<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, janúar 31, 2004

Jæja kútar, hvet fólk eindregið til að kíkja á myndaalbúmið mitt hérna til hægri ef það er ekki þegar búið að því. Millaliciousinn Emil a.k.a da hunk er búinn að vera að mixa. Svo á Justin Timberlake afmæli í dag, pjakkurinn er 23 ára í dag og hefur aldrei verið heitari enda með Blotionið frá J&J löðrandi frá morgni til kvölds. Hip og kúl kidz, hip og kúl...

föstudagur, janúar 30, 2004

Jæja gott fólk, leikurinn í gær fór nú ekki alveg eins og maður var að vona. Við gerðum okkur lítið fyrir og töpuðum. Kynþokkinn var í algjöru lágmarki frá upphafi og menn voru aðeins of tilbúnir til að láta einhverja ÍRinga þrykkja í rassgatið á sér. Held bara að enginn hafi staðið sig vel nema kannski Mike og Kuki. Kuki á einmitt afmæli í dag og hef ég aðeins þetta við hann að segja: Moja igracka sezona nije bas blistava ali sam u poslednjih par tekmi poceo bolje da igram-naravno kad mi je prvi strateg tima Rey dopustio da se izvucem na svoju poziciju i konacno isprangijam neke trojke. Svo á Ingvar eða Hr. Assshake eins og hann er stundum kallaður, líka afmæli í dag og hef ég aðeins þetta að segja við hann: Til hamingju með afmælið pjakkur.

Það var samt eitt ánægjulegt við leikinn í gær og það var hvað margir vinir mínir sáu sér fært að mæta, þar voru samankomnir nákvæmlega 0 vinir mínir en það eru einmitt jafn margir vinir og ég á, því ég hef ákveðið að slíta vináttuböndin við alla þá sem ég kallaði einu sinni vini mína og mæta aldrei á völlinn. Ég ætla því hér eftir að rækta vináttuna við Haukapjakkana sem mæta á hvern einasta leik such as: Steina a.k.a Mr. clean&press, Stebba&Stebba, Emil Millalicious, Adda a.k.a da ape man, Ingva ósátta, Einar Smiley, Gunna a.k.a Tinni, Svenna hrikalega, my man AJ, Hilla fola og fleiri. Þetta eru menn sem láta sjá sig á stöðum eins og Þorlákshöfn og eru ekkert að grínast með stuðninginn.
Jæja, litlu kútar, þetta verður þá ekki lengra í dag, ég vil bara að lokum segja að ég er búinn að eyða öllum símanúmerunum í símanum mínum og set þau ekki aftur í fyrr en eigendurnir mæta á leik...uuuuzzzzaaaaa!

fimmtudagur, janúar 29, 2004

Ég er með eina tilkynningu hérna: ÍR-HAUKAR Í KVÖLD KL. 19.15 Í SELJASKÓLA, EF ÞÚ MÆTIR EKKI GÆTI HIPSHAKIÐ DOTTIÐ ÚR TÍSKU...ÉG ENDURTEK, GÆTI HIPSHAKIÐ DOTTIÐ ÚR TÍSKU...jæja, þetta var tilkynning dagsins og nú vona ég bara að sem flestir sjái sér fært að mæta í kvöld því ég er orðinn hundleiður á þessu liði sem þykist þekkja mig eitthvað en kemur samt aldrei að horfa á mig keppa, og ekki heldur hina pjakkana í liðinu sem eru allir sem einn fjallmyndarlegir. Ekki nema von að maður ætli að fara til France á næsta ári. Já kidz, ég er ekkert annað en ofsabitur í dag enda engin ástæða til annars, þið eruð með disrespectið á hæsta og eruð alveg að skíta á ykkur.

miðvikudagur, janúar 28, 2004

Jæja lömbin mín, Britney í Toxic myndbandinu....nokkuð gott, nokkuð gott...

sunnudagur, janúar 25, 2004

Ísland bara dottið úr Evrópukeppninni! Hvað eru menn eiginlega að meina?

laugardagur, janúar 24, 2004

Saturday mar! Gott mál pjakkar! Búið að bjóða DT á enn eina undirfatasýninguna og allt í góðu glensi enn sem komið er. Skellti mér á opnun franskar kvikmyndahátíðar í gærkvöldi eins og sönnum pjakki sæmir og lét fólk ekki komast upp með neitt kjaftæði. Boðið upp á kokteila eftir sýninguna og doddinn stóð eins og heldri maður með rauðvínsglas í einni og vindil í hinni, maður klikkar ekkert á dem basics! Fór svo bara heim að lúlla og mætti sprækur á æfingu kl. 9...damn Haukar! Jæja, þessar æfingar eru nú bara búnar að eyðileggja alla föstudaga fyrir manni í fjögur ár þannig að maður ætti nú að kunna að meta þær, ekki satt annars? Svo er maður bara búinn að vera í þessu líka fína yfirlæti, chillin´ upp í rúmi með dem hoz...segi nú bara svona, DT myndi ekkert gera slíkt, u know dat. Maður er ekkert annað en kurteisin uppmáluð all day long, hlustandi á fólk og gefandi ráðleggingar. Ekki skrýtið að maður sé stundum kallaður doddi JT a.k.a Oprah...


föstudagur, janúar 23, 2004

Góðan daginn pjakkar nær og fjær. Vá hvað DT er yfir sig hoppandi glaður í dag, haldið þið ekki bara að hinn undurfagri og þokkafulli thug, miss Gaines sé á leiðinni aftur til landsins! Ég gæti bara ekki verið ánægðari, maður er ekki búinn að vera mönnum sinnandi með tárin í augunum síðan litla sykuratómið hans dodda JT lét bösta sig í USA. En allvega, nú er allt orðið gott aftur og DT sér fram á einstaka gleði og hamingju á næstunni, eða bara hipshake ef þið viljið frekar orða það þannig. Svo voru Haukapjakkarnir ekkert lítið löðrandi í babylotion í gærkvöldi þegar hundarnir í Tindastóli komu í heimsókn með þrjá alvöru svertingja í liðinu. Aumingja fólkið sem mætti ekki á leikinn því kynþokkinn sem menn voru að sýna af sér var roooosalegur! Eins og venjulega var DT ruglandi í crowdinu frá upphafi til enda, berrassaður og deadsexy með nýja góminn sinn frá doktornum. Annars var liðið ekki alveg með allt sitt á hreinu í byrjun en í fjórða leikhluta varð allt vitlaust upp í pöllum þegar pjakkarnir fóru að hrista á sér axlirnar í 2/4 takti eins og Beyoncé í Crazy in love myndbandinu. Stólarnir voru einhverjum 8 stigum yfir þegar hasarinn byrjaði en Kuki, starvin marvin 2, var ekkert að nenna því og ákvað að jafna leikinn með tveimur þristum og körfu, ágætis framtak myndi ég segja...svo skellti maður niður fjórum síðustu stigunum til að fá viðtal við sig í mbl. og þeir sem vilja skoða snilldina sem ég lét út úr mér þar verða bara að skella sér á eintak.
Svo eru komnar nýjar spurningar í gestabókina og tilvalið að svara þeim, verið svo bara hip og kúl eins og unga fólkið og passið að taka ekki Peter André á þetta!

fimmtudagur, janúar 22, 2004

HAUKAR-TINDASTÓLL Í KVÖLD KL. 19.15! MIKILVÆGT AÐ ALLIR MÆTI!

þriðjudagur, janúar 20, 2004

Halló elskurnar mínar! Hvað segið þið í dag? Þetta hefur nú aldeilis verið viðburðaríkur dagur í lífi doddans. Strákurinn er búinn að vera á ferðinni í allan dag að læra allt það nýjasta sem er í gangi hjá unga fólkinu. Unga fólkið er með allt sitt á hreinu og lætur enga dóna vaða yfir sig, eða eins og vinkona mín hún Kelis myndi orða það; my milkshake brings all the boys to the yard...eða eitthvað. Allaveganna er þetta lið ekkert að klikka á renndu hettupeysunum, ekki frekar en Dr. Ottó sem er búinn að kaupa sér að minnsta kosti tvær. Glæsilegt framtak hjá litla kútnum. Svo voru pjakkarnir í unglingaflokki að japla á Njarðvík í gærkvöldi, Pimpomilinn, Villinn og Kjarri smartass voru víst að standa sig best en Sæsinn var víst ekki langt undan. Gunnar Birgir, hleypti villidýrinu lausu og skellti sér á eina tæknivillu. Ef menn vissu það ekki fyrir er GB ekkert annað en fyrirtaks terroristi sem kemur sífellt á óvart og hefur alltaf einhver skemmtileg tromp upp í erminni þegar það vantar eitthvað upp á stemmninguna on da court, eins og blökkumaðurinn myndi orða það. Já, þó maður geri ekki annað en líta rétta af Gunna B, gæti það verið manns síðasta verk því bin Laden Norðursins sýnir enga miskunn.
Ekkert grín að lenda í honum skal ég segja ykkur...
Ekki meira um það í bili, doddinn var nefnilega að setja saman rímu um starvin marvin og ef nógu margar áskoranir berast er aldrei að vita nema maður leyfi ykkur að sjá
afraksturinn...

sunnudagur, janúar 18, 2004

Gleymdi að segja ykkur frá einu, þegar ég var að fara út í gærkvöldi fór ég út með ruslið í leiðinni og tók eftir að það var í gangi gleðskapur á neðri hæðinni. Fyrir utan útidyrahurðina hjá mér var fullt af fólki í góðum gír. Svo þegar ég opnaði hurðina blasti bara við mér enginn annar en sjálfur Jón Ásgeir Bónusmaður og ég var einmitt með tvo Bónuspoka til að henda. Svo var einhver voða sniðugur í hópnum og sagði: "huu huu, þessi verslar bara í Bónus!". Ég sagði fíflinu nú bara að halda kjafti og svo hélt ég mína leið, fannst þetta samt dáldið fyndið...jæja, langaði að deila þessari reynslu með umheiminum...

Komið öll blessuð og sæl! Jæja, þá er enn ein helgin að verða búin og heil skólavika framundan. Svo er idolið bara búið og allur sjarmi gjörsamlega horfinn af föstudögunum, það verður bara að hafa það og biður DT fólk bara að taka nokkur dansspor ef því líður eitthvað illa yfir því. Annars var maður bara í rólegheitunum á föstudaginn, skellti sér í skólann til að rugla aðeins í liðinu. Henti sér svo í tannlæknadeild HÍ til Dr.Ottó og lét hann taka mót af mínum ákaflega vel skapaða efri gómi svo Ottóinn geti búið til hlífðargóm handa pjakknum svo fallegu tennurnar hans brotni ekki á dansgólfinu. Ottóinn var að standa sig vel í hvíta sloppnum og er doddi JT ekki frá því að strákurinn eigi eftir að verða þessi líka fíni tannlæknir. Segðu ahhhh, segðu ahhhh, og svo spýta! Já, þó Hr. Ottó hrjóti kannski á við 10 gamla karla á Elliheimilinu Grund, þá veit kúturinn nákvæmlega hvernig á að haga sér í kringum tannlæknastólinn enda búinn að horfa á eðalræmuna Lucy does it in the dentist chair oftar en góðu hófi gegnir.
Á laugardagsmorguninn missti maður svo af æfingu hjá coach Reyni vegna gríðarlegrar snjókomu sem var ekkert að bjóða upp á skemmtiferð til Ásvalla. Ég tók bara hressarann á þetta í staðinn og sé ekki eftir því, staðurinn var fullur af hip og kúl fólki sem lætur sér annt um líkamlegt atgervi sitt og lýsir doddi JT hér með yfir mikilli ánægju með þá aðila. Um kvöldið fór maður svo til Reykjavík city að horfa á einhverjar kviknaktar stúlkur sýna undirföt frá versluninni Ég og þú, doddinn hefur bara sjaldan séð annað eins, stelpuskjáturnar voru sannarlega léttklæddar og stóðu alveg fyrir sínu. Annars er dodda timberlake ekkert gefið um of mikla nekt enda siðprúður maður með eindæmum. Eftir þessa annars ágætu sýningu, tók maður rúnt á helstu skemmtistöðum borgarinnar en DT var nú ekki alveg að kaupa þetta lið sem hann sá þarna. Fólk verður aðeins að passa upp á kúlið og taka lífinu með ró, menn voru greinilega ekki með hlutina á hreinu í gærkvöldi og sá DT það langar leiðir. Svona er staðan bara í dag, fólk veit ekkert hvernig það á að haga sér þarna úti og þó ég sé allur af vilja gerður er lítið sem maður getur gert...

föstudagur, janúar 16, 2004

TILKYNNING, TILKYNNING: DODDINN ER NAGLI, DODDINN ER NAGLI! KALLINN SKELLTI SÉR Á HJÓLI FRAM OG TIL BAKA Í HRESSARANN Í ÞESSUM LÍKA GRÍÐARLEGA SNJÓSTORMI! ...sá reyndar einhvern vel bilaðan gæja að viðra hundinn sinn á leiðinni, veit ekki alveg hvað var málið með það...allaveganna, DODDINN ER NAGLI!

Kæru vinir! Vonandi eru allir hressir og kátir með bling bling um hálsinn í dag. DT er í það minnsta vel hlaðinn af skarti eins og venjulega enda ekki annað hægt að klæða sig vel í þessum kulda, og þá er ekkert sem heldur jafn vel á manni hita og feit keðja um hálsinn. Annars skelltu Haukapjakkarnir sér til Hveragerðis í gærkvöldi til að troða yfir einhverja Hamarsmenn í rólegheitunum og taka snúning á gólfinu. Menn voru með grúvið á hreinu frá fyrstu mínútu og áttu dansgólfið allan tímann. Nokkrum í liðinu fannst spennustigið fyrir leikinn samt ekki vera alveg nógu hátt og ákváðu að gleyma búningunum upp á Ásvöllum til að kynda aðeins upp í mannskapnum. Búningarnir voru því ekki komnir fyrr en hálftíma fyrir leik og coach Reynir orðinn alveg vitlaus. Þetta virkaði samt vel á pjakkana því sumir voru byrjaðir að hita upp berir að ofan í boxernum og voru allir sem einn að taka sér DT til fyrirmyndar sem var að sjálfsögðu butnaked allan leikinn. Reynirinn átti setningu kvöldsins þegar hann stóð á hliðarlínunni og doddinn kýldi hann í mesta bróðerni í magann. Kallinn fór greinilega í gagnrýna sjálfskoðun við þetta og lét þessi fleygu orð falla: "Hey lappirnar eru útaf en maginn er samt inná, hummmm"...já væni minn, þetta er nákvæmlega það sem gerist þegar menn vanrækja á sér sixpakkinn og láta ekki sjá sig á dansgólfinu vikunum saman. En nóg um það, doddinn hefur trú á að Reynirnn ráði bót á þessu og safni sér í myndarlegt þvottabretti á nýja árinu...right...En verum ekki að hugsa meira um það, DT hefur margt annað á sinni könnu en að hvetja fólk til að mæta í ræktina og biður menn bara um að hafa sína hentisemi.
Svo eru úrslitin í idolinu í kvöld og er DT gríðarlega spenntur að sjá hver af litlu pjökkunum verður poppstjarna Íslands. Annars er þessi keppni hálf tilgangslaus því vitaskuld er doddi JT eina alvöru poppstjarna Íslands og er ekkert gefið um neinar eftirlíkingar. Maður er ekkert búnn að eyða bróðurparti ævinnar á dansgólfinu til þess eins að eitthvað fólk út í bæ sé að stela öllum múvunum manns. En ekki orð um það meir, DT er löngu hættur að nenna að taka bitra manninn á þetta og lætur ekkert fara í skapið á sér. Strákurinn er geðgóður með afbrigðum og tekur ekkert reiðina á þetta, hefur annars einhver séð dodda timberlake öðruvísi en með vel glennt sólheimaglott? Held bara ekki!

fimmtudagur, janúar 15, 2004

ÁRÍÐANDI SKILABOÐ: HAMAR-HAUKAR Í KVÖLD KL. 19.15, DODDI JT BER AÐ OFAN ALLAN LEIKINN!

þriðjudagur, janúar 13, 2004

Góðan daginn gott fólk! Hvað syngur í mönnum á þessum síðustu og verstu? Ég veit í það minnsta að DT er hæstánægður, bara kominn linkur á DT á Haukasíðunni og lífið brosir við kallinum. Ég skal sko segja ykkur að það er gott að vera stjarna og þó maður deiti kannski ekkert Ardísina á næstunni þá er margt sem doddinn getur verið ánægður með. Gamla dúkkan hans JT, hún Britney ætlar loksins að gera það sem strákurinn er búinn að vera að mæla með síðan þau hættu saman, og skella sér í meðferð. Ekki vanþörf á því það veit það hver heilvita maður að Britneyin var alltaf vel við skál meðan hún var raulandi lögin sín fyrir litlu krakkana. Svo gifti elskan sig um daginn og vissi DT alveg að það myndi ekki endast því big B vill bara doddann sinn og skyldi engan undra. Annars er maður nýkominn af æfingu hjá coach Reyni, í kvöld var Reynirinn að kenna nokkur ný dansspor sem við getum notað á móti Hamri í stórleik vikunnar 2morrow nite í Hveragerði. Hveragerði er sko einn lélegasti staður sem doddinn hefur komið til og finnur hann ekki neitt gott um hann að segja þó hann reyni eins og hann geti. Það var einu sinni Tivoli þarna og þangað fór doddi JT einhverju sinni þegar hann var lítill, það var nú ekki mikil skemmtiferð því doddinn var settur á hestbak og hefur aldrei á ævinni verið jafn hræddur. En nóg um það, ef hinir kynþokkafullu Haukapjakkar sýna sinn fagra limaburð á vellinum er enginn hætta á öðru en litlu kútarnir í Hamri fari alveg í kerfi og klikki gjörsamlega á gömlu dönsunum sem þeir hafa verið að bjóða uppá í vetur. Doddi Timberlake hefur enga trú á öðru en þetta gangi allt saman vel enda hafa pjakkarnir hans Reynis verið duglegir að mæta í dansstúdíóið og æfa allt það nýjasta og eru allir sem einn hip og kúl, löðrandi í babylotioni frá johnson&johnson. Já, doddinn hefur ekki nokkrar einustu áhyggjur af þessu enda veit hann alveg að ef menn eru bæði kynþokkafullir og kúl er ekkert sem getur stöðvað þá. Svo verður DT að benda fólki á að skella sér á Haukasíðuna og skoða coverið af nýjustu plötunni sinni. Umboðsmaðurinn hans dodda JT, Mr. Emil Millalicious, er búinn að leggja við dag og nótt í hönnunarvinnu og hefur loksins náð að fanga stemmninguna sem hann var að leita eftir. Doddi Timberlake getur ekki verið annað en ánægður með útkomuna enda er þetta flottasta cover sem strákurinn hefur nokkurn tímann séð og hvetur DT bara alla til að henda sér í snatri inná Haukasíðuna og smella á Fjalarinn hægra megin. Svo vill doddinn bara að lokum neita öllum sögusögnum um sjálfan sig og eina væna úr Seljahverfinu, DT skilur ekkert í fólki að nenna þessu bulli og biður menn bara um að hafa sig hæga. Doddinn er á lausu og lætur fólk ekki komast upp með neitt slúður!

sunnudagur, janúar 11, 2004

Sælt veri fólkið! Þið eruð nú meiri kyntröllin ha!!! Já, það er sko alveg á hreinu að doddi JT leggur ekki lag sig við neitt annað en ríka og fallega fólkið enda er engin framtíð í öðru. Svo er þessi líka fína helgi bara að verða búin, helgi sem DT notaði til að safna meira í sixpakkinn og fara á stjörnuleikinn í Seljaskóla. Þar bar að líta einhverja wannabe Haukamenn sem eru ekki nógu kynþokkafullir til að fá að spila í rauða búningnum, eins og Frikka Stefáns og Darryl Lewis, og að sjálfsögðu eðalpjakkana Sigga ekki troða yfir mig aftur, Sæsa litla kút og Mr. Manciel. Eins og venjulega stóðu drengirnir fyrir sínu og létu ekkert vaða yfir sig á gólfinu. Þetta var fínasti leikur og menn voru lítið í því að geispa í áhorfendapöllunum. Svo gerðist dáldið ótrúlega merkilegt á laugardagskvöldið, við skelltum okkur nokkrir pjakkarnir á Broadway í smá hipshake, ágætt bara, og á leiðinni heim stoppuðum við á Select og þar sá DT uppáhalds íslenska idolið sitt hana Ardísi. Menn halda kannski að það hafi verið eitthvað fagnaðarefni fyrir doddann en það var sko öðru nær, Ardísinn er svona 150% sætari í sjónvarpinu heldur en í alvörunni, og ég er bara búinn að vera niðurbrotinn maður síðan ég sá hana. Þetta er alveg hrikalegt, maður er búinn að kjósa þessa konu margoft þó hún syngi af álíka miklum tilfinningahita og rakvélablað og svo er hún bara ekkert skvís. Jæja, kannski var þetta af því að ég horfi alltaf á idolið ruglað...gæti verið. Alltaf er maður að lenda í svona bulli, ég meina hvað ef DT hefði verið búinn að senda Ardísinni fanmail? Maður vill ekki einu sinni hugsa þá hugsun til enda...hver þremillinn!
Já, doddi timberlake verður lengi að jafna sig á þessu og eins gott að sýna kallinum smá nærgætni á næstunni svo hann fari bara ekki að skæla....

föstudagur, janúar 09, 2004

Gott fólk, ég færi ykkur slæmar fréttir. Eitthvað sem enginn bjóst við er orðið að veruleika. Haukar eru dottnir úr bikarkeppninni og það á móti Keflavík. Ég veit að þetta kemur gríðarlega á óvart enda bjuggust allir við öruggum sigri hinna fögru Haukamanna. En svona er lífið, óvæntir hlutir gerast í sífellu og ekki mikið við því að gera. Í lífinu kemur það af og til fyrir að góðu gæjarnir tapi og þeir vondu vinni, veruleikinn er enginn fjölskyldumynd frá Tristar pictures og við verðum bara að sætta okkur við það. Þetta var annars ágætis leikur að öllu leiti nema við létum í minni pokann fyrir andstæðingi sem fyrirfram var talinn mun veikari en við. Ég held í alvöru að enginn sem eitthvað minnsta vit hefur á körfubolta, hafi haldið að Keflavík myndi vinna í kvöld. Í því liði er ekki einn einasti leikmaður sem myndi halda út á dansgólfinu lengur en svona eitt til tvö lög og aldeilis ótrúlegt að þeir hafi unnið. Ég er eiginlega felmtri sleginn og steinhissa á þessu og get rétt ímyndað mér að körfuboltaheimurinn sé yfir sig gáttaður. En jæja, það sem er liðið er liðið og engum hollt að staldra of lengi við í fortíðinni. Tvímælalaust óvæntustu úrslit tímabilsins.
Sjálfur átti ég enn einn stórleikinn á bekknum, spilaði ekki eina einustu mínútu enda vorum við Villi jumpstep, einnig þekktur sem Villi pjakkur, alltof góðir í síðasta leik. Kom meira að segja mynd af okkur í blaðinu þannig að það var ekki skrýtið að coach Reynir kippti bara Villa úr hópnum og léti mig sitja á bekknum allan leikinn. Já gott fólk, Haukar spila í rauðu og eru ekkert nema ekta kommúnistar af gamla skólanum, enginn má skara fram úr og ef maður leyfir sér það láta afleiðingarnar ekki á sér standa. Auðvitað áttum við Villinn bara að hafa það bakvið eyrað í síðasta leik og láta það vera að standa okkur vel. Við ösnuðumst samt til að láta líta út fyrir að við gætum eitthvað í körfubolta, eitthvað sem við máttum auðvitað alls ekki, og súpum nú seyðið af því. Coach Reynir ég vil bara nota tækifærið og biðja þig afsökunar fyrir hönd okkar félaganna, við lofum að standa okkur ekki jafn vel næst þegar þér þóknast að láta okkur spila og hver veit nema við fáum þá að taka þátt í einhverjum leikjum í vetur. Væri það ekki skemmtilegt, gamli?

Það er nú langt síðan DT hefur verið að taka bitra kallinn á þetta og nennir hann því ekki lengur. Lífið er meira en körfubolti og engin ástæða til að láta þetta hafa of mikil áhrif á sig. Þótt Haukar hafi tapað í kvöld eru þeir ennþá kynþokkafyllsta liðið í deildinni og ekkert sem getur breytt því. Svo er búið að velja Sæsann í stjörnuliðið enda stendur da star alltaf fyllilega undir nafni. Auðvitað á kallinn það fullkomlega skilið og hvet ég alla til að mæta í Seljaskólann á laugardaginn til að horfa á litla pjakkinn taka mann og annan í kennslustund. Svo var my man AJ að gefa mér fullt af miðum á Motown showið sem hann syngur í á Broadway og ef ykkur langar að skella ykkur með dodda JT á laugardagskvöldið þurfið þið ekki annað en biðja um miða.

miðvikudagur, janúar 07, 2004

Nú eru jólin liðin og ekkert framundan annað en kaldur veturinn. Þetta er einmitt sá tími ársins sem kemur sér vel að eiga betri helming til að kúra hjá meðan svalir vetrarvindarnir blása. Fyrir þá sem eru ekki svo lánsamir er fátt annað að gera en gráta sig í svefn á hverju kvöldi, og draga fram bangsann Benjamín sem var síðast notaður í janúar 2003. Það er einmitt það sem ég ætla að gera í nótt eins og alltaf á köldum vetrarnóttum. Annars finn ég hvernig tilfinningarnar eru að bera mig ofurliði þannig að ég ætti kannski ekki að vera að skrifa meira í bili...tárin streyma nú þegar niður kinnarnar eins og beljandi stórfljót...eða kannski ekki alveg...allavega síðasti veturinn manns á Íslandi í bili, hugga mig við það...

MIKILVÆG SKILABOÐ: NÚ STYTTIST ÓÐUM Í SJÓÐHEITAN BIKARLEIK HAUKA Á MÓTI KEF!!! DANSATRIÐI Í LEIKHLÉI. SKEMMTUNIN HEFST KL. 20.30 ANNAÐ KVÖLD ...og svona svo enginn sé að misskilja neitt þá verður illa séð ef fólk mætir ekki...SVERTINGJAR Í BÁÐUM LIÐUM!!!

mánudagur, janúar 05, 2004

Já gott fólk, það má segja að þeir sem eru Hip og Kúl hafi ekki verið sviknir af því að mæta á Ásvellina í gærkvöldi. Hinir eldheitu og súkkulaðibrúnu Haukapjakkar fóru þar aldeilis á kostum í engu öðru en brjáluðum dansi. Menn voru ekkert feimnir við að hrista á sér skankana í trylltum takti og litlu kútarnir í KFÍ vissu ekkert hvað þeir ættu að gera, enda er hipshakið ekkert komið ennþá til Ísafjarðar. Coach Reynir var meira að segja með allt það nýjasta alveg á hreinu og hikaði ekki við að hrista dat fat ass framan í crowdið sem trylltist gjörsamlega þegar Reynirinn tók til við að tvista í leikhléi. Doddi Timberlake hefur aldrei séð annað eins og getur ekki annað en vorkennt öllum þessum fyrrverandi vinum sínum sem mættu ekki á leikinn og misstu af öllu saman.
Annars er ekki hægt að kvarta yfir fræga og fallega fólkinu sem mætti að horfa á doze sexy beasts í Haukum, það var algjörlega að standa sig og hikaði ekki við að taka andvörp af aðdáun í hvert skipti sem einhver pjakkurinn töfraði snilldina sína í smettið á Ísfirðingi. Það mætti halda að menn hafi verið á dansgólfinu til 8 á sunnudagsmorguninn því múvin sem þeir komu með voru rooosaleg!!! Villi jumpstep einnig þekktur sem Villi Tilli, tók öll bestu sporin hans Michaels Jacksons á óaðfinnanlegan hátt og skellti 17 kvikindum í körfuna, Mike download Manciel var heldur ekkert slor og sýndi að kallinn hefur tekið back dat ass up við fleiri en eina blökkukonu um ævina, Pimpomobilinn a.k.a kiddi lady´s night stóð líka fyrir sínu og sáldraði nokkrum stigum á greyin í KFÍ. Doddi JT lét ekki sitt eftir liggja í moonwalkinu og stóð sig bara vel strákurinn með 15 stig. Ingvar assshake og Dóri D.N.A tóku líka snúning á parketinu og fengu að launum 12 stig á mann, Mr. Siggi lét engan troða yfir sig í þetta skiptið og hikaði ekki við að hrista á sér axlirnar framan í alla á svæðinu með 11 stig. Sævarinn nennti ekki að skora nema 4 stig en gaf bara 11 stoðsendingar í staðinn, enda er da star alltaf til í að hjálpa vinum sínum að skora á dansgólfinu. Það er sko ekki hægt að segja annað en Haukarpjakkarnir hafi munað eftir babylotioninu frá johnson&johnson í gærkvöldi því menn voru ekkert annað en íssvalir en eins og allir vita er íssvalur það eina sem er svalara en svalur!
Annars er doddinn þinn ekki nógu ánægður með liðið sem mætir ekki á völlinn og missir af öllu fjörinu, fólk má ekki gleyma því að það lifir bara einu sinni og ef það lætur svona hluti framhjá sér fara er bara best að það skelli sér beint á prjónanámskeið í Elliheimilinu Grund og hekli til æviloka. Yeah baby shake dat ass, ummm momma!!!

sunnudagur, janúar 04, 2004

TILKYNNING TIL ALLRA SEM ERU HIP OG KÚL: STÓRLEIKUR Í KVÖLD, HINIR SYKURSÆTU HAUKAPILTAR Á MÓTI KJÁNUNUM Í KFÍ!!! EF ÞÚ MÆTIR EKKI VEISTU EKKERT HVAÐ HIPSHAKE ÞÝÐIR! 2nite klukkan 19.15. Doddi JT í trylltum dansi allan leikinn!

föstudagur, janúar 02, 2004

Góðan daginn vinir mínir! Þá er nýja árið bara komið og menn alveg í skýjunum. DT var nú samt að fá alveg magnaðar fréttir af góðvinkonu sinni sem hefur stundum sést svífa um dansgólfið með doddanum sínum. Þetta er alveg búið að rústa svefninum hjá stráknum síðan á gamlárskvöld og ég veit ekki alveg hvort ég á að fara með þetta lengra...en úr því það eru nú bara fáeinar milljónir manna sem lesa þessa síðu þá er kannski í lagi að maður segi bara söguna. Hún miss Gaines stórvinkona mín skellti sér til USA um hátíðirnar og gerði sér lítið fyrir og lét henda sér beint í jailið, hún er semsagt ekkert á leiðinni aftur til Íslands á næstunni. Hunangsflugan hans dodda var tekin föst fyrir bílþjófnað og skjalafals! Þetta er heilagur sannleikur enda myndi Mr. DT a.k.a shake dem shoulderz, a.k.a bodyscrub ekki detta í hug að skrökva þessu. Miss Gaines er sko kona sem veit hvernig á að bera sig að í mjaðmakippunum og er doddinn ekkert hissa á að ungfrú grand theft auto hafi verið glæpakvendi af bestu sort! En nóg um miss Gaines, þó hún sé gangster átti hún ekki breik í doddann og er kallinum alveg sama þó hún komi ekki aftur.
Um áramótin skellti DT sér á Hraunholt og hitti nokkra bræður sem voru vel blekaðir í tilefni dagsins, gott hjá þeim. Það var rífandi stemmning og skemmti ég mér bara ágætlega. Að sjálfsögðu tók maður sporið með uppáhalds dansifélaganum sínum enda hefði doddi JT ekki tekið neitt annað í mál. Tónlistin var samt ekkert að trylla lýðinn neitt sérstaklega og verða menn bara að hafa vit á því að spila meiri Justin ef þeir vilja ekki að allt fari í rugl. Vitaskuld var strákurinn ekkert að drekka enda veit pjakknum ykkar ekki alveg hvað honum finnst um þessa drykkju, fólk endar oft í einhverri vitleysu og gerir hluti sem fá doddann nú bara til að hrista höfuðið.
Annars var ég að setja kommenta kerfi á síðunu og hvetur doddi JT alla til að tjá sig ef þeir hafa einhverju sniðugu við að bæta...



fimmtudagur, janúar 01, 2004

GLEÐILEGT ÁR HJARTAGULLIN MÍN! TAKK FYRIR ALLT GAMALT OG GOTT!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?