavík í Grindavík í fyrsta leik og er alveg öruggt að þetta verður hörkuleikur. Grindvíkingarnir virðast vera sterkari en á síðasta tímabili og verðum við að eiga toppleik til að leggja þá að velli. Hef ekki miklar áhyggjur af þessu, ég hef oft náð að spila ágætlega á móti þessum Suðurnesjaliðum og svo er Sævar þekktur fyrir að drita vel á þá. Kiddi hefur líka oft verið góður á Suðurnesjunum þannig að útlitið er ágætt. Vona bara að Kaninn okkar sé betri en sá sem var sendur heim og það verði eitthvað gagn að honum í vetur.
Nýji Kaninn okkar var hvað sem öðru líður, fljótur að uppgötva að á Íslandi er nóg af lauslátum stelpum. Hann kom á laugardagsmorguninn og fór í bæinn um kvöldið og endaði heima hjá einni syfilis sem var víst ekkert sú föngulegasta og hefði áreiðanlega gert það gott í íslenska bacchelornum...
Auðvitað eru samt ekki allar íslenskar stelpur lauslátar og bið ég þær sem eru það ekki innilega afsökunar ef ég hef sært blygðunarkennd þeirra á nokkurn hátt.
Fyndið samt hvað sumar eru rosalega miklir hálfvitar, frétti af einni 36 ára sem fór heim með tveimur strákum sem ég þekki um síðustu helgi og gerði þeim glaðan dag með 2 lítil börn sofandi í næsta herbergi. Svo allt í einu hringir síminn hennar og kallinn hennar við hinn enda línunnar. Hún fór alveg í kerfi og var fljót að reka félagana heim. Þegar þeir voru svo á leiðinni út mættu þeir kallinum hennar í stigaganginum á blokkinni þar sem hún bjó. Sögðu bara góða kvöldið og komu sér í burtu. Grey gaurinn hafði ekki hugmynd um að þeir væru báðir búnar að vera taka á konunni hans. Fór bara heim til sín og hefur áreiðanlega fært henni morgunmat í rúmið...
Hvað er fólk að hugsa spyr ég nú bara. Þetta er önnur svona sagan sem ég heyri á stuttum tíma og nú er mér nóg boðið. Vona bara að ég lendi aldrei í þessu því ef konan mín myndi gera mér þetta myndi ég áreiðanlega lemja hana í buff, teipa ofan í svartan plastpoka og keyra yfir hana.
Jæja, ég finn að ég er að verða alltof æstur yfir þessu.....anda inn anda út anda inn anda út....

mánudagur, október 10, 2005
Eins og flestir vita er ég mikið fyrir að skoða fólk. Hef ég þannig komist að því að margt fólk er ofboðslega fyndið. Var t.d. að bíða eftir strætó, eins og svo oft áður, fyrir skömmu og varð vitni að mjög fyndnu atviki. Það kom strætó, ekki strætóinn minn heldur annar, og þegar hann var að leggja af stað kom svona 30-35 ára kall á harðahlaupum á eftir honum. Það eitt og sér er auðvitað ekkert fyndið enda hef ég margoft lent í því að hlaupa á eftir strætó, nei það sem var fyndið var að þessi kall var svona maður sem hefur áreiðanlega ekki hlaupið síðan hann var 10 ára og vissi ekkert hvernig ætti að gera. Baðaði út öllum öngum á meðan hann reyndi að halda húfunni á hausnum á sér. Kannski fannst engum þetta fyndið nema mér en ég hló allaveganna dátt inni í mér.
Kannski hlæja svo líka allir að mér þegar ég hleyp á eftir strætó og finnst ég hlaupa geðveikt asnalega?
Svo finnst mér fólk í strætó bara almennt fyndið. Í strætó má oft sjá þverskurðinn af íslensku samfélagi: gamla og unga, fatlaða og ófatlaða, fallega og ljóta, feita og granna, ríka og fátæka og svo mig. Þess vegna finnst mér stundum gaman í strætó þó að í rauninni finnist mér það leiðinlegt. Ég nefnilega þoli ekki hvað strætó er lengi á leiðinni en mér finnst alltaf jafn gaman að skoða fólkið þar. Held bara að eitt það skemmtilegasta sem ég geri sé að skoða fólk svona úr laumi, þá fer ég að hugsa hvað það geri, hvaðan það komi og hvert það ætli. Mjög heimspekilegt allt saman en líka skemmtilegt. Ég sá til dæmis stelpu í strætó í síðustu viku sem ég held að verði ungfrú Ísland eftir 2-3 ár. Hún var hávaxin og ljóshærð með ekta ungfrú Ísland bros. Ætla að hvetja hana til að taka þátt ef ég sé hana aftur. Annars finnst mér stelpurnar í Ungfrú Ísland oft ekkert sætar þannig ég ætti kannski frekar að hvetja strætóstelpuna til að taka ekki þátt...hummmm. Svo sá ég gamlan mann um daginn sem ég held að væri alveg eins og jólasveinninn ef hann myndi lita skeggið á sér aðeins hvítara og ég sá líka konu sem ég held að sé ósmekklegasta kona Íslands því hún var í skræpóttri skíðaúlpu sem sennilega var framleidd uppúr 1970. Ég er greinilega laumupervert því ég geri ekki annað að skoða fólk daginn út og inn og spekúlera hvernig það hafi það. Ætti ég kannski að tala við einhvern útaf þessu?

föstudagur, október 07, 2005
Hef oft verið að velta fyrir mér fólki sem gengur eins og það sé á catwalki. Sá svoleiðis stelpu í gær þegar ég var að bíða eftir strætó. Hún var með sporin alveg á hreinu, með hendurnar þétt upp við líkamann og sveiflaði mjöðmunum taktfast um leið og hún starði fjarrænu augnaráði fram fyrir sig. Mjög merkileg sjón. Svo sá ég strák sem var eins og klipptur út úr viðskiptablaðinu, með snyrtilega klippingu í jakka með stresstösku. Samt tók hann strætó með mér og framvísaði græna kortinu. Þess vegna dreg ég þá áætlun að þetta hafi allt verið í nösunum á honum og hann eigi sennilega heima í hjólhýsi í Laugardalnum. Fyndið hvað fólk umbreytist stundum í eitthvað allt annað en það kannski raunverulega er. Eins og til dæmis þegar ég mæti á dansgólfið með bling og hvíta derhúfu og fer að rugla í einhverjum flegnir kjólar konum. Fólk sem þekkir mig veit náttúrulega að þetta er ekkert líkt mér. Ég er frekar þekktur fyrir að vera dagfarsprúður og rólegur heldur en að trylla í ljósabrúnum silikonbombum. Samt hef ég stundum gert það þegar ég er í gallanum og einhver búinn að mana mig. Þá er ég farinn að gera eitthvað sem er bara alls ekkert líkt mér. Svona er þetta og held ég jafnvel að fullt af fólki sem ég þekki ágætlega sé meira og minna að leika í eigin raunveruleikaþætti daginn út og inn. Ég er hættur því núna og ætla að fara að vera inni í mig eins og söngvarinn í Sigurrós frá morgni til kvölds, enda er það miklu líkara mér heldur en að safna í svörtu bókina og vaxa bringuna (ekki svo að skilja að ég haldi einhverja svarta bók eða vaxi á mér bringuna en maður hefur nú svo sem alveg heyrt um svoleiðis gaura).
Hver kannast svo ekki við það að kaupa sér eitthvað í útlöndum sem maður notar á hverjum degi og finnst voða sniðugt, en svo þegar heim er komið notar maður það aldrei eða þá manni líður geðveikt asnalega þegar maður notar það. Ég keypti mér til dæmis einu sinni geðveik sólgleraugu á Spáni og notaði þau á hverjum degi en svo þegar ég kom heim þá notaði ég þau aldrei aftur. Afhverju gerði ég það? Jú af því þau voru alltof spaðaleg. Ég gat semsagt verið algjör spaði á Spáni og óhræddur farið á alla klúbbana með spaðagleraugu í hlýrabol en á Íslandi líður mér bara eins og asna ef ég fer að reyna eitthvað svoleiðis. Fyndnar svona hlutverkabreytingar. Kjarri vinur minn var einhvern tímann að tala við mig um þetta og af því að hann var á félagsfræðibraut og lærði alls konar mindstöff hlustaði ég auðvitað vel á hann. Kjarri sagði að fólk væri alltaf að festast í hlutverkum vegna utanaðkomandi áhrifa. Eins og til dæmis ef ég segði alltaf við Ottó vin minn, Ottó, þú ert ömurlegur tannlæknir. Svo færi einhver annar að segja það og við værum alltaf að hrauna eitthvað yfir hann og að lokum myndi Ottó fara að upplifa sig sem Ottó, ömurlega tannlækninn. Eins og ég á Íslandi; fólk hefur í gegnum tíðina oft hrósað mér fyrir að vera duglegur í heilsuræktinni og drekka ekki og vera enginn nöldrari. Afleiðing hefur orðið sú að á Íslandi er ég þvílíkt stabíll, mæti reglulega í ræktina og drekk svona fjórum sinnum á ári max og rífst ekki við neinn. Svo fór ég til Frakklands í eitt ár og lenti strax með partýglöðu fólki, og tók náttúrlega þátt í gleðinni með því, og það fór allt í einu að segja eitthvað hey Doddi, putain c´est bien de faire la fête avec toi, sem þýðir hey doddi, djöfull er gaman að drekka með þér. Og ég fór bara að trúa því og byrjaði bara að drekka reglulega af því að í Frakklandi þurfti ég ekkert að vera fastur í hlutverki heilbrigða dúddans. Svo fór ég á Októberfest í svaka fjör og var allt í einu byrjaður að leita að slagsmálum, það var meira segja einn Frakkinn sem bað bróður minn um að passa mig sérstaklega þegar ég væri að drekka því þá yrði ég svo ofbeldisfullur. Hvað er það? Svo kom ég aftur heim og er búinn að djamma tvisvar og ekki búinn að rífast við nokkurn mann. Það eru að verða komnir 6 mánuðir síðan ég kom heim. Mér heyrist að ég sé bara aftur orðinn fastur í gamla hlutverkinu.
Já vinir mínir, fólk er alltaf að reyna hafa einhver áhrif á mann og kannski er ég bara svona áhrifagjarn að ég geri bara það sama og fólkið í kringum mig. Svo getur verið að ég sé bara að leita að hlutverki sem er eins og sniðið fyrir mig. Hvaða hlutverk ætli það sé?

fimmtudagur, október 06, 2005
Dr. Ottó, liðsfélagi minn og vinur, er útskrifaður tannlæknir og vinnur sem slíkur. Í gær á æfingu rétti hann mér nafnspjald sem á stendur: Ottó Þórsson, tannlæknir.
Ég veit ekki hvort hann gerði þetta af því að hann hélt að ég myndi ekki hvað hann heitir eða til að gera mér ljóst að hann kom á Mercedes jeppanum sínum á æfingu en ég kom á hjóli...
Allaveganna er ég búinn að hengja nafnspjaldið hans upp í herberginu mínu og ætla að fá mér svona bráðum.

mánudagur, október 03, 2005
Vá hvað ég var smeykur á laugardaginn. Fór á æfingu eins og venjulega og þegar hún var búin og við vorum að teygja og segja sögur, spurði ég coach Kuki hvort hann væri búinn að sjá kveðjuna sem ég sendi honum. Hann sagði nei og ég hvatti hann til að kíkja. Svo þegar við erum komnir inn í klefa kemur allt í einu Kuki öskuvondur og segir: "Doddi, I want you in my office straight after the shower".
Ég fattaði strax að Kuki hefði verið að lesa sögurnar af æfingum þar sem ég geri góðlátlegt grín að honum. Hugsaði bara með mér hvort hann væri ekki að grínast að nenna að vera svona fúll yfir því. Flýtti mér svo niður að hitta strákinn á skrifstofunni en þá var hann bara skellihlæjandi og fannst sögurnar mínar bara fyndnar. Hafði bara ekki skilið allt og þurfti að fá mig til að þýða.
Já Kuki kann að láta mann skjálfa á beinunum og hefur mér ekki liðið svona áður en ég hitti einhvern síðan ég tók eitt stigsprófið mitt á píanó þegar ég var 11 ára. Eða síðan ég bauð stelpu í bíó þegar ég var 16...allaveganna var ég búinn að undirbúa mig fyrir eldræðu og var léttirinn mikill þegar ég sá Kuki brosandi við skrifborðið.
Svo fór ég í bæinn með vinum mínum í Haukum á laugardaginn. Það var mjög gaman hjá okkur og skemmti ég mér vel. Kvöldið endaði svo á óvæntan hátt og þurfti ég að brjótast út úr húsi sem ég var allt í einu kominn í til að komast heim að sofa. Nennti svo ekki að vakna á skotæfingu og vona bara að einhver hafi mætt svo Kuki verði ekki alveg vitlaus í kvöld...