<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, september 29, 2005

Ákvað að senda smá skilaboð til Kuki á serbnesku:

Ja te volim, ljubim te!

Að sjálfsögðu er þetta frá öllum í liðinu þó setningin sé í fyrstu persónu eintölu.

Svo er bara að vona að Serbinn fljúgandi lesi ennþá síðuna og taki gleði sína á ný því eitthvað hefur verið þungbúið yfir blessuðum garminum undanfarið.


Annars sit ég bara sveittur yfir frönskuþýðingunum eins og venjulega. Held að þetta sé bara þrusugott hjá mér og hlakka ég nú mest til að taka þátt í jólabókaflóðinu með tilheyrandi forsíðumyndum og útvarpsviðtölum.

Blaðamaður: "Já Þórður, nú ert þú mikill snillingur. Var þetta ekki alltof auðvelt?"

Ég: "Ha, hver ert þú. Talaðiru við umboðsmanninn minn til að fá þetta viðtal. Hvernig fékkstu númerið mitt. Öryggisvörður!!!"

Svona verður þetta áreiðanlega hjá mér því ég ætla ekkert að spila mig sem einhvern hógværan listamann. Ónei, ég verð duttlungafullur og dularfullur og endalaus uppspretta slúðurfrétta.

Annar blaðamaður: "Segðu mér Þórður, nú var afar erfitt að fá þetta viðtal. Myndiru segja að þú væri á móti digitalískum áhrifum í nútímablaðamennsku?"

Ég: "Fyrirgefðu, skildi ekki spurninguna. Var of upptekinn að búa til línuna mína. Geturu endurtekið?"

Er farinn að hlakka verulega til allrar þessarar frægðar. Verst að Gísli Marteinn er hættur með þáttinn sinn en sem betur fer er Sirrí ennþá á sínum stað og aldrei að vita nema hún bjóði mér í sófann.

Jæja, ætla að halda puðinu áfram.

laugardagur, september 24, 2005

Jæja, skil ekkert í mér að hafa verið svona súr í gær. Þýðir ekkert að hafa áhyggjur af framtíðinni enda vitað mál að ég verð bæði ríkur og frægur.

En yfir í annað. Coach Kuki er skemmtilegur karl. Sannaði það á æfingu áðan þegar hann sparkaði bolta í Kjarra. Kjarri hafði ekki verið að standa sig í vörninni þannig að Kuki sagði: "wHo was guarrrding Emil" Kjarri sagði: "I was" Þá sagði Kuki: "Turrrrn arrround" Kjarri gerði það og þá sparkaði Kukinn boltanum beint í kallinn.

Kuki á það til að verða svakalega reiður og hikar ekki við að sýna ef honum mislíkar eitthvað. Spurði mig til dæmis tvisvar í morgun hvort ég væri þroskaheftur. Voru þær samræður eitthvað á þessa leið:

Kuki: "Doddi, are you retarded?"
Ég: "No I don´t think so"
Kuki: "I wouldn´t be so sure"

Svona er kallinn daginn út og inn ef maður leggur sig ekki allan fram um að gera það sem hann biður um. Ég er bara ánægður með það og held við verðum allir betri fyrir vikið. Í hvert skipti sem Kuki segir "You are all a bunch of fucking pussies" meinar hann í rauninni "You are all so pretty that I get embarrassed" og þegar hann segir "My grandmother is better than you" meinar hann í rauninni "You are all so nice that it makes me wanna cry".

Kuki segir eitt en meinar annað, um leið og maður hefur áttað sig á því er lítið mál að láta ausa yfir sig skömmunum með bros á vör.

..svo getur líka vel verið að Kuki sé að meina þetta og hann haldi í alvöru að ég sé þroskaheftur hmmmmm...

föstudagur, september 23, 2005

Mikið rosalega er orðið kalt gott fólk. Ég á bara ekki til orð. Maður kemur saklaus heim frá Serbíu úr 25 stiga hita og stelpum í minipilsum og yfir í 0 gráður á Celsius. Veit ekki hvurn déskotann ég var að pæla að koma heim aftur. Hefði bara átt að vera eftir og halda áfram að gefa eiginhandaráritanir. Þeir sem hefðu viljað hitta mig hefðu bara getað komið í heimsókn eins og venjulegt fólk og ég hefði bara getað tjillað ber að ofan í fjallgöngu eins og ég gerði í september fyrir ári. Þetta er bara ekki mönnum bjóðandi, og svo verður bara kaldara og kaldara...

Annars er ég súrari en kæstur hákarl þessa dagana. Verkefnin farin að hrannast upp og ég sé ekki fram á annað en blóð, svita og tár fram að áramótum. Og hvað svo? Klára frönskuna um áramótin en síðan er ég opnari kjafturinn á geispandi manni fyrir ferskum hugmyndum. Ætti ég að taka þátt í Hr. Ísland, sigra og stunda fyrirsætustörf eða ganga í klaustur og stunda skírlífi? Hvort myndi henta mér betur að verða ríkur og frægur eða feitur en fallegur? Sannarlega erfitt val.

Jæja, ætli ég endi ekki sem kynnir í einhverjum sjónvarpsmarkaði og kynni nýjasta líkamsræktartækið sem myndi auðvitað vera magaæfingatæki og heita "The ab-explosinator".
Fór allaveganna í Hressarann áðan og tók vel á kvikindinu.

Já félagar, framtíðin kemur fyrr en mann grunar og ef maður er ekki tilbúinn mun hún ekkert hafa að geyma annað en óhamingju og brostnar vonir. Best að gera sér grein fyrir því núna og setja allt á fullt. Það vill enginn tapa í lífinu. Staðan er erfið kæru vinir, kröfurnar harðar og flestum meira og minna sama um allt nema eigið skinn. Það er kalt á toppnum og um að gera að taka með sér skjólgóða flík ef maður ætlar þangað.

miðvikudagur, september 21, 2005

Komið þið sæl. Þá er ég loksins kominn heim frá Serbíu og get ekki annað sagt en að ferðin hafi verið skemmtileg og ánægjuleg. Ferðasöguna má lesa á blogcentral.is/serbia og hef ég engu við hana að bæta.

En yfir í alvarlegri sálma. Sálufélagi minn og stórvinkona Thelma Þönder gerði mér þann óleik að klukka mig á msn-inu hérna rétt áðan og allt útlit fyrir að ég verði að skrifa niður 5 atriði um sjálfan mig sem ekki allir vita. Þetta er náttúrulega hrikalegt fyrir mig þar sem ég er mikil prívatmanneskja og ekki mikið fyrir að bera tilfinningar mínar á torg. Hvað um það, mér þykir vænt um Thelmuna mína og lítið mál að gera þetta fyrir hana.

Jæja, drífum í þessu:

1. Ég borða Cheeriosið mitt með vatni af því ég borða ekki mjólkurvörur, enda eru þær bara fyrir dýr á spena og ketti.
2. Ég var í kór þegar ég var lítill og söng 1. sópran. Ég og bróðir minn vorum einu strákarnir.
3. Ég var feitur þegar ég var lítill.
4. Ég ætlaði að kaupa mér klámmynd í Serbíu en það var einhver í liðinu sem keypti hana á undan mér.
5. Mig langar að heita Ísak Tumi.

Þá er þessu lokið, datt nú ýmislegt fleira í hug en veit ekki hvort ég er tilbúinn að ljóstra öllu upp. Líður eins og ég sé búinn að opna hjarta mitt upp á gátt nú þegar....
KLUKKA engan! Hahahaha sá við þessu muhahaha muhahaha muhahaha

föstudagur, september 09, 2005

Er nýbúinn að tala við Kidda, a.k.a. houselord, á msn og fannst alveg nauðsynlegt að leyfa hinum almenna borgara að sjá hvernig tveir two twenty soldiers hafa samskiptin sín á milli:

Þórður says:
yo pretty boy! waddup
Kiddi (srt-4) says:
timbolicious
Kiddi (srt-4) says:
zup
Kiddi (srt-4) says:
whats cracking
Þórður says:
i´m laid back in a cadillac smoking on some fiiiine ganja holmes
Þórður says:
what about tha crack snacking cadillacking real estate owner?
Kiddi (srt-4) says:
shit man me and me biznitz are just chillin here smoking a fat mary jane and wazzing amerikaz top hodel
Þórður says:
aiiight i be gettin yo from da roof ol´dirty dizzle in a sizzzlin pizzzlin.....u all good
Þórður says:
me be chilllin wit dat french at my crippin bullshitin on paper like a skyscraper....u feelin me?
Kiddi (srt-4) says:
shit man this is some seriuzly deep shiznit but I dig
Þórður says:
yo niggalicious, me be so fine in dat rime dat all of dem niggaz outder b aware....i´m vicious like millalicious word
Kiddi (srt-4) says:
shit mar þú ert að missa þig
Kiddi (srt-4) says:
hahahahaha
Kiddi (srt-4) says:
snilld mar
Þórður says:
i´m smokin´ u dawg
Kiddi (srt-4) says:
haha
Kiddi (srt-4) says:
þokkalega
Kiddi (srt-4) says:
heyrru mar ég er out like a pig on a flame
Kiddi (srt-4) says:
þreyttur og hressarinn í fyrramálið
Þórður says:
ok....stattu þig og láttu hvíta manninn ekki halda þér niðri...one
Kiddi (srt-4) says:
ok hehe later

Já kæru vinir, svona tölum við saman félagarnir og erum stoltir af því. Aiiight.

mánudagur, september 05, 2005

Gott fólk, nú er ég hættur að vera doddi timberlake. Lánaði blingið mitt um helgina og því var týnt og því er svo komið að enginn grundvöllur er lengur fyrir tilvist DT. Kannski að sumir eigi erfitt með að sætta sig við þetta en svona er lífið. Öll heimsveldi líða einhvern tímann undir lok og þarf engum að koma á óvart að sum verðandi heimsveldi líði líka undir lok. Ég ætlaði að leggja undir mig veröldina sem doddi timberlake konungur dansgólfanna, en eftir að mér mistókst að læra að dansa salsa og svo að sjálfsögðu eftir að hafa tapað uppáhalds blinginu mínu er það algjörlega úr sögunni. Eflaust eiga einhverjir eftir að sakna mjaðmahristinganna og alls þess sem því fylgdi og gráta sig í svefn næstu vikurnar, enda skarð fyrir skildi að missa leiðtoga í mjaðmahristingum af sjónarsviðinu.

Kæru vinir, mér þykir þetta jafn leitt og ykkur. Samstarf okkar DT hefur verið með miklum ágætum og hefur Timberlakinn stutt mig í gegnum súrt og sætt og ávallt verið traustur bakhjarl í hvaða raun sem er. DT er maður sem sér björtu hliðarnar á hverri hörmung og lætur fátt koma sér úr jafnvægi, ekki ólíkt Gandhi eða Marteini Luther King. Doddi Timberlake náði kannski aldrei að nýta möguleika sína til fulls en hvað sem öðru líður var hann góður félagi sem alltaf var til í glens og gaman. Hann var stoð og stytta þúsunda lærisveina hér og þar um hinn upplýsta heim en nú er hann horfinn á braut og verður án efa sárt saknað.

Doddi Timberlake. Ég leyfði mér að semja um þig nokkrar línur sem mig langar að birta hér til minningar um þig.

"Þú svali andvari dansgólfanna"

Doddi T alltaf til í spé
var slick og gerði engum grikk.
Var með múvin á hreinu og gleymdi ekki neinu.
En nú er hann farinn eins og enn einn kaninn
blingið glatað, hann getur ei lengur ratað.
Dansgólfin á, dansgólfin á.
Er þá mál að linni, að sinni.

Kæri vinur, þú sem átt um sárt að binda vegna skyndilegrar fjarveru Dodda Timberlakes úr þínu lífi, láttu ekki hugfallast. Þó enginn viti um stund hvernig á að haga sér á dansgólfinu munu aðrir verða til að taka við keflinu og hrista rassinn í takt við tónlistina.

Bestu kveðjur, doddi jr.


fimmtudagur, september 01, 2005

Já þá er sumarið senn á enda og alltof langt síðan ég skrifaði síðast. Hef haft ýmislegt fyrir stafni í millitíðinni og ekkert setið með hendur í skauti. Vitaskuld hef ég verið sveittari en göltur á leið til slátrunar við íþróttaiðkun í góðum hópi mætra manna. Serbadjöfullinn Kukovic 1. slátrari hefur gert það sem í hans valdi stendur til að slökkva lífsneistann í okkur Haukapjökkum með svívirðilegum æfingum. Erum að vísu hættir útihlaupunum en höldum okkar striki í fegrunaræfingunum og er nú svo farið að liðið hefur sjaldan verið með betri meðaltals sixpakk.

Já, nóg að gera í sportinu og allt útlit fyrir að í vetur verði lítið um annað en æfingar og ritgerðarsmíðar hjá dodda litli. Klára skólann svo um jólin og ætla eftir það að velta fyrir mér framtíðaráætlunum mínum, velja mér lífsförunaut, kaupa íbúð og bíl og byrja í tannlækninum. Eignast svo 2-3 börn, helst tvo stráka og eina stelpu og vera ógeðslega ríkur og fallegur allt þangað til ég skil við fyrstu eiginkonu mína. Þá ætla ég að leggjast í tveggja mánaða þunglyndi, verða áfengisdjöflinum að bráð og leiðast út í fíkniefni. Verða svo kærður fyrir ölvunarakstur og eignaspjöll og sviptur ökuréttindum. Frelsast, komast til metorða innan sértrúarsöfnuðs sem nyti mikillar hylli meðal kristinna öfgahreyfinga og verða frægur sjónvarpspredikari. Eignast 6 börn í viðbót enda getnaðarvarnir bannaðar innan safnaðarins, og veljast svo af auglýsingarstofu sem myndi bera nafnið "Smellpassar" til að vera andlit íslenskra skyrdrykkja í Suð-Austur Asíu. Falla svo, fara í meðferð. Gera útgáfusamning við Hagkaup um ævisögu mína sem yrði prentuð 4 sinnum og myndi þar með deila sölumeti yfir mest seldu íslensku bókina ásamt sjálfshjálparbók Eiðs Smára Gudjonsen "Hvernig ég varð aftur feitur, 10 skrefa áætlun til að bæta ekki á sig kílóum". Flytja til Senegal þar sem ég myndi næstum drekka mig í hel, taka mig svo taki og snúa heim til Íslands þar sem ég myndi opna sportbar fyrir lánsfé og sína leiki kínversku úrvaldsdeildarinnar í knattspyrnu í beinni útsendingu.

Þetta er svona það helsta sem er á döfinni hjá doddanum næstu mánuðina og líst mér bara vel á framtíðina. Ef fólk vill fá að taka þátt í ævintýrinu með doddanum sínum er um að gera að slá á þráðinn og hver veit nema að þú getir verið með....

This page is powered by Blogger. Isn't yours?