<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, apríl 27, 2004

Skál í boðinu börnin mín! Það er aldeilis margt sem liggur dodda JT á hjarta á þessum fallega þriðjudegi og ekki úr vegi að ég láti gamminn geysa í eins og nokkrar línur. Fyrir það fyrsta nálgast Eurovision óðum og enn hefur enginn haft samband við konung dansgólfana, Hr. Doddified, í sambandi við múvin sem Jónsi ætlar að nota á milljónir Evrópubúa eftir þrjár vikur. Ég veit ekki alveg hvort ég eigi að taka þessu sem persónulegri óvirðingu við doddann eða hvort þetta lið sé bara að reyna að vera fashionably late með þetta. Staðan er allavega sú að ég er alvarlega að velta fyrir mér að neita að aðstoða Jónsa félaga minn þegar hann loksins ákveður að leita til mín eftir aðstoð við að tæta dansgólfið. Það er sko fullt af fólki sem myndi drepa aldraða móður sína til að fá dodda JT til að kenna sér allt það nýjasta sem er í gangi hjá unga fólkinu og enginn ástæða fyrir Jónsa að láta svona.

Ekki orð um það meir hunangsristuðu rjómakoddarnir mínir. DT er vanur að standa í allskonar rugli og lætur ekkert slá sig útaf laginu. Heitasta fréttin í dag er tvímælalaust að vinir mínir í MTV eru að velta fyrir sér að halda verðlaunahátíðina sína á Íslandi árið 2006. Doddi JT getur ekki sagt að það komi honum mikið á óvart, Ísland er án nokkurs vafa da place 2 be og mesta furða að MTV verðlaunin hafi ekki fyrir löngu verið haldin hérna. Óneitanlega hálf kjánalegt samt að menn séu að tala um að halda þetta í Grafarvogi þegar heitasti staðurinn er vitaskuld Hafnarfjörður two twenty, the home of doddi timberlake...

...en já kæru félagar, hip og kúl fólkið á MTV er stundum líka í ruglinu og ekkert við því að gera annað en senda DT í málið. Enda læt ég það verða mitt fyrsta verk í fyrramálið að bjalla í Trevor vin minn sem ég kynntist í Lick partíinu hérna um árið, og fá hann til að redda þessu í fjörðinn. Ég meina til hvers að vera connectaður ef mar plöggar ekki bæinn sinn? Eins venjulega er DT ekkert á því að láta menn skíta í brækurnar ef hann getur stöðvað það og ekkert nema sjálfsagt að maður hjálpi vinum sínum sem ekki eru alveg með á hreinu hvar maður vill láta sjá sig ef maður býr á Íslandi. Fjörðurinn er málið og ekki orð um það meir....

föstudagur, apríl 23, 2004

Góðan daginn rjómafylltu karamellubréfin mín og gleðilegt sumar. Það er sko ekki ónýtt að vera rjómafyllt nammibréf í dag því að stemmningin er gríðarleg hvert sem litið er. DT hefur verið vant við látinn undanfarið því hann hefur verið að stúdera allt það nýjasta sem er að gerast hjá nágrannaþjóðunum í mjaðmahristingum og sykurpúðagerð. Kúturinn litli skellti sér til Köben DK og heimsótti að sjálfsögðu dansgólfið til að taka nokkra snúninga með innfæddum og þvíííííííílík stemmning börnin mín! Doddi Timberlake hefur nú marga fjöruna sopið á dansgólfinu en það sem hann fékk að kynnast á gólfinu í Köben slær allt annað út. Fólk var eitthvað að misskilja hvernig það átti að bera sig að í almennu hipshaki og var eitthvað að dilla sér eins og gamla fólkið gerir stundum á sjómannadaginn. DT tók það að sjálfsögðu ekki í mál, skellti sér í gírinn og sýndi fólkinu hvernig á að gera þetta! ohhh yeah baby shake dat thing og enga feimni nú!

En yfir í annað, eins og við var að búast unnu pjakkarnir hans DT í unglingaflokknum þennan leik á móti KR og eru Íslandsmeistarar. Ég bjóst aldrei við neinu öðru enda eru þeir bestir og sýndu það þegar á reyndi. DT hefur bara eitt að segja við hunangsmolana sína í unglingaflokknum og það er þetta: One love baby og ekkert annað! ....

Svo var lokahóf KKÍ á föstudaginn fyrir viku og þar gerði Sæsinn einnig þekktur sem Da Star, þó hann vilji ekki viðurkenna það, sér lítið fyrir og lét velja sig besta unga leikmanninn í deildinni annað árið í röð. DT er vitaskuld yfir sig stoltur af Sæsanum enda er strákurinn algjör fagmaður og á eftir að ná langt. Svo er félaginn víst byrjaður í stúdentsprófum og hefur DT aðeins þetta við hann að segja: Good luck Sæsi son...

En yfir í slæmu fréttirnar mínir kæru vinir, það þýðir ekkert að vera alltaf skælbrosandi eins og maður sé að koma beint frá Sólheimum og engin ástæða til annars en að taka alvarlega manninn á þetta af og til. Þannig er nefnilega að DT hefur verið að velta fyrir sér að taka sér pása frá körfuboltanum í smá tíma því mér finnst ég ekki alveg hafa verið að standa mig nógu vel á parketinu, þrátt fyrir að vera duglegri en andskotinn að æfa mig. DT hafði hugsað sér að vera bara duglegri í ræktinni og vinna betur í sixpakkinu og svona í staðinn en nú er semsagt búið að rústa þeim áætlunum fyrir dodda allra landsmanna. Það var nefnilega haldið lokahóf Hauka á sama tíma og lokahóf KKÍ og þar datt einhverjum jólasveininum í hug að veita DT verðlaun fyrir að hafa sýnt mestu framfarir í meistaraflokki Hauka á árinu 2004! Þið þarna úti haldið kannski að það hafi verið einhver gleðitíðindi fyrir doddann en það er nú öðru nær! Nú er ég orðinn award winning basketball player og þá þýðir ekki einu sinni að hugsa um að taka sér pásu, damn verðlaun mar....

Jæja, kannski að ég komist þá í NBA eftir allt saman??? Aldrei að vita en anywayz, passið bara að vinna enginn verðlaun börnin mín og þá getiði gert allt sem þið viljið...



miðvikudagur, apríl 07, 2004

Til hamingju með afmælið ég sjálfur!!!! ;)...ekkert að því að óska sjálfum sér til hamingju með daginn...

...svo unnu Haukar leikinn á móti Njarðvík í gær og ætla að verða Íslandsmeistarar í kvöld þegar þeir vinna KR í úrslitunum í Höllinni kl. 20...ég ætla sko að verða þar og svo fer maður bara í bæinn í kvöld að höstla Sugarbabes!

laugardagur, apríl 03, 2004

Gott kvöld gott fólk, eins og oft áður er kominn laugardagur. Það eru auðvitað ekkert annað en stórkostleg tíðindi og óska ég fólki innilega til hamingju. DT gæti nú samt verið kátari með þetta, mar er búinn að vera eitthvað slappur síðan um síðustu helgi og er ennþá að taka aumingjann á þetta. En hvað um það, DT er að sjálfsögðu gerður úr stáli og myndi ekki láta á sjá þó hann væri holdsveikur. Þessi vika er samt búin að vera minnst skemmtileg, ég er bara búinn að vinna baki brotnu í Útilífinu frá morgni til kvölds (eða meira svona bara fimmtudaginn og föstudaginn eftir hádegi en ég meina) og lítið getað einbeitt mér að kúlinu. Svona er þetta bara stundum krakkar mínir, það er hardknock dæmi að vera alltaf eitursvalur á því og alls ekkert allir sem gera það vel. Það kom einmitt einn sem veit ekkert hvað er að gerast í útilífið til mín á fimmtudaginn, og ég gerði mér lítið fyrir og seldi honum alls konar drasl sem honum fannst ekkert flott fyrr en DT var búinn að segja að það væri geðveikt...

...já kidz, DT veit allt um hvernig á að rugla í höfðinu á þessu liði og er ekki í vandræðum með að pranga einhverju drasli á fólk. Annars var ég ánægðastur með að fá kiddann og viktorinn í heimsókn til mín í vinnuna á fimmtudaginn og svo með að fá sjálfan Dr. Ottó ásamt sinni fögru konu í pleizið daginn eftir. DT er nebbla stundum alveg að geispa golunni þarna innfrá úr leiðindum og þá eru heimsóknir frá pjökkunum að gera góða hluti...

...ég hef nú annars ekki séð mikið af þeim undanfarið eða alveg síðan DT hætti að láta sjá sig á parketinu. Ég lét mig þó hafa það að kíkja á Ásvellina áðan til að styðja við bakið á unglingaflokki karla í leik á móti Njarðvík. Í þessum flokki eru ekkert nema snillingar upp til hópa og ber þar að nefna menn eins og Ellavich, Gunna bin Laden, Kjarra crazy K, bræðurna V&K, Eini (sem er meiri stjarna heldur en Sæsi og þá er nú mikið sagt), Jóa og fleiri kúta. Doddinn er eiginlega alveg vitlaus í þessa gaura enda eru þeir með langbesta unglingaflokksliðið á landinu og ætla að verða Íslandsmeistarar á miðvikudaginn en þá á ég einmitt afmæli...Þeir töpuðu reyndar áðan eftir að hafa verið 20 stigum yfir á tímabili en það er bara fínt því þeir koma þá bara dýrvitlausir til leiks í undanúrslitin á þriðjudaginn.

Ég hef í það minnsta fulla trú á strákunum og ætla svo sannarlega að mæta í höllina til að styðja við bakið á þeim...en kæru vinir, ég bið ykkur þá bara vel að lifa þangað til næst og munið bara að vera ekki eins og gaurinn sem kom til mín í Útilíf þarna um daginn...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?