miðvikudagur, desember 21, 2005
Kæru aðdáendur, sýnið biðlund. Öll él birtir upp um síðir og brátt mun ég skrifa eitthvað skemmtilegt. Speki dagsins er eftirfarandi: "Ef dugnað vilt sýna, má einbeitingu ekki týna."
sunnudagur, desember 11, 2005
Það þýðir ekkert að vera í fýlu of lengi þó það gangi ekki vel á körfuboltavellinum og í ljósi þess að við sleikipinnarnir og skonsusmjattararnir unnum KFÍ í gærkvöldi ætla ég nú að skrifa nokkur vel valin orð til að létta aðdáendum mínum lundina í skammdeginu. Ég vissi það svo sem að ákveðnir aðilar út í bæ myndu ekkert hoppa hæð sína í loft upp af kæti ef ég myndi hætta að skrifa í nokkra daga og ég gerði mér grein fyrir að þjóðfélagið myndi fara úr skorðum. Það er fyrir löngu orðið ljóst að skrif mín eru jafn mikilvæg og lýsi á morgnanna og kynlíf á kvöldin og ekki ofsögum sagt að hjörtu fólks taki kipp af kæti þegar það sér nýja færslu frá doddanum sínum. Og gott fólk, það er komið að nýrri færslu frá dodda allra landsmanna.
Ýmislegt hefur gerst síðan þið heyrðuð síðast frá mér og engar ýkjur að sögulegir atburðir hafi átt sér stað. Ég komst til dæmis ekki í liðið fyrir leikinn á móti KFÍ og gerðist það síðast þegar ég var ungur og upprennandi og Sigfús Giz, Jón Arnar og Roy Hairstone voru í liðinu. Leiknum var svo frestað um einn dag sem gerði það að verkum að helmingurinn af liðinu komst ekki vegna vinnu og próflesturs og svo var einn sem þorði ekki að fljúga. Ég fékk því að fara með þó ég hafi ekkert mátt vera að því og tók þátt í sigrinum. Þetta reyndist svo bara vera hinn fínasti leikur og spilaði ég sjálfur ágætlega. Morten var í ógurlegum ham og skoraði 39 kvikindi ásamt því að safna 19 fráköstum á tölfræðiblaðið. Dr. Ottó meiddist og þurfti að fara á sjúkrahúsið á Ísafirði en hann má eiga að hann stóð sig líka frábærlega í leiknum. Villinn sem hefur verið meiddur í 6 vikur átti gott kommback, fékk að spila og skoraði. Annars stóðum við okkur allir vel og eigum heiður skilinn fyrir að hafa farið til Ísafjarðar í miðjum desember með vængbrotið lið og unnið.
En þetta eru ekki einu tíðindin. Ég lét ljósu lokkana mína fjúka um daginn. Hætti að vera líkur Vilhjálmi Bretaprins og er nú eins og óskilgetið afkvæmi David Beckham og Brad Pitt with a dash of Conan the barbarian. Ég er með öðrum orðum snoðaður um þessar mundir og er sannast sagna óhugnalega kynþokkafullur og hef ég átt fótum mínum fjör að launa eftir æfingar í vikunni því sumir í liðinu geta hreinlega ekki á heilum sér tekið þegar þeir sjá mig. Hvað um það. Haukapjakkarnir eru vanir að vera vaðandi í kynþokka og ættu ekki að vera kippa sér upp við þó sumir séu meira löðrandi en venjulega. Svo er orðið á götunni að Kjarri e.þ.s. Pretty boy e.þ.s. Mr. No commitement sé hættur í liðinu en snáðinn minn hann lil KJ hefur ekki sést á æfingu í meira en viku. Ekki er ég alveg viss hvað veldur en held samt að Kjarri fái bara meiri ást annarsstaðar og hafi ákveðið að einbeita sér að öðrum hlutum. Það er samt leiðinlegt enda lil KJ skemmtilegur strákur og góður félagi. Hann hafði tekið að sér hlutverk Dóra Kristmanns í one linerunum og erfitt að sjá hver á að halda kyndli þeirra félaga á lofti núna. Tja, nema Villinn geri það bara enda er drengurinn sá þekktur fyrir að skjóta á hvern sem er og myndi ekki einu sinni hika við að rífa kjaft við ömmu sína.
Já kæru vinir, það getur margt breyst á stuttum tíma og fátt annað að gera en að vera alltaf viðbúinn því óvænta. Speki dagsins er ekki af verri endanum í dag og er svohljóðandi: "Ef áhugamáli með gleði vilt sinna, reyndu þá vinsamlegast að vinna"

mánudagur, desember 05, 2005
Ég er hér með hættur að skrifa á síðuna mína í bili. Geri það ekki aftur fyrr en við vinnum leik. Finnst hálf asnalegt að vera alltaf að lofa sigri og standa ekki við neitt. Speki dagsins er eftirfarandi: "Orð eru góð en gjörðir betri"
laugardagur, desember 03, 2005
Jæja kæru vinir. Þá er ég kominn heim frá útlöndum þó sumir(Pálína) vilji að ég verði bara þar áfram þangað til tímabilinu lýkur. Þeir halda kannski að eðalútgáfurnar í liðinu hafi unnið leikinn af því að ég var ekki með og það er alveg rétt hjá þeim. Pjökkunum varð svo mikið um að ég skyldi yfirgefa þá á ögurstundu að þeir ákvaðu að láta mig sjá rækilega eftir því. Hvernig gerðu þeir það? Jú með því að vinna án mín og gera mig þannig að eina manninum í liðinu (ásamt Kjarra) sem ekki hefur enn upplifað sigurleik í deildinni í vetur. Þetta er ömurlegt og ef ég vissi ekki að við ætlum að vinna næsta leik líka myndi mér líða ömurlega yfir þessu.
Nei,nei, þetta eru nú bara gamanmál sem ég fer með hérna enda varð ég himinlifandi þegar Villinn sendi mér skilaboð um að við hefðum unnið leikinn. Sérstaklega gaman að sjá hvað Siggi tók mikla hetju á þetta og hvað Gunnar Birgir kom sterkur inn af bekknum. Ég hafði svo sem engar áhyggjur af öðru enda GB þekktur fyrir að nýta mínúturnar sínar. Myndi sjálfsagt gefa honum viðurnefnið The minute man ef ég vissi ekki að einhverjir myndu misskilja það viljandi.
Svo er leikur á morgun og ekkert sem kemur til greina annað en sigur. Ég tek ekki annað í mál en að fá að kynnast hvernig er að vinna leik í deildinni enda gerðist það síðast hjá mér ano domino 2003.
Langar svo líka að lýsa yfir furðu minni á þeirri forkastanlegu handvömm sem vinur minn Klikkaði Kiddi varð fyrir í Hveragerði hjá vinum mínum tölfræðingunum. KK segist nefnilega hafa skorað um og yfir 20 stig í leiknum en var bara skráður með 12. Þetta segir mér að grunnskólakennslu í stærðfræði sé stórlega ábótavant í héraðinu og skora ég á yfirvöld að ráða þessu bót hið fyrsta.
En nóg um það, löngu kominn tími fyrir speki dagsins enda fólk sem reiðir sig algjörlega á vitsmunaperlurnar sem flæða út úr mér í amstri daganna: "Kunnir þú að telja, munu margir þig velja".