mánudagur, júní 28, 2004
Góðan daginn sykurbættu jógúrtkokteilarnir mínir. Jú jú, þessi leikur þarna um daginn gekk alveg bærilega. Maður var nú eilítið ryðgaður svona til að byrja með en tók fljótlega við sér og fyrr en varði var ég shaking dem hipz eins og ég hefði aldrei gert neitt annað. Þeir gerast samt ekki meiri æfingaleikirnir, mættum bara á æfingu hjá Breiðablik og byrjuðum að spila. Held að þeir hafi ekki einu sinni haft fyrir að vera í búningum.
Svo hefur doddi allra landsmanna verið að þræla út hafnfirskri æsku undanfarnar vikur og skemmtir sér alveg konunglega. Loksins hefur maður náð að seilast til áhrifa í samfélaginu og hafa áhrif á gang mála. Right....
Svo er spurning dagsins þessi: Hvort er betra að vera sætur eða myndarlegur?
Ég hef soldið verið að velta þessu fyrir mér undanfarna daga, hef kannski verið eitthvað hummm...sætur eða myndarlegur? hummm...sæt eða myndarleg? hummm......og ekki alveg getað áttað mig á hvort er betra. Það er nefnilega mjög mikilvægt í dag að vera annaðhvort sætur eða myndarlegur, helst náttla bara fallegur. Hef til dæmis oft tekið eftir því að þegar ég er að vinna í útilífinu með bros á vör, fær fólk sem mér finnst líta vel út oft alveg sérstaklega góða þjónustu.
Svolítið fyndið þegar ég gerði mér fyrst grein fyrir þessu, þá kom einhver rosa sæt í skódeildina og var að leita að skóm og ég held að ég hafi bara aldrei sýnt jafn framúrskarandi þjónustulund. Eins og sést á þessu er ég ekkert annað en grunnhygginn laumupervert sem dæmir fólk eftir útliti og verð snarlega að bæta ráð mitt ef ekki á illa að fara. Skil reyndar ekkert í þessu, ég hef alltaf haldið að ég væri svo einstaklega sanngjarn og réttsýnn maður en svo kom þetta á daginn og ég hef verið á bömmer síðan...
Jæja, skildi engan undra að ég fæ alltaf framúrskarandi þjónustu....nei, segi sonna blink blink ;)

miðvikudagur, júní 23, 2004
Kæru vinir, það er nokkuð stór stund að fara renna upp í mínu lífi innan skamms. Þannig er nefnilega að síðan körfuboltatímabilið kláraðist í byrjun apríl hef ég, Þórður a.k.a. doddi timberlake, aðeins mætt á tvær körfuboltaæfingar en þess í stað verið iðnari en indverskt barn í Nike-verksmiðju í Hressaranum. Allavega, Villi vinur minn hefur verið alveg hrikalega ósáttur með þetta og gerði sér lítið fyrir og hraunaði yfir doddann sinn í gærkvöldi og hélt yfir mér algjöra eldræðu sem vakti mig af værum blundi og fékk mig til að vilja taka nokkur dansspor á vellinum á nýjan leik. Maður hefur kannski ekki verið að æfa sporin nýlega en þetta er allt þarna á sínum stað og ég bíð bara eftir góðu tækifæri til að sýna vel valdar mjaðmahristingar á vellinu eins og í old days.
Ég þarf nú kannski ekki að bíða lengi því eftir um það bil tvær klukkustundir er fyrirhugaður æfingaleikur Breiðabliks og Hauka í Smáranum á Kópavogi. Ég hef ákveðið að skella mér bara beint í góðan kappleik til að hita mig aðeins upp fyrir næstu körfuboltaæfingu. Er reyndar soldið smeykur um að ég eigi ekki eftir að geta neitt en að sjálfsögðu læt ég það ekkert á mig fá. Ég er maðurinn sem Baldur Ólafsson tróð yfir síðasta vetur og eftir þá niðurlægingu raskar ekkert ró minni. Þetta minnir mig nú reyndar á þegar ég fór fyrst á skíði. Þá hélt ég galvaskur beint í diskalyftuna og endaði rúllandi niður brekkuna...jæja...
Þetta verður ansi skrautlegt og bið ég fólk bara um að mæta ekki. Ég hef nú samt ekkert að óttast í þeim efnum, fólk lét ekki sjá sig á vellinum síðasta vetur þó ég grátbæði það að koma og yrði ég ekkert minna en steinhissa ef ég myndi sjá kunnuglegt andlit í áhorfendapöllunum. Tja, ef það verða þá einhverjir áhorfendapallar....
Svo er það nýjasta að Finnur bróðir minn var að koma heim frá Danmörku þar sem hann er í skóla. Hann var ekkert að tvínóna við hlutina og það fyrsta sem hann sagði við mig var þetta: "Þórður, ertu á sterum?" Ég muffaði náttla bara gaurinn svona til að sýna að ég hefði fullkomna stjórn á skapsmunum mínum og neitaði að sjálfsögðu staðfastlega. Skil nú reyndar ekki hvernig fólki dettur í hug að ég sé að taka einhvern óþverra, hef ekki bragðað áfengi síðan í nóvember og það síðasa sem ég myndi gera áður en ég fer að sofa á kvöldin væri að munda sprautunálina og skella eins og einni nál í óæðri endann.
Mér skilst reyndar að Villinn eigi við sama vandamál að etja heimafyrir og ef hann svo mikið sem hækki róminn segi einhver við hann þessi fleygu orð: "Villi, ég er viss um að þú ert á sterum, þú ert svo vondur í skapinu" Þeir sem þekkja Villa vita auðvitað að hann er skaphundur og duglegur við að æsa sig. Minnir mig á þegar við Villi vorum eitthvað að skutlast á bílnum hans og hann þurfti að stoppa fyrir gamalli konu á gangbraut. Sú gamla var eitthvað slæm til fótanna og var lengi að ganga yfir. Svo þegar blessuð gamla konan komst við illan leik yfir götuna gerði Villinn sér lítið fyrir og reykspólaði í burtu. Ég var bara eitthvað waddafuck maður! og þá segir félagi Villi: "Já maður, ég þoli ekki svona fólk sem er svona lengi að koma sér yfir gangbrautir!"
Damn homie! hehe...það verður nú að segjast að þetta er alls ekki lýsandi dæmi fyrir Villann, hann er mikill indælispiltur og venjulega ljúfur sem lamb.
Well, það var þá ekki fleira í þetta skiptið og vona ég bara að fólk sé ennþá af og til með Milkshakið á fóninum....

föstudagur, júní 18, 2004
Jæja litlu súkkulaðihjúpuðu útsjávarrækjurnar mínar, 17. júní bara liðinn með öllum sínum blöðrum og leiðinlegu ræðum. Ég veit sko allt um það, var að vinna frá 9-23.30 við að horfa og hlusta á gjörsamlega allt sem fram fór á sviðunum í Hafnarfirði og skemmti mér betur en margur heldur. Lærdómur dagsins: Nylon eru vel rassaðar, Sveppi og Auddi eru fagmenn og Máni í Á móti Sól er fáviti....eða svona því sem næst...
já og svo þakka ég Tryggva fyrir góða ræðu. Tryggvi minn, ég veit að þú lest aldrei þessa síðu en hvað sem því líður þá stóðstu þig vel í ræðupúltinu og þó þú værir með appelsínugult bindi við græna skyrtu í svörtu jakkafötunum þínum þá tók enginn eftir því og held ég bara að allir hafi verið sáttir við ávarp nýstúdents þetta árið. Allaveganna þá sá ég nokkrar gamlar konur í hóp sem horfðu á Tryggvan aðdáunaraugum þegar hann tölti niður af sviðinu...
Svo er að koma helgi og vill DT bara koma því á framfæri að hann keypti sér vænlega B.L.E.I.K.A. skyrtu í dag og verður langflottastur með hvítt bindi og í bleikri skyrtu í bænum á morgun....óska ég bara öllum vænnar helgar og vona að allir verðir vænir eins og venjulega, vænlega félagi sjáðu til!

þriðjudagur, júní 15, 2004
Velkomin heim Bjarki! Gott fólk, Bjarkinn er mættur aftur til Íslands og stelpurnar geta aftur farið út á lífið...the hunk is back in town hehe ;)
föstudagur, júní 11, 2004
Nú er að koma helgi og þá þýðir ekkert annað fyrir mig en að skrifa nokkur orð aðdáendum dodda timberlake til yndis og afþreyingar. Annars vil ég nú bara byrja á því að bjóða Thelmu vinkonu mína velkomna aftur til landsins frá Costa del Sol. Þar hefur stelpan alið manninn í tvær vikur og er áreiðanlega eins og Swiss Miss þessa dagana.
Af mér er annars helst að frétta að ég var að fá flokk sem ég á að stjórna harðri hendi í unglingavinnunni í sumar. Ég held að ég hafi fengið fjölmennasta flokkinn (20 grislingar) en sem betur fer verður Jói hennar Silju Þórðar með mér fyrstu vikuna. Að sjálfsögðu ætla ég að vera harðstjóri, ég er nagli og ætla svo sannarlega að láta krakkana finna fyrir því.
Jæja, ekki meira um það. Vona bara að fólk hafi það gott um helgina og hvet ég alla til að heimsækja mig í Útilíf því þar verð ég ferskari en fjallalind með gervibros á vör...

sunnudagur, júní 06, 2004
Jú komið þið sæl....í dag hef ég ískyggilegar fréttir að færa ykkur. Bergur bróðir minn virðir ekki shotgun regluna. Hvílíkt kæruleysi! Fórum í leikhúsið fjölskyldan á föstudaginn og á leiðinni í bílinn eftir sýninguna kallaði ég skýrt og greinilega shotgun til að tryggja mér framsætið. Hvað haldið þið að Bergurinn hafi gert??? Jú, helvítið á honum hlammaði sér bara í framsætið beint fyrir framan nefið á mér og datt ekki í hug að hreyfa sig. Ég er svo rasandi reiður yfir þessu að ég á ekki til orð og verð ég lengi að jafna mig.
Það er nú þannig í lífinu að til eru óskráðar reglur sem ekki er hægt að breyta fyrirvaralaust. Maður gengur ekki nakinn niður laugarveginn, borðar ekki eggjaskurn, segir spúla en ekki smúla og síðast en ekki síst þá virðir maður shotgun regluna. Ég hélt að allir vissu þetta og horfði bara á Berg í forundran meðan hann svívirti eina af grundvallarreglum siðaðra manna beint fyrir framan nefið á mér.
Jæja, annars var helgin hin prýðilegasta og stytti ég mér stundir við að horfa á Tinnu Alaves í bænum á laugardaginn með Kidda bling bling og var það frábær skemmtun...

miðvikudagur, júní 02, 2004
Jæja gott fólk, þá hef ég loksins náð mér eftir samfund minn við félagana í KoRn. Samt ekki eins og þeir séu merkilegasta fólkið sem ég hef hitt á minni löngu ævi. Minnist þess þegar ég hitti Vigdísi Finnbogadóttur hérna um árið og svo er ég ekki frá því að við John Rhodes höfum verið fínustu félagar meðan hann var í Haukum, sælla minninga.
Annars langaði mig bara að lýsa yfir mikilli ánægju með Ólaf Ragnar Grímsson, minn kæra vin og stoð og styttu í hverri raun, sem neitaði hreinlega að skrifa undir fjölmiðlafrumvarpið í dag. Ekki svo að skilja að ég hafi misst einhvern svefn yfir þessu, alls ekki, ég er bara svo ánægður með kallinn að láta ekki vaða yfir sig að það hálfa væri nóg. Ég bjóst nú reyndar aldrei við öðru en Ólinn myndi sýna smá mótstöðu, Bessastaðir eru ekki það langt frá Ghettocity 220 og ekki annað hægt en að verða fyrir áhrifum frá gangstamenningunni sem þar ríkir.
Hvað um það, Óli stóð sig vel í þetta skiptið og i´ll bet að Davíði líður eins og algjöru fífli akkúrat núna....