<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur, febrúar 29, 2004

Mér var að berast áríðandi tilkynning: STÓRLEIKUR HELGARINNAR Í STYKKISHÓLMI, SNÆFELL-HAUKAR, DODDI TIMBERLAKE OG ALLIR PJAKKARNIR Í TRYLLTUM DANSI, COACH REYNIR FER MEÐ GAMANMÁL Í HÁLFLEIK OG PJAKKARNIR MEÐ SÉRSAMIÐ ATRIÐI Í LOK LEIKS, KALLAÐ SIGURDANSINN....já litlu rósamunstruðu koddarnir mínir, leikurinn í kvöld verður roooosalegur, Snæfellingar geta orðið deildarmeistarar ef þeir vinna okkur og húsið verður áreiðanlega fullara af fólki en botninn á JayLO er af silikoni, haldið þið að sé gott fólk. En þeir vinna okkur ekkert, við erum sexy as hell og ekkert getur stöðvað okkur.

Svo er ég hérna með smá skilaboð til da hunkmaster: Endalaus fagmaður félagi! Millalicious a.k.a Emil gerði DT þennan líka stóra greiða í gær og er ég svo ánægður með hann að það hálfa væri nóg.

Villi sexy beast og Hr. Steini ég mæti þegar mér sýnist, eiga líka inni hjá pjakknum sínum....passið svo bara að vanrækja ekki Milkshakið...

laugardagur, febrúar 28, 2004

Góðan daginn elsku litlu hunangsflugurnar mínar! Enn og aftur er runnin upp laugardagur og eru það mikil gleðitíðindi. Í kvöld ætla ég að kíkja á dansgólfið með nokkrum félögum og sýna fólkinu allt það nýjasta sem ég lærði í dansstúdíóinu í vikunni. Annars vildi ég bara benda fólki á nýju myndirnar í myndaalbúminu. DT og hans hægri hönd, Emil da hunkmaster kíktu saman á djammið og tók Millalicious nokkrar myndir af pjakknum sínum. Svo fékk Emil nýlega sent eintak af ákveðnu tímariti sem gefið er út í USA og hver haldið þið að sé á forsíðunni annar en ég sjálfur. Ekki meira um það í bili, verið bara stillt og prúð og þá er aldrei að vita nema að ég komi og knúsi ykkur...

fimmtudagur, febrúar 26, 2004

Sælir kútar, þá er leikurinn búinn og vil ég hér með þakka þeim fjölmörgu sem ákváðu að mæta. Þetta var nú samt hrikalegur leikur. Við gátum ekkert og það eina sem bjargaði okkur var að Þórsararnir gátu ennþá minna. Kynþokkafyllstur var Sævar en Mike og Kuki voru líka að kveikja í kellingunum. Ég fékk þetta líka stórgóða tækifæri til að sýna hetjuna innra með mér þegar ég fékk galopið skot þegar voru svona 1 1/2 mínúta eftir og við bara 3 stigum yfir. Aldrei þessu vant klikkaði doddinn á ögurstundu og biður að sjálfsögðu alla hlutaðeigandi afsökunar. Sem betur fer kom Sæsinn til bjargar og setti nokkur víti í lokin. Sæsinn er alltaf til staðar þegar maður þarf á honum að halda enda er strákurinn ekki bara lítill kútur heldur líka pjakkur sem sér um doddann sinn in time of need. Um eigin frammistöðu í leiknum vil ég nú ekkert vera að fjölyrða, ég var svona í Skímó fílingnum bara, vantaði í mig allan Jónsa og söngurinn eftir því...Ha???
Anywayz, þið getið aldrei getið upp á því hver mætti á völlinn að skoða strákinn...ég ætlaði ekki að trúa eigin augum í þriðja leikhluta þegar sjálf Andrea Gaines mætti í pallana með fríðu föruneyti. Ég er sko ekki að grínast, hún mætti blessunin og ég er farinn að halda að þetta Miss Gaines grín mitt sé að fara aðeins of langt. Grunar nefnilega að einhver hafi gaukað að stúlkukindinni að maður væri soldið að tala um hana og nú er stelpan alveg tryllt í pjakkinn ykkar. Eiginlega er ég með öruggar heimildir fyrir að ákveðin kærasta ákveðins leikmanns hafi sagt ákveðinni frænku téðs leikmanns að DT væri að bulla meira en góðu hófi gegndi um títtnefnda Miss Gaines, og þessi ákveðna frænka áðurnefnds leikmanns hafi svo sagt áður téðri Andreu Gaines frá öllu saman. Já, DT kann að orða hlutina gott fólk.

En yfir í aðra sálma, það er nú ekkert nýtt að DT þurfi að berja af sér einhverjar kvensur sem eru á eftir honum og það þýðir ekkert að hafa of miklar áhyggjur af því. Öllu verra er að maður hefur ekki verið nógu duglegur í skólanum undanfarið og nú sýp ég seyðið af því. Þarf að gera fullt af missniðugum hlutum og það er sko enginn sem getur hjálpað mér, ekki eins og pjakkarnir mínir tali frönsku svo ég er algjörlega on my own. Það verður bara að hafa það og ef að í harðbakkann slær gæti ég alltaf tékkað á henni Andreu minni og séð hvort hún kunni eitthvað í tungumáli ástarinnar...blink blink ;)
Nei svona þegar ég hugsa um það...held bara ekki...


miðvikudagur, febrúar 25, 2004

Ég er svo aldeilis hissa, ég fékk bara hugljómun. Ég veit nákvæmlega hvað ég ætla að verða og það var sko tími til kominn. Var í rólegheitunum á röltinu að ná strætó eftir skólann í dag, í þungum þönkum eins og fólk er oft þegar það er eitt á tölti. Svo fór ég allt í einu að hugsa um framtíðina og eins og fyrir einhverja töfra vissi ég allt í einu hvað framtíðin gæti haft upp á að bjóða fyrir mig. Síðan draumurinn um að komast í NBA brotlenti með hvelli þegar Baldur Ólafs tróð yfir mig, hef ég ekki haft hugmynd um hvað ég gæti verið að gera eftir svona 10 ár, þ.e.a.s ef ég verð ekki dáinn. Er nefnilega alltaf að bíða eftir að geta dáið við að bjarga hundrað manns úr brennandi flugvél. Það væri þá þannig að ég væri kannski einn úti að skokka um kvöld á afskekktum stað, og svo allt í einu hrapaði flugvél beint fyrir framan nefið á mér. Hún myndi ekkert splundrast eða neitt þannig, bara lenda dáldið svona lemstruð og kannski alelda líka. Svo myndi hetjan koma upp í mér og ég myndi hlaupa að brennandi flakinu, rífa upp dyrnar með handafli og bera út alla farþegana 124, sem voru allir sem einn meðvitundarlausir og sumir með brunasár. Svo væri ég búinn að bjarga öllum og þá myndi ég heyra eitthvað hljóð undir einu sætinu, grát eða eitthvað þannig. Ég færi auðvitað að athuga hvaða hljóð þetta væri og nema hvað, er ekki ungabarn fast undir einhverju braki. Meðan ég væri svo að losa litla greyið, tæki ég allt í einu eftir því að eldurinn væri að læsa sig í flugvélarbensínið sem væri náttúrulega komið út um allt. Svo rétt áður en allt springur í loft upp, næ ég rétt svo að koma mér út með ungabarnið sem er hætt að gráta og horfir aðdáunaraugum á hetjuna sína, nema hvað. Svo myndi allt þetta lið sem ég væri búinn að bjarga, bara liggja þarna eins og einhver fífl þangað til löggan og sjúkrabílarnir kæmu. En þá væri ég svo örmagna eftir að hafa bjargað öllu þessu fólki, að ég myndi hrynja á jörðina og steindrepast og segja einhver fleyg lokaorð. Kannski "Ég er bestur" eða "Hahaha þið hélduð að ég væri einhver aumingi!", allaveganna eitthvað nógu frumlegt og frískandi.
Þannig að ef þetta gerist ekki og ég held áfram að vera bara enginn hetja næstu 10 árin, þá ætla ég að verða.........................þjálfari í NBA deildinni!!! Hefur einhver heyrt um að það sé troðið yfir þjálfara??? Nei gott fólk, það hefur sko enginn heyrt um það og það er góð ástæða fyrir því. Það treður enginn yfir þjálfarann. Ég gæti því óhræddur mætt á parketið og ekki þurft að óttast fljúgandi hlunka sem þrá ekkert heitar en að troða yfir DT. Veit ekki alveg hvað ykkur pjökkunum finnst um þetta en mér finnst þetta allaveganna snilld.

Ekki meira um það í bili, á morgun er leikur klukkan 19.15, Haukar-Þór Þorlákshöfn. Þeir sem vilja, mega gjarnan mæta en hinir geta bara étið það sem úti frýs og ef þeir verða í flugvélinni sem hrapar fyrir framan nefið á mér, ætla ég sko ekki að bjarga þeim!


mánudagur, febrúar 23, 2004

Sælir mínir kæru pjakkar, ég veit nú ekki hvort ég eigi að vera að taka bitra gaurinn enn og aftur. Málið er nefnilega það að fólk er búið að antimixa dáldið á gestabókina mína síðustu daga og ekkert verið að svara nýju spurningunum. Þessar spurningar eru sko ekkert slor og ef það liti ekki svona kjánalega út þá væri ég sjálfur búinn að svara þeim oft og mörgum sinnum. Maður er alltaf að passa upp á kúlið sko...
anywayz, það er eitt sem mér liggur dáldið á hjarta og ég hef ákveðið að tala bara aðeins um það og síðan ekki söguna meir. Þannig var nefnilega að í leiknum á móti Njarðvík hérna um daginn, gleymdu blessaðir guffarnir sem voru að taka tölfræðina að skrá heil 5 stig á pjakkinn ykkar. 5 heil stig gott fólk, stundum skora ég ekki einu sinni 5 stig....allaveganna þá skoraði ég 13 stig, man það eins og það hefði gerst í gær, fjórar körfur og fimm víti, samanlagt 13 kvikindi. Ok allt í lagi með það...svo vakna ég hress og graður daginn eftir og ætla að lesa um leikinn og dást að fegurð nafns míns á prenti en þá hefur einhver félaginn aldeilis ákveðið að eyðileggja Cherriosið fyrir doddanum. Haldiði ekki bara að standi skýrum stöfum, Þórður Þ.Gunnþórsson 8 stig...8 stig pjakkar!!! Ég hélt að ég ætlaði að éta helvítis blaðið! Bölvaðar bytturnar mar, ef DT skorar eitt stig þá stendur Þórður Þ.Gunnþórsson 1 stig. Ef doddinn skorar 3 stig, þá stendur Þórður Þ. Gunnþórsson 3 stig, ef maður skorar 5 stig þá....ok þið náið þessu...en svo þegar maður getur nú eitthvað á blessuðum vellinum, fær maður þá nafnið sitt rétt í blaðið??? NEI góðir hálsar, maður fær sko ekki þetta djöfulz nafn sitt rétt í blaðið, munið þið eftir þessu: Þórður Steinarsson átti góðar rispur...eða þessu: Þórir Gunnarsson 16 stig....eða þessu: ungu strákarnir fengu að spreyta sig, Þór Gunnlaugsson sýndi skemmtilega takta...??? Þetta er allt ég gott fólk, Þórður Þ. Gunnþórsson. Það er enginn Þórir í liðinu, það er enginn Þór í liðinu og það er sko enginn helvítiz Þórður Steinarsson í liðinu heldur!!! Er nema von að bitri maðurinn komi upp í mér við þessar aðstæður? Og svo, eins og þetta sé ekki nóg, eru þessi fífl hætt að telja með stigin sem ég skora...hvers á ég eiginlega að gjalda góðir hálsar??

Þá er maður búinn að ræða þessi mál í rólegheitunum við pjakkana sína og mér líður strax betur, Doddinn a.k.a Þórir, a.k.a Þór, a.k.a Mr. Steinarsson kveður í bili...

laugardagur, febrúar 21, 2004

Shiiiiiit hvað ég er góður sölumaður! Ég er sko búinn að vera bullandi í fólki í allan dag. Seldi svona 10 skópör og ruglaði í þessu liði eins og ég hefði aldrei gert neitt annað. Ég skal gefa ykkur smá sýnishorn: Góðan daginn, get ég aðstoðað? Já hlaupaskó segiru, einmitt....já við vorum hérna að fá þessa hér, mjög góðir....já soldið dýrir, 17900kr...hleypuru mikið?....já þú gerir það.....já á hlaupabretti...hummmmm...já þá er mjög mikilvægt að fóturinn fái góðan stuðning...eitthvað ódýrara?...júúúú en þá ertu strax komin með mikið lélegri skó...minni stuðningur við hælinn, enginn gelpúði í tánni....þá er verið að bjóða álagsmeiðslunum heim skal ég segja þér, myndi sjálfur aldrei kaupa mér ódýra skó til að hlaupa í.....taka þessa? Já líst vel á það, ha líkami minn? Nei hann er ekki til sölu frú, hey væri þér sama?!! iiiiiiiiiiiiiiiiiii!!
Þetta var ég semsagt að gera í dag frá klukkan 13-18 í blússandi partýfílíng og skemmti mér konunglega. Það kom samt enginn að kíkja á mig í dag þó sumir hafi verið búnir að lofa, ég er nú samt ekkert sár. Þetta ríka og fallega fólk sem ég þekki er alltaf svo upptekið og ekkert hægt að búast við að það geti bara komið og kíkt á pjakkinn hvenær sem er. Já og talandi um það, DT var að hugsa um vini sína um daginn og komst þá að því að þeir eru hver öðrum fallegri. Ég held svei mér þá að ég þekki bara fallegt fólk og því til staðfestingar var nú einn besti vinur minn hann Jón Páll sykurpúði valinn Hr. Politica á Árshátíð stjórnmálafræðinema í gærkvöldi. Ég er að sjálfsögðu mjög stoltur af litla kútnum mínum og óska honum hjartanlega til hamingju! Svo fór ég að hugsa hvort ég yrði ekki örugglega valinn Hr. Gallía (frönskufélagið heitir sko Gallía) og komst að þeirri niðurstöðu að það væri eiginlega alveg öruggt því ég er um það bil eini strákurinn í fullu frönskunámi...eða það er kannski einn í viðbót en ég er náttla miklu meiri pjakkur en hann...niðurstaðan er semsagt þessi: Líkur sækir líkan heim og þar sem ég þekki bara fallegt fólk og er umkringdur fallegu fólki frá morgni til kvölds getur ekki annað verið en að ég sé fallegur líka! Og svo ekki orð um það meir elsku litla fallega fólkið mitt, mússí mússí ;) Gleðilegan laugardag pjakkar!

föstudagur, febrúar 20, 2004

Jæja, fyrsti vinnudagurinn búinn. Þessi líka fíni vinnudagur, Jón Páll kom og kíkti á mig og svo komu pjakkarnir hver á fætur öðrum, Villinn, Kiddinn og meira að segja Viktorinn líka. Ég er ótrúlega sáttur við piltana að hafa komið og stytt mér stundirnar í vinnunni. Þeir sem komust ekki í dag geta bara komið á morgun eða hinn, eða bara ekkert komið ef það hentar eitthvað betur...allaveganna þá gerðist ekki mikið í vinnunni í dag annað en að ung og snotur stúlka bað mig um að hjálpa sér að velja bikini. Hún sagði sko: "Hey gaur, eigiði ekki einhver bikini", og ef það er ekki pikköpplína þá veit ég ekki hvað! Svo var maður bara að dútla sér eitthvað, raðandi í hillur, þurrkandi af og bjóðandi góðan daginn...nice and easy.

Svo er víst kominn helgi og það er auðvitað hið besta mál. Ég veit nú ekkert hvað ég ætla að gera þessa helgina en ef ykkur dettur eitthvað í hug að gera með mér, megið þið gjarnan slá á þráðinn. Svo vil ég bara hvetja alla til að skrifa í gestabókina mína hérna til hægri og svara samviskuspurningunum sem ég setti þar. Svo að lokum vil ég bara segja eins og Kelis vinkona mín: "Once you get involved, everyone will look this way-so,you must maintain your charm,same time maintain your halo"...Milkshakið kidz, Milkshakið...

fimmtudagur, febrúar 19, 2004

Ok allaveganna eitt jákvætt, það var enginn sem tróð yfir mig. Aftur á móti var troðið svo svakalega yfir greyið hann Kuki (2.05m), héreftir a.k.a Mr. Dunked Over.Hélt að menn væru að grínast inni á vellinum þar sem ég sat og fylgdist með þessu. Hef aldrei séð annað eins, troðslan yfir Sigga á ekki séns í þessa. Frikki Stefáns (2.01m) Njarðvíkingur hamraði í andlitið á "litla" Serbanum okkar, eins og að drekka milkshake! Enda trylltist húsið og helvítis Njarðvíkurliðið líka, við vorum yfir þegar þetta gerðist en svo misstum við það niður og töpuðum með 9 stigum. Ekkert smá svekkjandi og ekki bætti úr skák að my X, hjartagullið mitt og ást lífs míns, Andrea Gaines var mætt á pallana að bera pjakkinn sinn augum. Sem betur fer er ég nú alltaf sexy og sykraður í rauða búningnum hvort sem við vinnum eða töpum og var Miss Gaines alveg að missa sig við að horfa á kappann. Eða það hlýtur allaveganna að vera því ef ég hefði verið að horfa á mig hefði ég að minnsta kosti verið að missa mig...hummmm? Reykja minna Doddi, reykja minna....anywayz kidz þá er mergurinn málsins að við töpuðum leiknum þrátt fyrir að vera mun fallegra lið heldur en Njarðvík, og það meira að segja þótt Dr. Ottó hafi ekki verið með okkur. Það er náttla bara rugl því fallega fólkið hefur alltaf betur, það hefur alltaf verið þannig og stórfurðulegt að það hafi ekki verið þannig líka í kvöld. Skil ekkert í þessu. Hefur enginn þarna úti séð Lion King??? Skari ljótur, Simbi sætur...get the point kidz?? Þarf að tala við einhvern útaf þessu, menn geta ekkert mætt forljótir og illa lyktandi og unnið Haukapjakkana sem geisla allir sem einn af náttúrulegri fegurð og ilma af babylotioni. Ég er hneykslaður!
Bestur í kvöld var eðalpjakkurinn og litli kútur nr. 1, Hr. Sævar. Sæsinn hitti vel og tók flott dansspor inni á vellinum. Svo var ég bara næstbestur svei mér þá (13 stig mar!) Fyndið að ég eigi alltaf mína bestu leiki þegar við töpum, ætti eiginlega að hafa vit á því að spila illa í svona leikjum svo við eigum einhvern séns.

Nóg um það. Á morgun byrja ég að vinna í Útilíf í Kringlunni og þætti mér ótrúlega gaman ef einhver myndi koma og heilsa upp á mig þar. Ég byrja klukkan eitt og verð þarna bara þangað til lokar held ég. Ef þið komist ekki þá, verð ég víst þarna alla helgina þannig að mætið endilega og kastið á mig kveðju. FiveO niggaz, FiveO...

Sælir vinir mínir. Í kvöld fer fram leikur Njarðvíkur og Hauka í Njarðvík kl. 19.15, þetta er dáldið merkilegur leikur því í honum gæti einhver troðið yfir mig annan leikinn í röð. Stay tuned...

Svo eru komnar nýjar spurningar í Gestabókina, þetta eru svona samviskuspurningar og mér finnst að þið ættuð að svara þeim því annað væri sko dónaskapur!

þriðjudagur, febrúar 17, 2004

Sælir kútarnir mínir, spurningin sem brennur á vörum allra er þessi: ER DODDI JT a.k.a DT, a.k.a JT, a.k.a JÓNSI, BÚINN AÐ JAFNA SIG Á YFIRTROÐINU?. Svarið er eftirfarandi: NEI NEI NEI NEI NEI NEI NEI NEI NEI NEI...það er bara ekkert hægt að jafna sig á því að láta troða yfir sig fyrir framan fullt af fólki sem er komið til að sjá mann taka shouldershake í hálfleik, þó Sæsinn hafi verið eitthvað að reyna að stappa í mig stálinu hefur mér ekki ennþá komið dúr á auga síðan þessi atburður átti sér stað og held meira að segja að ég verði aldrei samur aftur...langaði bara að deila þessu með ykkur. Ef ég höndla þetta ekki og þið sjáið dánartilkynningu í mbl. þá er það útaf þessu, nei kannski ekki alveg. Veit einhver þarna úti hvernig mér líður??? Siggi, það var nú troðið yfir þig um daginn, hvernig ertu búinn að höndla þetta??? Er einhver sem getur hjálpað mér? Stolt mitt er sært...

mánudagur, febrúar 16, 2004

TILKYNNING: HAUKAR-KR KL. 19.15 Í GÆRKVÖLDI, DODDI JT DEADSEXY Í NÝJU RAUÐU OG HVÍTU SKÓNUM SÍNUM MEÐ NIKE SVITABANDIÐ SITT...
Já gott fólk, þið lásuð rétt, leikurinn var í gærkvöldi. Nú kann kannski einhver að spyrja sig hvað það eigi að þýða að vera með tilkynningu um einhvern leik þegar hann er búinn. Svarið liggur náttla í augum uppi og hver viti borinn maður ætti ekki að eiga í miklum vandræðum með að finna það . Ef það dugar ekki að setja tilkynningu fyrir leik til að fólk mæti er allt eins gott að setja hana bara eftir leik. Það sýndi sig líka að þar hitti ég naglann á höfuðið eins og fyrri daginn því í gærkvöldi mættu heilir tveir félagar sem hafa ekki sést í allan vetur, Gummi Gun og Hlynur síróp. Þeir sáu líka ekkert eftir því piltarnir því leikurinn í gær var ekkert annað en sjóðandi heit erótísk kvikmynd á Sýn times ten frá upphafi til enda. Kannski var þetta meira svona hardcore klámmari bara því menn voru ekkert að sýna neitt of mikið af boltatækninni sinni í þessum leik og fátt var um fína drætti...hummmm...í það minnsta vorum við pjakkarnir með kynþokkanna á blússandi heitri stillingu og hristum á okkur rassinn sem aldrei fyrr. Kynþokkafyllstur var nú samt Dóri D.N.A sem hlýtur eiginlega að vera sexiest man alive eftir síðustu tvo leiki þar sem hann hefur algjörlega bjargað okkur í lokinn. Í gær sáldraði kallinn 15 stigum í 4. leikhluta og hamraði KR ingana í óæðri endann, eins og gamla frænka mín hefði orðað það. The gospel duo Mike og Whitney stóðu sig líka eins og alvöru klámstjörnur í lokinn þegar dobbel W jarðaði Helga KRing í vörninni og Mike jafnaði leikinn með 3. stiga körfu þegar svona 1 1/2 mínúta voru eftir. Húsið ætlaði líka að tryllast í leikslok þegar pjakkarnir tóku sigurdansinn sinn á parketinu, sumir segja að sigurinn hafi verið steal of the season því við vorum undir allan leikinn. DT er sko langt frá því að vera sammála því og segir nú bara að leikurinn hafi verið meal of the season því KRingarnir voru gómsætir og sjaldan hefur doddinn skemmt sér jafn vel við að kjammsa á einu liði!
Jæja vinir mínir, annars er bara helst í fréttum að pjakkurinn ykkar skemmti sér konunglega um helgina í trylltu hipshake og gaf meira að segja Valentínusargjöf sem sló í gegn ;)
Munið svo bara eftir Milkshakinu og haldið dem hipz heitum!

Æ já, gleymdi alveg að tala um það...það var víst troðið yfir mig í gær gott fólk. Þetta er sko engin lygi, ég stóð þarna undir körfunni eins og algjört fífl þegar Baldur Ólafsson (2.08m) vippaði sér yfir DT og tróð yfir hann. En ekki orð um það meir...aldrei!

laugardagur, febrúar 14, 2004

Góðan daginn Valentíusarhjörtun mín! Hvað segið þið þá á þessum degi ástarinnar? Vonandi eiga allir þarna úti einhvern sem þeir geta glatt með fallegri gjöf. Annars er ég bara nýkominn af hinni sívinsælu morgunæfingu og gæti ekki verið hressari, það gerðist nú samt ekki margt á þessari æfingu nema kannski það Sævarinn, einnig þekktur sem da star talaði ekki um annað en hvað hann væri ógeðslega góður alla æfinguna...ótrúlegt egó þessi strákur! ;) haha Svo er ég að fara að gera dáldið ótrúlega fyndið núna á eftir, þannig var að um síðustu helgi fórum við Whitney aðeins að spjalla um lífið og tilveruna og sonna og kallinn stingur allt í einu upp á því að sniðugt væri að stofna bíblíulestrarhóp í liðinu...2 bring da guyz 2getha doddi, svo ég vitni í hans eigin orð. Jæja væni, sagði ég nú bara og reyndi svo varfærnislega að koma Mr. Gospel í skilning um það að mönnum gæti nú þótt það svona frekar hallærislegt að mæta saman og lesa upp úr biblíunni. Allaveganna hlustaði gaurinn ekkert á það og svo greyið héldi ekki að Íslendingar væru bölvaðir heiðingjar upp til hópa sagði ég félaganum bara að ég væri alveg til í að kíkja til hans og Mike á laugardögum og glugga aðeins í the holy book eins og blökkumaðurinn myndi orða það. Á náttla að þekkja þetta eins og brjóstin á Britney því maður er auðvitað af presta ættum og sonna, málið er bara það að ég hef held ég bara aldrei lesið biblíuna og tími til kominn að maður fari að vinna í því svo maður fari ekki beint til helvítis. Sem betur fer ætla Villinn og Kiddinn báðir að koma með til að passa að maður frelsist ekkert eða neitt þannig...
Annars er laugardagur í dag og það þýðir að sjálfsögðu hipshake og ekkert annað, doddinn er að fara í teiti með frönsku hnátunum sínum enn eina ferðina og ætlar að rugla svo mikið í þeim að þær munu ekki vita sitt rjúkandi ráð frekar en annað fólk sem tekur of mikið mark á DT . Svo vona ég að sjálfsögðu að uppáhaldið mitt hún Thelma skelli sér í bæinn og kíki á dansgólfið með pjakknum sínum enda er Miss T alveg frábær ;)
Verið svo bara stillt og prúð og hver veit nema að doddinn komi með eitthvað fallegt í skóinn til ykkar...

föstudagur, febrúar 13, 2004

Sælir kæru vinir, þá er runnin upp föstudagurinn 13. og fólk búið að vera dettandi og brjótandi bein í allan dag. Þetta lið verður að fá að gera það sem það vill og ef að slasa sig er eitthvað heitt núna er það bara hið besta mál. Annars rúlluðum við pjakkarnir í Smárann í gærkvöldi og börðum aðeins á kettlingunum Breiðablik, þessar elskur voru blíðar og góðar allan leikinn og voru ekki með neitt rugl. Þetta var samt spennandi leikur fyrir hinn almenna áhorfenda því í hálfleik ákváðum við að halda spennunni í syngjandi sveiflu svo fólkið fengi eitthvað fyrir peninginn sinn. Svo skellti coach Reynir hinum síkáta Dóra D.N.A inná í restina til að skora körfu þegar 8. sek. voru eftir og koma okkur tveimur stigum yfir og svo tríllaði Dórinn bara aftur á bekkinn og fékk sér sæti. Tók eiginlega Emilinn á þetta...svo brunuðu Blikarnir í sókn og reyndu einhverjar kúnstir en Kuki kallinn tók það ekkert í mál og varði lokaskotið frá einhverjum samlanda sínum. Þá vorum við eiginlega búnir að vinna leikinn en svo fékk Mr. Gospel hann Whitney tvö vítaskot sem hann skoraði úr. Coach Reynir var búinn að sjá að doddinn gæti snappað í þessum leik og lét mig bara spila einhverjar 7 min, ekki vitlaus ákvörðun það því fólk var á einu máli um að á þessum seven minutes hafi margoft legið við slagsmálum...Bestir voru Mike, Kuki og Stjarnan a.k.a Sævar.
Jæja kidz, er farinn að reyna að vinna í þessu skapsmunum mínum svo ég berji engann í dag, maður er náttla villidýr og þarf að reyna að hemja sig...

fimmtudagur, febrúar 12, 2004

TIKYNNING SEM GÆTI BREYTT LÍFI ÞÍNU: BREIÐABLIK-HAUKAR í KVÖLD KL. 19.15. Á ÞÓRÐUR EFTIR AÐ SNAPPA Á DÓMARANN? Á HANN EFTIR AÐ RÁÐAST Á ÁHORFANDA? VERÐUR SLAGUR Í HÁLFLEIK? KOMDU OG FYLGSTU MEÐ Í SMÁRANUM Í KVÖLD!

miðvikudagur, febrúar 11, 2004

Jæja lömbin mín, mér er aðeins runnin reiðin síðan ég skrifaði hérna síðast. Það þýðir ekkert að fara í fýlu þótt einhverjir nenni ekki að skrifa í shoutoutið, menn hafa í mörg horn að líta og hafa kannski ekkert alltaf tíma til að láta fleyg orð flakka. Ég vil bara biðjast afsökunar á bitra manninum sem kom enn og aftur upp í mér og reyni að hafa hemil á kallinum í framtíðinni. Annars var ég að heyra ljóta sögu áðan, þannig var að prakkararnir í unglingaflokki fóru til Grindavíkur í gærkvöldi til að spila í undanúrslitum í bikarkeppninni. Allt gekk eins og í sögu svona framan af, leikurinn ekkert í járnum og Reynir kallinn alveg rólegur á bekknum. Svo gerðist eitthvað í fjórða leikhluta, veit ekki hvort pjakkarnir hafi farið að hugsa um botninn á Beyoncé eða Milkshakið með Kelis, allaveganna fór allt í rugl. Kjánarnir í Grindavík skoruðu 16 stig í röð á síðustu mínútunum og litlu dúllurnar hans DT sem höfðu verið 9 stigum yfir, í liprum takti, 3 mínútum fyrir leikslok sýndu sjálfum sér þá óvirðingu að tapa leiknum. Coach Reynir var víst alveg brjálaður að þurfa að horfa upp á þetta og hefði örugglega brotið einhverja stóla, en fyrst Bubbi kallinn var ekki með hefur honum ekki fundist það við hæfi. Reynirinn verður nú samt að læra að slaka aðeins á því af mér vitandi kann enginn í liðinu skyndihjálp ef hjartað myndi allt í einu gefa sig, know what i mean coach? Strákarnir áttu nú samt að vinna þennan leik og ég held að enginn viti það betur en þeir sjálfir...
Annars er það helst að frétta að ég er að fara til Benidorm í sumar og þar ætla ég að breyta algjörlega um litarhaft og verða brúnn og sætur...ok, sólbrenndur og sætur þá... Held að þetta verði snilld þó að ég viti ekkert um það, hef aldrei farið í svona sólarlandaferð áður. Dettur samt ekki í hug að heimsækja neitt vændishús eins og maður hefur svona verið að heyra að sumir Íslendingarnir geri í svona ferðum. Ég ætla sko ekki að mæta sprækur með einhvern kynsjúkdóm á Leifsstöð ef fólk heldur það. Las nefnilega um daginn að flestir gagnkynhneigðir einstaklingar á Íslandi sem smitast af HIV smitast einmitt í svona ferðum til útlanda. Ætla sko ekki að verða einn af þeim skal ég segja ykkur!
Svo erum við að fara að keppa á morgun á móti Breiðablik í Smáranum, leikurinn byrjar klukkan 19.15 og ef ykkur langar að koma, megið þið það alveg en ég verð samt ekkert sár ef þið gerið það ekki. Eða jú, verð sár en læt á engu bera. Ég er eins og normalbrauð, harður að utan en mjúkur að innan...hummmm?...

mánudagur, febrúar 09, 2004

Já já hæ og allt það! Hvaða djöfuls stælar eru það að skrifa ekkert í shoutoutið?? Ég fer bara bráðum að halda að fólk hafi eitthvað betra að gera en að lesa þessa síðu...nei annars, það getur ekki verið...
Það þýðir að þetta er bara feitt disrespect!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

laugardagur, febrúar 07, 2004

Sæl og blessuð litlu súkkulaðihjörtun mín! Hvað er að frétta pjakkar? Enn og aftur er runninn upp bjartur og fagur laugardagur og ekkert annað að gera en að taka fram rífandi stemmningu og setja allt í botn. Annars er stemmningin búin að vera bullandi heit síðan í Oldstar leiknum í gær þar sem doddi JT og oldschool kútarnir í Haukum gerðu crowdið vitlaust hvað eftir annað með pjakkaskap af bestu gerð. Kiddi kaldi með kúk í haldi átti tilþrif dagsins þegar hann smellti niður troðslu eftir sendingu frá háttvirtum Sævari. Dr. Ottó var ekki langt undan með einn hrikalegasta þrist síðari ára, spjaldið ofan frá miðbænum a.k.a downtown, Emillaliciousinn var líka með kúlið í botni þegar hann skoraði og brunaði strax á bekkinn. Eitthvað sem engum öðrum en eðalpjakki myndi detta í hug. Hinar þokkafullu og vel máli förnu Haukaskvísur voru víst að spila á undan okkur en því miður var DT upptekinn við að stækka á sér bibbann og tribbann í ræktinni og kom alltof seint að horfa á þessar elskur. Biðst að sjálfsögðu afsökunar en þetta er samt tvímælaust það sem þarf að gera ef maður ætlar einhverntímann að verða eins og Jónsi man in black...Svo var matur á Ásvöllum um kvöldið og menn skemmtu sér hið besta, en enginn jafn vel og Kuki big D sem var ekkert minna en blindfullur og kátur með eindæmum. Moj drugar, ég er ánægður með þig strákur!
Í kvöld ætlar pjakkur nr. 1 svo að mæta í teiti með hnátunum sem eru að læra með honum frönsku og trylla lýðinn eins og hann er vanur, babylotinið verður að duga í kvöld því ekki er maður ennþá búinn að fjárfesta í coacoa butter frá Sueva. Ætli ég verði samt ekki rólegur í öllu hipshaki, þessar elskur sem eru með manni í skóla vita ekkert hvað það er og gætu orðið skelkaðar ef maður færi eitthvað að shaka of mikið fyrir þær...
Jæja rósirnar mínar, þetta verður þá ekki lengra í dag, munið bara að doddinn elskar ykkur og óskar einskis heitar en að þið séuð eiturhress og í dúndrandi stemmningu frá morgni til kvölds. Ó já ástin mín, hristu á þér rassinn!!!

föstudagur, febrúar 06, 2004

Sælt veri fólkið! Ég mæli eindregið með að fólk kíki á myndaalbúmið hér til hægri ekki seinna en strax. DT og Emil Millalicious a.k.a da hunk skelltu sér til USA um daginn og gerðu allt vitlaust. Millinn var að sjálfsögðu með myndavélina uppi allan tímann og náði einni ansi skemmtilegri mynd. Kíkið á þetta kidz...

fimmtudagur, febrúar 05, 2004

Britney sem næsta bondgella, nokkuð gott, nokkuð gott...eða eitthvað bara...er hún ekki í bölvuðu bulli grey stelpan?

mánudagur, febrúar 02, 2004

Góðan daginn litlu kútar, pjakkar nær og fjær. Ég ætla bara að byrja á því að láta fólk vita af alveg sjóðheitri vöru sem er að koma á markaðinn, þessi vara er að gera allt vitlaust enda nokkuð sem sumir blökkumenn taka framyfir babylotion frá J&J. Fólk á örugglega erfitt með að trúa þessu en þetta er nú samt jafn satt og allt annað sem doddinn hefur sett á þessa síðu og ekkert annað að gera en að taka þessu sem heilögum sannleik. Vitaskuld er DT ekkert að rugla neitt frekar en fyrri daginn og litli kúturinn veit hvað hann syngur, hvern ert þú að kalla litla kút, pjakkur? Segi sonna, en að öllu gamni slepptu þá er hér um að ræða byltingu sem gæti gert hverjum sem er kleift að öðlast vinsældir á dansgólfinu. Töfraorðin eru Cocoa butter frá Sueva, DT er með öruggar heimildir fyrir því að þetta sé eitthvað sem eigi eftir að koma í staðinn fyrir babylotionið þegar fram líða stundir og hvetur fólk eindregið til að kynna sér málið.
Svo tókum við pjakkarnir á móti Grindavík á dansgólfinu á Ásvöllum í gærkvöldi, leikurinn var snilld frá upphafi til enda, troðfullt hús af öskrandi áhorfendum sem voru, eins og venjulega, gjörsamlega að missa sig yfir hvað menn voru myndarlegir í nýju Haukabúningunum. Það var reyndar aðeins köttað á kynþokkann hjá DT í þriðja leikhluta þegar einn durturinn í Grindavík ákvað að jafna nefið á mér við jörðu eins og það væri eitthvað hús í Palestínu. Að sjálfsögðu hafði ég vit á því að fá blóðnasir og tölta hetjulega á varamannabekkinn. Svo var maður bara í góðri stemmningu með klaka á nebbanum þangað til coach Reynir ákvað að einhver þyrfti að taka hipshakið fyrir fólkið sem var eitthvað farið að geispa yfir leiknum. Ég henti mér að sjálfsögðu beint inná og did my thing. Bestir í liðinu voru Mike með 31 stig og Sæsi litli kútur, oft kallaður Stjarnan og ekki af ástæðulausu. Dóri D.N.A. var líka búinn að bera á sig réttu vörurnar og skoraði mikilvæg stig í lokin.
Svo að endingu vil ég benda fólki á nýju Kelis plötuna, ég set hana á fóninn á hverjum degi og dilla mér við Milkshakið og hefur aldrei liðið betur...

sunnudagur, febrúar 01, 2004

HAUKAR-GRINDAVÍK Í KVÖLD KL. 19.15, GÆTI EKKI VERIÐ MEIRA SAMA HVORT ÞÚ MÆTIR...þetta var tilkynning dagsins, svo mæli ég með að fólk kíkji á þetta og þetta því hunangsbirnirnir eru búnir að vera að föndra...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?